bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 19. Jun 2025 11:42

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 197, 198, 199, 200, 201, 202, 203 ... 246  Next
Author Message
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 14:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
krullih wrote:
Fannst mjög interesting að setja afskriftir þessara eingarhaldsfélaga í samhengi. T.d hjá félaga Halldóri, 2.4 milljarðar sem eru circa 7 milljónir afskrifaðar á hvern einasta einstakling á íslandi.

Vildi óska þess að ég hefði þekkinguna til að átta mig á því hvernig áhrif það myndi hafa á hagkerfið.


áhrifin á hagkerfið eru c.a. núll.

þetta eru ekki lán sem voru hátt metinn hjá nýju bönkunum þ.a. afskriftin lendir á erlendum kröfuhöfum.

Það er annars ekki verið að gefa neina peninga, þetta eru lán til félaga sem eru gjaldþrota og þar með eru lánin verðlaus og ber af afskrifa þau. Halldór er ekki að fá 2.4 ma í vasann.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 17:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Hvað var Halldór og co. að fjármagna með þessum lánum á sínum tíma?

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 17:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
bimmer wrote:
Hvað var Halldór og co. að fjármagna með þessum lánum á sínum tíma?

Það var náttúrulega ekki verið að afskrifa persónuleg lán hjá honum, heldur hjá skinney-þinganes, sem er í eigu fjölskyldu Halldórs. Án þess að ég viti það þá grunar mig kvótakaup,

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 18:55 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sat 05. May 2007 16:27
Posts: 225
fart wrote:
bimmer wrote:
Hvað var Halldór og co. að fjármagna með þessum lánum á sínum tíma?

Það var náttúrulega ekki verið að afskrifa persónuleg lán hjá honum, heldur hjá skinney-þinganes, sem er í eigu fjölskyldu Halldórs. Án þess að ég viti það þá grunar mig kvótakaup,


sem þau eru eru þá ef rétt er búin að veiða í nokkur ár allavega og borga sér gróðann af því í formi arðs úr fyrirtækinu og kaupa Range Rovera, fara til flórída, byggja hús, sumarbústaði og lifa þessu umtalaða 'good-life' fyrir peninginn. Þannig sé ég þetta fyrir mér og finnst þetta djöful skítt mál.

Minnir mig á lánin sem útrásargosarnir fengu til að kaupa bankana á sínum tíma. Búnir að greiða sér persónulega milljónir í hundraða og þúsunda tali úr bönkunum en ekki búnir að borga lánið sem þeir fengu fyrir bankanum á sínum tíma. Hvað varð um þá hugsun að taka lán og borga niður lánið þegar peningar voru til þess? Sá hugsunarháttur dó um leið og persónulegar ábyrgðir fyrir hlutum hættu að vera til staðar.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 18:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
batti wrote:
fart wrote:
bimmer wrote:
Hvað var Halldór og co. að fjármagna með þessum lánum á sínum tíma?

Það var náttúrulega ekki verið að afskrifa persónuleg lán hjá honum, heldur hjá skinney-þinganes, sem er í eigu fjölskyldu Halldórs. Án þess að ég viti það þá grunar mig kvótakaup,


sem þau eru eru þá ef rétt er búin að veiða í nokkur ár allavega og borga sér gróðann af því í formi arðs úr fyrirtækinu og kaupa Range Rovera, fara til flórída, byggja hús, sumarbústaði og lifa þessu umtalaða 'good-life' fyrir peninginn. Þannig sé ég þetta fyrir mér og finnst þetta djöful skítt mál.

Minnir mig á lánin sem útrásargosarnir fengu til að kaupa bankana á sínum tíma. Búnir að greiða sér persónulega milljónir í hundraða og þúsunda tali úr bönkunum en ekki búnir að borga lánið sem þeir fengu fyrir bankanum á sínum tíma. Hvað varð um þá hugsun að taka lán og borga niður lánið þegar peningar voru til þess? Sá hugsunarháttur dó um leið og persónulegar ábyrgðir fyrir hlutum hættu að vera til staðar.

