Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby grettir » Mon 03. Nov 2008 17:30

zazou wrote:Áhugaverður linkur: http://www.hallonorden.is/forside/ice/forside.aspx

Takk fyrir þennan link. Hann á eftir að koma sér vel. Grínlaust.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Mon 03. Nov 2008 17:34

Ég póstaði hérna nokkrum síðum fyrr á þræðinum að það varðaði við lög að stofna efnahag landsins í voða - það eru því landráð í mínum huga líka og ber að taka á slíkum brotum af mikilli hörku (líklega er Icesave mjög skýrt dæmi um þetta sem og það að stuðla að svona mikilli veikingu krónunnar)

Með bankastarfsmennina þá snýst þetta ekki einu sinni um hvort við berum meira úr bítum ef þetta fólk fær að vinna áfram þarna - þetta snýst um réttlæti og það kostar sitt, stundum svo mikið að fólk hefur víða í veröld látið líf sitt í þágu þess (en oftar í þágu óréttlætis líklega). Það er því vel sloppið ef það kostar bara peninga í þetta skiptið.
Annars veltir maður fyrir sér, hvernig lánadrottinn (bankinn) getur leyft að veðið sé fært yfir í annað félag sem er eignalaust. Starfsmenn sem hafa tekið lán fyrir hundruð milljóna til að kaupa hlutabréf eiga eflaust heilmiklar fasteignir og lausafé sem maður hefði nú haldið að skipti máli fyrir bankann á þann veg að veðið færi ekki yfir á eignalaust ehf! Það er augljóslega skárra að fá þær eignir upp í skuldina en ekki neitt er það ekki.

Nú er fínn tími fyrir nýtt pólitískt miðjuafl sem hefur réttlæti, frelsi og velferð að leiðarljósi og hefur ekki sama gamla pólitíska pakkið á boðstólunum. Ótrúlegt að það sé ekkert slíkt í pípunum. Það þurfti ekki nema eina virkjun til þess síðast :roll:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Alpina » Mon 03. Nov 2008 18:00

INGVAR,,,,,,,,,,,,,, allar sálir liggja til Valhallar eftir bardaga

en hinar til helvítis :shock: :shock: :shock: :shock: :lol: :lol: :lol:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby bebecar » Mon 03. Nov 2008 18:07

Alpina wrote:INGVAR,,,,,,,,,,,,,, allar sálir liggja til Valhallar eftir bardaga

en hinar til helvítis :shock: :shock: :shock: :shock: :lol: :lol: :lol:


Reyndar fyndið að þú skulir minnast á þetta - rak nefnilega augun í auglýsingu frá flokknum á mbl.is en slíkt hefur maður ekki séð áður nema í aðdraganda kosning. Skyldi þetta vera einhver vísbending :lol:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Zyklus » Mon 03. Nov 2008 18:16

Nú segir RÚV að skuldir hafi verið afkskrifaðar...

http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item234905/

Skuldir Kaupþingsmanna afskrifaðar
Skuldir Kaupþingsmanna afskrifaðar

Stjórn Kaupþings lét afskrifa skuldir fjölda starfsmanna bankans áður en hann var þjóðnýttur. Fjármálaeftirlitið segist ekki hafa samþykkt niðurfellingu krafna eða trygginga vegna lánveitinga til starfsmanna bankans.

Kaupþing afskrifaði skuldir fjölda starfsmanna bankans í lok september, örfáum vikum áður en bankinn var þjóðnýttur. Heimildarmaður fréttastofu, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að stjórn bankans hafi tekið þessa ákvörðun. Fjárhæðirnar munu vera háar og skuldir fjölda starfsmanna munu hafa verið afskrifaðar.

Samkvæmt heimildum fréttastofu voru skuldir margra stjórnenda Nýja Kaupþings afskrifaðar. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings vildi ekki svara spurningum fréttamanns þegar náðist í hann í dag. Ekki náðist í Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, né Finn Sveinbjörnsson, forstjóra Nýja Kaupþings.

