by fart » Mon 11. Oct 2010 12:32
Margt gott í þessum pistli.
Það alvarlegasta sem gerist í þjóðfélagi/samfélagi er það þegar þegnarnir hætta að taka þátt í því. Þess vegna er með ólíkindum að það sé ekki búið að tækla skuldavanda heimilanna með einhverjum hætti. Það eina rétta í stöðunni er að setjast yfir það með hverjum og einum og sjá hvað viðkomandi getur borgað, ekki hvað hann vill borga. Það er fullt af fólki sem er enn í dag með ágætis vinnu og hefur þ.a.l. tök á því að borga, en í mörgum tilvikum hefur þetta verið í frystingu í marga mánuði. Sumir hafa jafnvel búið í húsum sínum í rúmt ár án þess að borga af því. Það er gríðarlega hættulegt.
Lykilatriði til þess að samfélagið gangi upp er að fólk borgi í klúbbinn, í gegnum skatta og fóðri lánin sín. Þegar menn hætta að gera það þarf að skerða þjónustu og hækka félagsgjaldið. Þetta er algjör vítahringur og mega letjandi á alla.
það sem Íslendingar þurfa líka að átta sig á er að það er fullt af fólki sem þarf EKKI hjálp, og það á ekki að hjálpa því, réttlátt eða ranglátt þá er það bara þannig sem samfélag virkar.
Þegar áföll dynja á samfélagi hjálpast menn að, sbr gosið fyrir stuttu, þá voru margir sjálfboðaliðar sem tókust á við að moka ösku. Sama þarf að gerast í þessu áfalli. Menn þurfa að hætta að velta fyrir sér hverjum þetta sé að kenna og reyna að koma þjóðfélaginu aftur á réttann kjöl.
Það sem þarf að gerast er:
1. fá fólk til að borga af húsinu sínu eins og það getur, það versta sem kemur fyrir samfélagið er þegar fólk missir vilja til að sörvera lánin sín. Það þarf að gera þetta að raunverulegum kosti fyrir fólk, dæmin eru mörg, mismunandi, og einhver general regla virkar ekki. Sumum er ekki hægt að hjálpa, því miður.
2. lækka skatta, bæði á fyrirtæki og einstaklilnga, fá fólk til að vilja vinna, fá fyrirtæki til að vilja ráða fólk í vinnu. Fá fólk til að leggja eitthvað til samfélagsins. það fæst ekki með því að hækka árgjaldið, því að þá hætta menn að borga, hvort sem það er með því að flytja úr landi eða með því að vinna svart.
3. lækka vexti hjá seðlabanka niður í nánast núll, til að þvinga bankana í að fara að lána peninga, til að kvetja einstaklilnga sem eiga pening til þess að setja þá í atvinnulífið.
4. hætta að tala á þeim nótum að það sé slæmt að vera ríkur, það er gott að vera ríkur, ríkt fólk ræður aðra í vinnu, sama hvort að það er í gegnum fyrirtæki sem efnað fólk kaupir/rekur, eða beint. Launin sem starfsmenn þeirra fá fara síðan áfram í gegnum kerfið og skapa atvinnu fyrir aðra.
o.s.frv.
Fólk sem þarf ekki hjálp þarf síðan að sætta sig við það að sumir munu fá meira en aðrir, og enn aðrir fá ekki neitt. Þannig er það bara, þannig er samfélag. Sumir borga mikið inn en fá lítið út.
E36 M3GTtt