Er ekki að fara að verja útrásavíkinga eða aðra, en þetta þarf samt að vera rétt. Ef þú ert að vísa í umræðu um að Samson hafi fengið lánað á sínum tíma fyrir kaupum á Landsbankanum og ekki borgað, þá var búið að staðfesta að það lán var greitt, þó svo að annað hafi verið tekið síðar.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 20:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
Zed III wrote:
ég er á því að það sé ekki gott move að fara í flatar lækkanir á lánum.

-Þetta mun kosta íbúðalánasjóð mikið og kalla á framlag frá ríkinu, væntanlega fjármagnað með meiri sköttum
-Þetta mun kosta lífeyrissjóðina mikið og skerða réttindi hjá gamla fólkinu
-Þetta mun kosta bankana en mér er nokkuð sama um þá

að auki er þetta afar flókið í meðförum eins og við sjáum með afleiðingar gengismálsdómanna.

ég held að það sé betra að auðvelda gjaldþrot fyrir þá sem eru í tómu rugli. Til dæmis leyfa einstakling að klára gjaldþrotameðferð á 6 mánuðum, en þetta mun þýða að þarf ekkert lyklafrumvarp og ekkert þarf að breyta samningum aftur í tímann, bara breyta gjaldþrotalögum.

Fyrir hina þá verður að keyra á einu breytuna sem við höfum eitthvað að segja, þ.e. launin og til þess að standa undir launahækkunum verðum við að keyra á verðmætasköðun og framleiðslu.

Til þess að fá fram þessa verðmætasköpun verður þessi stjórn að fara frá, bæði til að greiða fyrir atvinnuuppbyggingu og svo til að skapa stemmingu og framtíðarsýn sem fólk getur trúað á.


þjóðnýta lífeyrissjóðina. Nota peningin til að greiða niður skuldir ríkissjóðs og allir fá í staðinn ríkisskuldabréf sem getur svo erfst til barnanna þinna í stað þess að lífeyrissjóðurinn spili rassinn úr buxunum með peningana :thup:

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 20:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Aron Fridrik wrote:

þjóðnýta lífeyrissjóðina. Nota peningin til að greiða niður skuldir ríkissjóðs og allir fá í staðinn ríkisskuldabréf sem getur svo erfst til barnanna þinna í stað þess að lífeyrissjóðurinn spili rassinn úr buxunum með peningana :thup:


Þú talar eins og sannur sjálfstæðismaður,, :lol:

finnst þér ekki staðan vera nógu slæm þarna eftir ykkur suðurfrá......... eitt stk álver og ekki með orku til staðar :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 20:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
Alpina wrote:
Aron Fridrik wrote:

þjóðnýta lífeyrissjóðina. Nota peningin til að greiða niður skuldir ríkissjóðs og allir fá í staðinn ríkisskuldabréf sem getur svo erfst til barnanna þinna í stað þess að lífeyrissjóðurinn spili rassinn úr buxunum með peningana :thup:


Þú talar eins og sannur sjálfstæðismaður,, :lol:

finnst þér ekki staðan vera nógu slæm þarna eftir ykkur suðurfrá......... eitt stk álver og ekki með orku til staðar :shock:


fatta ekki kommentið.

ef ríkið þjóðnýtir lífeyrissjóðina. Á ríkið þá ?

það er ekki beint í hægri stefnu

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 10. Oct 2010 20:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
Alpina wrote:
Aron Fridrik wrote:

þjóðnýta lífeyrissjóðina. Nota peningin til að greiða niður skuldir ríkissjóðs og allir fá í staðinn ríkisskuldabréf sem getur svo erfst til barnanna þinna í stað þess að lífeyrissjóðurinn spili rassinn úr buxunum með peningana :thup:


Þú talar eins og sannur sjálfstæðismaður,, :lol:

finnst þér ekki staðan vera nógu slæm þarna eftir ykkur suðurfrá......... eitt stk álver og ekki með orku til staðar :shock:


Lífeyrissjóðir hafa nú þegar verið meira eða minna þjóðnýttir. Ríkisskuldabréf og innistæður eru að verða uppistaðan í lífeyrissjóðunum og þar með eru þeir að verða ríkisvæddir.

Sjóðirnir hafa ekki mátt kaupa neinar erlendar eignir undanfarið og einu möguleikarnir á nýfjárfestingum eru bréf með ríkisábyrgð.