Starfsmaður skilanefndar Kaupþings sem fréttastofa náði tali af vildi heldur ekki tjá sig um málið. Gunnar Páll Pálsson, sem sat í stjórn gamla Kaupþings segist ekki vita til þess að skuldir starfsmanna bankans hafi verið afskrifaðar.

Í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn fréttastofu vegna málsins kemur fram að í ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um ráðstöfun eigna og skulda nýju bankanna segi að skuldbindingar starfsmanna lúti sömu lögmálum og önnur lán sem fluttust yfir til nýju bankanna. Fjármálaeftirlitið hafi ekki samþykkt sérstaklega niðurfellingu krafna eða trygginga vegna lánveitinga til starfsmanna bankanna.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby JIS » Mon 03. Nov 2008 18:21

ÞESS MÁ GETA AÐ ÞESSI INGVAR VILHJÁLMSSON ER SONUR VILHJÁLMS VILJHÁLMSONAR FYRRVERANDI BORGARSTJÓRA REYKAVÍKURBORGAR. A.K.A. GAMLI GÓÐI VILLI

Er einhver annar en ég byrjaður að reiðast yfir þessar spillingu :twisted:
JIS
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 81
Joined: Sat 23. Feb 2008 22:45

Postby ömmudriver » Mon 03. Nov 2008 18:24

grettir wrote:
zazou wrote:Áhugaverður linkur: http://www.hallonorden.is/forside/ice/forside.aspx

Takk fyrir þennan link. Hann á eftir að koma sér vel. Grínlaust.


x2
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby gstuning » Mon 03. Nov 2008 18:30

Þeir sem samþykktu þessi lán hafa framið landsráð líka.

The things you can do when you write your own ticket.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby zazou » Mon 03. Nov 2008 18:44

Kannski ég hendi inn hér þjóðhagsspánni sem ég gaf út fyrir rúmlega mánuði...

Bara mitt álit, skrifað rétt eftir fall Glitnis
Eftir innan við 6 mánuði mun fjöldi atvinnu-/og eignalausra verða orðinn það mikill að stjórnvöld neyðast til að byrja að reyna að bjarga þeim með styrkjum eða frystingu á lánum. Það mun dempa aðeins ástandið en næstu 18 mánuði mun flest venjulegt fólk sem enn á eignir, vera búið að sjá á eftir þeim í afborganir eða lánin komin yfir veðhæfi og því bætast í hóp ölmusuþega, giska á 30% þjóðarinnar verði því komin á framfæri ríkisins eftir 2-3 ár með einum eða öðrum hætti.

Þeir sem eru ekki rígbundnir og hafa kost á, munu kjósa að flytja erlendis. Þetta er það fólk sem dregur vagninn, eftir verða farþegar. Þessi staðreynd mun aðeins auka fjölda ölmusuþega árið 2012 verðu þjóðarframleiðslan hér orðin einn fjórði af því sem hún á að vera, Ísland komið af top 10 niður í kringum 50.

Ef þið gúglið GDP þá var Ísland í fyrra með GDP $38.000 (10 sæti), í dag er það búið að helmingast og spá greiningardeildir frekari lækkun eftir því sem líður á fjórðunginn, ég giska á að við verðum komin undir $15.000 áður en yfir líkur. Þá erum við á sama stað og lönd eins og Guam-eyjar, Botswana, Króatía, Gabon, Pólland, Rússland auk ýmissa ey-smáríkja.

Þetta er kreppuverðbólgan í dag!


Heimild:
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_co ... y_GDP_(PPP)_per_capita
(ath, þarf að laga linkinn)


Ég þarf að uppfæra hana ss í hvaða sæti við höfnum í mtt GDP :(
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby bebecar » Mon 03. Nov 2008 19:02

Ekki treystir maður sér til að spá. En það er nokkuð ljóst að fleiri lönd hafa tekið á sig stóra skelli og komist upp úr þeim á tiltölulega skömmum tíma.

