Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Hér skal spjalla um BMW.

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby urban » Sun 20. Jun 2010 01:50

batti wrote:
drolezi wrote:Í dag, hálfum mánuði seinna, er ekkert bréf komið. Ég hringdi því í SP og fékk það svar að ég ætti að eiga von á bréfinu um mánaðamótin. Það ætti að líða fljótt enda komið sumarfrí...

Þessar fregnir fékk ég fyrir örugglega mánuði síðan að ég ætti von á bréfi og gat konan sem ég ræddi við hjá SP ekki gefið mér nánari upplýsingar þar sem hvert lán fyrir sig væri í einhverskonar reikningsferli, skiljanlega enda misjafn hvaða lausnir hver og einn hefur nýtt sér. En mér skildist að ég ætti von á endurgreiðslu og hef ég dundað mér á að reikna það út og ætti ég að fá ca. 300.000kr fyrir rang greiddar afborganir auk leiðréttingar á því sem ég greiddi þegar lánið var greitt upp við sölu á bílnum. En hún gat ekkert staðfest neitt og gaf mér loðin langlokusvör um hvernig og hvenær þetta myndi allt gerast og fann ég að hún var ekkert rosalega vel upplýst um málið á þessu tíma. Ekki mun ég borga fullan skatt af þessari endurgreiðslu með bros á vör ef hún verður að veruleika. Trúi því ekki að það geti orðið svoleiðis

enda væri mjög furðulegt ef að þú ættir að borga skatt af þessari endurgreiðslu
þar sem að það var jú búið að borga skatt af þessum peningum í upphafi.
urban
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 321
Joined: Sun 29. Mar 2009 03:01

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby batti » Mon 21. Jun 2010 12:45

urban wrote:

Einmitt þess vegna.

Ég trúi samt ýmsu upp á menn Skattagríms og hafa oft ótrúlegir hlutir verið skattlagðir að mínu mati, eins og happdrættisvinningar og allskyns verðlaunafé þó svo að þeir peningar sem notaðir voru við kaup á tilteknu happadrætti hafi verið keyptir fyrir peninga sem búið var að borga skatt af. Það finnst mér alveg jafn vitlaust, þó svo það meigi frekar deila um það heldur en að skattfrelsi endurgreiðslana (ef þær verða)
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby batti » Tue 06. Jul 2010 22:48

http://www.dv.is/frettir/2010/7/6/margi ... ns-og-fme/

Einhverjir virðast vera sáttir við þessi tilmæli en hvað eiga þeir við að fólk vilji ganga frá samningum sínum við fyrirtækið?

Eiga þeir við að fólkið vilji þessa leiðréttingu á höfuðstólnum og hafa vextina sem FME og Seðlab. mæltu með að yrðu notaðir? Hverjir voru þeir vextir á þessu tímabili? Eru þeir tilbúnir að gera upp við viðskiptavini um ofgreiddar fjárhæðir í afborganir og þegar lántakendur borguðu upp þessi ólöglegu lán? Ég átti alltaf að fá e-ð bréf um mánaðarmótin sem mér var sagt talsvert löngu áður en dómurinn mikli féll
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby Hemmi » Tue 06. Jul 2010 22:56

batti wrote:http://www.dv.is/frettir/2010/7/6/margir-sattir-med-tilmaeli-sedlabankans-og-fme/

Einhverjir virðast vera sáttir við þessi tilmæli en hvað eiga þeir við að fólk vilji ganga frá samningum sínum við fyrirtækið?

Eiga þeir við að fólkið vilji þessa leiðréttingu á höfuðstólnum og hafa vextina sem FME og Seðlab. mæltu með að yrðu notaðir? Hverjir voru þeir vextir á þessu tímabili? Eru þeir tilbúnir að gera upp við viðskiptavini um ofgreiddar fjárhæðir í afborganir og þegar lántakendur borguðu upp þessi ólöglegu lán? Ég átti alltaf að fá e-ð bréf um mánaðarmótin sem mér var sagt talsvert löngu áður en dómurinn mikli féll

Ekki trúiru því sem þessi maður segir?

