batti wrote:drolezi wrote:Í dag, hálfum mánuði seinna, er ekkert bréf komið. Ég hringdi því í SP og fékk það svar að ég ætti að eiga von á bréfinu um mánaðamótin. Það ætti að líða fljótt enda komið sumarfrí...
Þessar fregnir fékk ég fyrir örugglega mánuði síðan að ég ætti von á bréfi og gat konan sem ég ræddi við hjá SP ekki gefið mér nánari upplýsingar þar sem hvert lán fyrir sig væri í einhverskonar reikningsferli, skiljanlega enda misjafn hvaða lausnir hver og einn hefur nýtt sér. En mér skildist að ég ætti von á endurgreiðslu og hef ég dundað mér á að reikna það út og ætti ég að fá ca. 300.000kr fyrir rang greiddar afborganir auk leiðréttingar á því sem ég greiddi þegar lánið var greitt upp við sölu á bílnum. En hún gat ekkert staðfest neitt og gaf mér loðin langlokusvör um hvernig og hvenær þetta myndi allt gerast og fann ég að hún var ekkert rosalega vel upplýst um málið á þessu tíma. Ekki mun ég borga fullan skatt af þessari endurgreiðslu með bros á vör ef hún verður að veruleika. Trúi því ekki að það geti orðið svoleiðis
enda væri mjög furðulegt ef að þú ættir að borga skatt af þessari endurgreiðslu
þar sem að það var jú búið að borga skatt af þessum peningum í upphafi.



