zazou wrote:Áhugaverður linkur: http://www.hallonorden.is/forside/ice/forside.aspx
Takk fyrir þennan link. Hann á eftir að koma sér vel. Grínlaust.
zazou wrote:Áhugaverður linkur: http://www.hallonorden.is/forside/ice/forside.aspx
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
Alpina wrote:INGVAR,,,,,,,,,,,,,, allar sálir liggja til Valhallar eftir bardaga
en hinar til helvítis![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
Skuldir Kaupþingsmanna afskrifaðar
Skuldir Kaupþingsmanna afskrifaðar
Stjórn Kaupþings lét afskrifa skuldir fjölda starfsmanna bankans áður en hann var þjóðnýttur. Fjármálaeftirlitið segist ekki hafa samþykkt niðurfellingu krafna eða trygginga vegna lánveitinga til starfsmanna bankans.
Kaupþing afskrifaði skuldir fjölda starfsmanna bankans í lok september, örfáum vikum áður en bankinn var þjóðnýttur. Heimildarmaður fréttastofu, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að stjórn bankans hafi tekið þessa ákvörðun. Fjárhæðirnar munu vera háar og skuldir fjölda starfsmanna munu hafa verið afskrifaðar.
Samkvæmt heimildum fréttastofu voru skuldir margra stjórnenda Nýja Kaupþings afskrifaðar. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings vildi ekki svara spurningum fréttamanns þegar náðist í hann í dag. Ekki náðist í Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, né Finn Sveinbjörnsson, forstjóra Nýja Kaupþings.
Starfsmaður skilanefndar Kaupþings sem fréttastofa náði tali af vildi heldur ekki tjá sig um málið. Gunnar Páll Pálsson, sem sat í stjórn gamla Kaupþings segist ekki vita til þess að skuldir starfsmanna bankans hafi verið afskrifaðar.
Í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn fréttastofu vegna málsins kemur fram að í ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um ráðstöfun eigna og skulda nýju bankanna segi að skuldbindingar starfsmanna lúti sömu lögmálum og önnur lán sem fluttust yfir til nýju bankanna. Fjármálaeftirlitið hafi ekki samþykkt sérstaklega niðurfellingu krafna eða trygginga vegna lánveitinga til starfsmanna bankanna.
grettir wrote:zazou wrote:Áhugaverður linkur: http://www.hallonorden.is/forside/ice/forside.aspx
Takk fyrir þennan link. Hann á eftir að koma sér vel. Grínlaust.
Eftir innan við 6 mánuði mun fjöldi atvinnu-/og eignalausra verða orðinn það mikill að stjórnvöld neyðast til að byrja að reyna að bjarga þeim með styrkjum eða frystingu á lánum. Það mun dempa aðeins ástandið en næstu 18 mánuði mun flest venjulegt fólk sem enn á eignir, vera búið að sjá á eftir þeim í afborganir eða lánin komin yfir veðhæfi og því bætast í hóp ölmusuþega, giska á 30% þjóðarinnar verði því komin á framfæri ríkisins eftir 2-3 ár með einum eða öðrum hætti.
Þeir sem eru ekki rígbundnir og hafa kost á, munu kjósa að flytja erlendis. Þetta er það fólk sem dregur vagninn, eftir verða farþegar. Þessi staðreynd mun aðeins auka fjölda ölmusuþega árið 2012 verðu þjóðarframleiðslan hér orðin einn fjórði af því sem hún á að vera, Ísland komið af top 10 niður í kringum 50.
Ef þið gúglið GDP þá var Ísland í fyrra með GDP $38.000 (10 sæti), í dag er það búið að helmingast og spá greiningardeildir frekari lækkun eftir því sem líður á fjórðunginn, ég giska á að við verðum komin undir $15.000 áður en yfir líkur. Þá erum við á sama stað og lönd eins og Guam-eyjar, Botswana, Króatía, Gabon, Pólland, Rússland auk ýmissa ey-smáríkja.
Þetta er kreppuverðbólgan í dag!
Heimild:
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_co ... y_GDP_(PPP)_per_capita
(ath, þarf að laga linkinn)

Eggert wrote:Ég mun færa mín viðskipti frá Kaupthing þegar ég kem heim í jólafrí, það er alveg klárt mál.
Eggert wrote:Ég mun færa mín viðskipti frá Kaupthing þegar ég kem heim í jólafrí, það er alveg klárt mál.
zazou wrote:Eggert wrote:Ég mun færa mín viðskipti frá Kaupthing þegar ég kem heim í jólafrí, það er alveg klárt mál.
Ég held að það sé ekkert að neinum banka eins og þeir eru í dag þannig séð, þarft ekkert að fara þaðan. BYR stendur reyndar LANG best, eiga HAUG af peningum en fyrrum risarnir 3 eru í ríkiseign svo að ef þér líkar við fólkið sem þú átt samskipti við þá þarftu ekki að breyta út af rekstrarstöðu.
Það er búið að skera krabbameinið í burtu, nú er bara að ná sér.
Users browsing this forum: No registered users and 17 guests