Það verða að komast í gang framkvæmdir sem skila þjóðarbúinu tekjum.

Það er annars með æfintýralegum ólíkyndum að það sé að koma upp núna að það sé ekki til orka. Er það annars staðfest ?

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 12:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Jóhannes Björn:

"Tvö ár frá hruni og lítið sem ekkert hefur verið gert nema slá skjaldborg um kvótakónga og gangstera í bankakerfinu. Pólitísku skussunum hefur þó tekist að beina umræðunni í þann afstæðan farveg, að það sé eðlilegt að bjarga liðinu sem setti landið á hausinn á meðan endalaust sé reiknað út hvernig þolendur glæpsins skuli píndir. Hlutirnir gætu ekki verið öfugsnúnari.

Það var ekkert náttúrulögmál hvernig atburðirnir þróuðust. Það var ekkert eðlilegt lögmál að fjármagnseigendum skyldi bjargað og fólkinu sem stal fiskimiðum landsins hlíft á meðan heimilin voru kaffærð. Það var ekkert sjálfsagt við það að ráðast á tugþúsundir einstaklinga sem ekkert brutu af sér. Þetta voru pólitískar ákvarðanir. Núna er þetta sett upp eins og fastar stærðir sem þarf að reikna sig út úr—og það er bull.

Nýju bankarnir fengu fasteignalánin með góðum afslætti og þeim bar siðferðileg (ef ekki lagaleg) skylda til þess að afskrifa hluta þeirra. Þess í stað borguðu skilanefndir sjálfum sér ofurlaun og bankarnir héldu áfram að misnota aðstöðu sína. Strax í upphafi voru heimilin beitt hrikalegu óréttlæti þegar forsendubrestur lánasamninga var ekki viðurkenndur. Lánin voru ómerk eftir að glæpastarfsemi bankakerfisins hækkaði höfuðstólinn um helming, t.d. með því að taka stöðu á móti viðskiptavinum sínum þegar þeir felldu gegnið af ásettu ráði.

Fjórflokkurinn er dauður og sanngjarnir einstaklingar verða að sjá til þess að gripið verði til aðgerða sem tryggja framtíð landsins. Tími útreikninga er liðinn. Það skiptir engu máli hvað björgun heimila landsins kostar, aðgerðaleysi er ekki einu sinni valkostur í stöðunni. Í staðinn fyrir málþóf og útreikninga verður að setja hlutina í rétta forgangsröð.

Fólk sem á skuldlausar eignir og sparifé gæti freistast til þess að halda að vandi tugþúsunda heimila komi því lítið við, en með ríkjandi stefnu líður ekki langur tími þar til allir verða fátækari. Fólk sem hefur verið að bíða og vona er að missa máttinn og gífurlegur landsflótti tekur næst við. Sjáið hvað er nú þegar að gerast í Lettlandi og víðar. Best menntaða og hæfasta fólk yngri kynslóðanna er að flýja í stórum stíl. Blóðtakan er ólýsanleg fyrir atvinnulífið og framtíðar uppbyggingu nútíma atvinnugreina. Hagvöxtur verður minni en ella og tekjur ríkisins dragast saman í marga áratugi. Fasteignamarkaðurinn er í molum og verðfallið svimandi.

Ef pólitíska kerfinu á Íslandi og elítunni sem drottnar yfir því tekst að hrekja tugþúsundir úr landi er hagkerfið glatað. Fólk sem býr í sextíu milljóna húsi vaknar frekar fljótlega við þann vonda draum að húsið kostar nú þrjátíu milljónir—ef einhver álpast á að kaupa það—og peningarnir undir koddanum hafa verulega glatað gildi sínu. Gjaldeyrishöft verða varanleg í stöðnuðu hagkerfi og stéttaskiptingin óþolandi. Gjáin á milli ofurríkra og annarra þjóðfélagsþegna breikkar eðlilega þegar upprennandi máttarstólpar millistéttarinnar búa erlendis og elítan hefur unnið stríðið sem nú fer fram.