T.d. er mér minnistætt að Argentína hafi farið á hausinn fyrir aðeins sex árum síðan og svo aftur núna og lífið gekk þó betur en oft áður árin þar á milli (kannski þessvegna sem þeir fóru á hausinn aftur :lol: )

En það er algjörlega ljóst að hver mánuður skiptir máli núna. Ég gæti einmitt trúað því að 30% þjóðarinnar eigi eftir að fara verulega ílla út úr þessu. Það þarf að gera fólki kleift að kljúfa núverandi byrðar.

RÚV segir að stjórn Kaupþings hafi fellt niður skuldir starfsmanna - hvað gerist nú? Verður ekki allt vitlaust?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Eggert » Mon 03. Nov 2008 19:08

Ég mun færa mín viðskipti frá Kaupthing þegar ég kem heim í jólafrí, það er alveg klárt mál.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby gstuning » Mon 03. Nov 2008 19:14

Ég get ekki alveg skilið afhverju fólk er bara heima sér.
Það þarf að mótmæla.

þetta er orðið að klíku stríði hreinlega.

ráðamenn og bankavinir vs. þjóðin.

take you pick.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby bebecar » Mon 03. Nov 2008 19:15

Eggert wrote:Ég mun færa mín viðskipti frá Kaupthing þegar ég kem heim í jólafrí, það er alveg klárt mál.


Það er bara ekki nóg - þetta er augljóslega áskorun á fólk að hætta að borga af lánum teknum í Kaupþingi. Það er varla hægt að skilja þetta öðruvísi :evil:

Það hvarflar að manni að einfaldast væri bara að setja rimla á alla skrifstofubygginuna þarna :roll:

Ég eiginlega trúi því varla ennþá að þetta hafi verið gert. Þetta hlýtur að skýrast á næstu dögum.

Ætli fólk fari ekki með önnur mótmæli af stað núna og mótmæli fyrir utan seðlabankann eins og vanalega :lol:

Hér gafst gullið tækifæri til að henda út öllu þessu liði sem setti þjóðina á hausinn (þeir mega ekki vinna í bankanum) en hvað er gert - skuldirnar afskrifaðar og þeir halda vinnunni. Þetta bara má ekki gerast.
Last edited by bebecar on Mon 03. Nov 2008 19:18, edited 2 times in total.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby zazou » Mon 03. Nov 2008 19:17

Eggert wrote:Ég mun færa mín viðskipti frá Kaupthing þegar ég kem heim í jólafrí, það er alveg klárt mál.


Ég held að það sé ekkert að neinum banka eins og þeir eru í dag þannig séð, þarft ekkert að fara þaðan. BYR stendur reyndar LANG best, eiga HAUG af peningum en fyrrum risarnir 3 eru í ríkiseign svo að ef þér líkar við fólkið sem þú átt samskipti við þá þarftu ekki að breyta út af rekstrarstöðu.
Það er búið að skera krabbameinið í burtu, nú er bara að ná sér.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby bebecar » Mon 03. Nov 2008 19:19

zazou wrote:
Eggert wrote:Ég mun færa mín viðskipti frá Kaupthing þegar ég kem heim í jólafrí, það er alveg klárt mál.


Ég held að það sé ekkert að neinum banka eins og þeir eru í dag þannig séð, þarft ekkert að fara þaðan. BYR stendur reyndar LANG best, eiga HAUG af peningum en fyrrum risarnir 3 eru í ríkiseign svo að ef þér líkar við fólkið sem þú átt samskipti við þá þarftu ekki að breyta út af rekstrarstöðu.
Það er búið að skera krabbameinið í burtu, nú er bara að ná sér.


Ja, það er nú málið - krabbameinið er þarna ennþá - allir sömu millistjórnendurnir. Það er þörf á geislameðferð!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 47 guests