Kannski ég hendi inn hér þjóðhagsspánni sem ég gaf út fyrir rúmlega mánuði...
Eftir innan við 6 mánuði mun fjöldi atvinnu-/og eignalausra verða orðinn það mikill að stjórnvöld neyðast til að byrja að reyna að bjarga þeim með styrkjum eða frystingu á lánum. Það mun dempa aðeins ástandið en næstu 18 mánuði mun flest venjulegt fólk sem enn á eignir, vera búið að sjá á eftir þeim í afborganir eða lánin komin yfir veðhæfi og því bætast í hóp ölmusuþega, giska á 30% þjóðarinnar verði því komin á framfæri ríkisins eftir 2-3 ár með einum eða öðrum hætti.
Þeir sem eru ekki rígbundnir og hafa kost á, munu kjósa að flytja erlendis. Þetta er það fólk sem dregur vagninn, eftir verða farþegar. Þessi staðreynd mun aðeins auka fjölda ölmusuþega árið 2012 verðu þjóðarframleiðslan hér orðin einn fjórði af því sem hún á að vera, Ísland komið af top 10 niður í kringum 50.
Ef þið gúglið GDP þá var Ísland í fyrra með GDP $38.000 (10 sæti), í dag er það búið að helmingast og spá greiningardeildir frekari lækkun eftir því sem líður á fjórðunginn, ég giska á að við verðum komin undir $15.000 áður en yfir líkur. Þá erum við á sama stað og lönd eins og Guam-eyjar, Botswana, Króatía, Gabon, Pólland, Rússland auk ýmissa ey-smáríkja.
Þetta er kreppuverðbólgan í dag!
Heimild:
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_co ... y_GDP_(PPP)_per_capita
(ath, þarf að laga linkinn)