Forgangsröðin verður að vera rétt og við eigum raunverulega engra kosta völ. Það verður að leiðrétta skuldastöðu heimilanna strax. Allt annað er eins og skipa nefnd um afleiðingar þess að bjarga manni sem er að drukkna beint fyrir framan nefið á okkur. Það er enginn annar möguleiki í stöðunni. Með því að draga lappirnar erum við að halda á okkur hita með því að pissa í skóinn, en ef heimilin eru látin sökkva verða afleiðingarnar miklu verri séð til lengri tíma.

Það er hægt að afskrifa skuldir heimilanna, en sennilega er raunhæfari lausn að allir sem vilja geti gert tímabundinn samning þar sem skuldir eru afskrifaðar og einhvers konar kaupleiga tekur gildi. Það kemur í veg fyrir þá fáránlegu stöðu að tugþúsundir missi húsnæðið á markaði þar sem allt of mikið framboð er nú þegar verulegt vandamál. Kosturinn við kaupleigusamning af þessu tagi er sá (ef hann er t.d. gerður til 10 ára) að þótt lánastofnanir afskrifi skuldir á þessum krepputímum þá eiga þær góðan möguleika á að græða á sölu eignanna í betra árferði. Allir fá sitt. Fólk býr áfram í húsnæðinu og skuldar minna. Lánastofnanir spara sér kostnað við að henda fólki út á götu, hrekja viðskiptavini úr landi og endurselja eignirnar fyrir slikk. Eignirnar eru þá enn á bókum lánastofnana og hækka í verði þegar hagkerfið braggast.

Best væri sjálfsagt að þjóðnýta bankana aftur á meðan gengið er frá nýju kaupleigukerfi íbúðarhúsnæðis og kvótanum er skilað aftur til fólksins. Þessir tveir hlutir, skuldir heimilanna og gjöf fiskistofnanna til nokkra einstaklinga, eru Akkelísarhæll íslenska hagkerfisins. Bankakerfið mergsýgur báða þessa þætti og heldur sjálfsagt áfram á þeirri braut þar til ráðvandir einstaklingar taka í taumana."

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 12:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Margt gott í þessum pistli.

Það alvarlegasta sem gerist í þjóðfélagi/samfélagi er það þegar þegnarnir hætta að taka þátt í því. Þess vegna er með ólíkindum að það sé ekki búið að tækla skuldavanda heimilanna með einhverjum hætti. Það eina rétta í stöðunni er að setjast yfir það með hverjum og einum og sjá hvað viðkomandi getur borgað, ekki hvað hann vill borga. Það er fullt af fólki sem er enn í dag með ágætis vinnu og hefur þ.a.l. tök á því að borga, en í mörgum tilvikum hefur þetta verið í frystingu í marga mánuði. Sumir hafa jafnvel búið í húsum sínum í rúmt ár án þess að borga af því. Það er gríðarlega hættulegt.

Lykilatriði til þess að samfélagið gangi upp er að fólk borgi í klúbbinn, í gegnum skatta og fóðri lánin sín. Þegar menn hætta að gera það þarf að skerða þjónustu og hækka félagsgjaldið. Þetta er algjör vítahringur og mega letjandi á alla.

það sem Íslendingar þurfa líka að átta sig á er að það er fullt af fólki sem þarf EKKI hjálp, og það á ekki að hjálpa því, réttlátt eða ranglátt þá er það bara þannig sem samfélag virkar.

Þegar áföll dynja á samfélagi hjálpast menn að, sbr gosið fyrir stuttu, þá voru margir sjálfboðaliðar sem tókust á við að moka ösku. Sama þarf að gerast í þessu áfalli. Menn þurfa að hætta að velta fyrir sér hverjum þetta sé að kenna og reyna að koma þjóðfélaginu aftur á réttann kjöl.

Það sem þarf að gerast er:
1. fá fólk til að borga af húsinu sínu eins og það getur, það versta sem kemur fyrir samfélagið er þegar fólk missir vilja til að sörvera lánin sín. Það þarf að gera þetta að raunverulegum kosti fyrir fólk, dæmin eru mörg, mismunandi, og einhver general regla virkar ekki. Sumum er ekki hægt að hjálpa, því miður.
2. lækka skatta, bæði á fyrirtæki og einstaklilnga, fá fólk til að vilja vinna, fá fyrirtæki til að vilja ráða fólk í vinnu. Fá fólk til að leggja eitthvað til samfélagsins. það fæst ekki með því að hækka árgjaldið, því að þá hætta menn að borga, hvort sem það er með því að flytja úr landi eða með því að vinna svart.
3. lækka vexti hjá seðlabanka niður í nánast núll, til að þvinga bankana í að fara að lána peninga, til að kvetja einstaklilnga sem eiga pening til þess að setja þá í atvinnulífið.
4. hætta að tala á þeim nótum að það sé slæmt að vera ríkur, það er gott að vera ríkur, ríkt fólk ræður aðra í vinnu, sama hvort að það er í gegnum fyrirtæki sem efnað fólk kaupir/rekur, eða beint. Launin sem starfsmenn þeirra fá fara síðan áfram í gegnum kerfið og skapa atvinnu fyrir aðra.
o.s.frv.

Fólk sem þarf ekki hjálp þarf síðan að sætta sig við það að sumir munu fá meira en aðrir, og enn aðrir fá ekki neitt. Þannig er það bara, þannig er samfélag. Sumir borga mikið inn en fá lítið út.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 13:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Gallinn við að setjast niður með hverjum og einum er að það tekur óhemju tíma,
tíma sem við höfum ekki.

Svo er ekkert sjálfgefið að hrunið fari bara alveg framhjá lánveitendum, að þeir
fái allt sitt með vöxtum og verðtryggingu eins og að hrunið hafi bara ekki gerst.

Mikið nær að fara út í almennar aðgerðir til að deila tjóninu af hruninu réttlátar
heldur en að lántakandinn fái það allt á sig.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 13:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
http://www.deiglan.com/index.php?itemid=13300

fínn pistill

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 13:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Þó fyrr hefði verið!!!!!!

http://eyjan.is/2010/10/11/breytingar-f ... orum-arum/

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 13:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
bimmer wrote:
Gallinn við að setjast niður með hverjum og einum er að það tekur óhemju tíma,
tíma sem við höfum ekki.

Svo er ekkert sjálfgefið að hrunið fari bara alveg framhjá lánveitendum, að þeir
fái allt sitt með vöxtum og verðtryggingu eins og að hrunið hafi bara ekki gerst.

Mikið nær að fara út í almennar aðgerðir til að deila tjóninu af hruninu réttlátar
heldur en að lántakandinn fái það allt á sig.

Þú ert aðeins að misskilja mig, það þarf að afskrifa, en mismikið. Nákvæmlega eins og öllu önnur aðstoð við þegna landsins þá þarf hún að fara eftir því hversu mikla aðstoð þarf. Varðandi að tækla málin mann á mann þá er það vel hægt. Svona lagað tekur ekki nema nokkra klukkutíma á mann, og nóg er af þjónustufulltrúum, og lengi má bæta við. General lausnir virka ekki því að þá er líklegt að peningum sé sóað í þá sem þurfa ekkert á því að halda. Svona aðstoð þarf að fara eftir greiðslugetu. Launaháir þurfa ekki leiðréttingu í sama mæli og launalágir. Menn mæta með síðustu 3 launaseðla, skattframtalið eða álíka og svo er farið stuttlega yfir nauðsynleg útgjöld og lánið stillt af í takti við það.. EF það er hægt. það sem við höfum er tími, en ekki peninga.

Mér finnst t.d. glórulaust að ætla að lengja í lánum, húsnæðislán má ekki vera það langt að greiðandinn verðu líklega látinn áður en síðasta greiðsla fer fram. Það er ekki kvetjandi að vera með 50-60ára lán á bankinu.

Nú eru liðin tvö ár frá hruni, og sumir hafa búið í húsum sínum bróðurpartinn af þeim tíma án þess að greiða neitt. Það er fundimentally mjög slæmt fyrir alla.

BTW.... það er síðan ein leið sem er vel fær.. og það er að afnema rétt til að nýta skattalegt tap fyrirtækja, því að það virðist enginn hafa hugsað út í það að uppsafnað tap fyrirtækja á Íslandi er svo mikið að það er varla fyrirtæki á Íslandi sem á eftir að borga skatt næstu 2-3-4-5 árin.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 197, 198, 199, 200, 201, 202, 203 ... 246  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group