Hvernig er hægt að vera ánægður með það að fá seðlabankavextina í staðinn? Sem voru einhverntímann um 20%.

Efast um að nokkur maður með sellurnar í lagi sé að fara borga þessa vexti á meðann enginn er lögbundinn til þess, ég ætla allavega bara að borga mína Jen og Franka vexti þangað til dæmt er um annað.

Höfuðstóllinn lækkar allavega ekki eins mikið með seðlabankavöxtunum. Þessvegna er fráleitt að vera að gera upp lánin núna, annaðhvort eru þau gerð upp með þeim vöxtum sem samið var um eða fyrirtækin geta étið það sem úti frýs þangað til dómsniðurstaða fæst.
User avatar
Hemmi
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1045
Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Location: Spánn

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby drolezi » Thu 08. Jul 2010 13:04

Höfuðstóllinn hjá mér lækkaði um 1.6M með seðlabankavöxtunum. Annars fæ ég muninn á þessu á hreint á morgun þegar sparnadur.is reiknar það út fyrir mig.
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby Zed III » Thu 08. Jul 2010 13:51

ætli ég fái ekki rukkun frá lánafyrirtækinu mínu.

Ég greiddi mitt lán upp þegar vísitalan var í 150 og ef þeir slengja einhverjum seðlabankavöxtum á lánið fæ ég sennilega bara rukkun frekar en endurgreiðslu.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby drolezi » Wed 28. Jul 2010 00:34

Jæja.

Þá kom héraðsdómurinn um að seðlabankavextir skuli standa. Ég er ágætlega sáttur með það.
Samkvæmt því mun SP þurfa að endurgreiða mér ca 2M. Munurinn á seðlabankavöxtunum og upprunalegu vöxtunum er eitthvað um 300-400þ.

Ég sendi því SP póst og bað þá formlega um að endurgreiða mér í samræmi við fallna dóma og tilmæli FME og SB. Einnig bað ég um upplýsingar um hvaða vextir hefðu verið í gildi hjá mér þar sem það var ekki tekið fram í bílasamningnum sem ég hafði undir höndum.

Fékk ég þetta svar:
Ágæti viðtakandi.

Eftir tilmæli frá Seðlabanka Íslands og FME um endurútreikning erlendra lána bárust hófst vinna við að endurreikna öll erlend lán SP-Fjármögnunar hf. Öll lán sem falla innan fyrningarfrests verða endurreiknuð, hvort sem að þau eru enn virk eða uppgreidd. Sé um uppgreitt lán að ræða og hafi félagið ofreiknað greiðslur skv. nýgengnum dómi Hæstaréttar og tilmælum Seðlabankans og FME um endurútreikning þeirra (sjá http://www.fme.is/?PageID=14&NewsID=550) þá verður það sem ofgreitt var af hálfu skuldara endurgreitt. Slíkt mun þó taka nokkurn tíma og biðjum við fólk því að sýna okkur biðlund. Um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir munum við upplýsa viðskiptavini okkar á heimasíðu SP, www.sp.is.

Í þínu tilfelli var um að ræða LIBOR 1 M. vexti á CHF og JPY ásamt 3,55% vaxtaálagi.

Bestu kveðjur,
SP-Fjármögnun hf.

Núna hefst biðin enn einu sinni...
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby batti » Wed 28. Jul 2010 18:38

drolezi wrote:
Núna hefst biðin enn einu sinni...

Já nú er bara að vona að fyrirtækin verði ekki farin í þrot þegar kemur að skuldardögum til að flækja málin enn frekar.

Mig langar að forvitnast aðeins, hvenær tókst þú lánið þitt og hvenær greiddiru lánið upp að fullu?
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby batti » Thu 05. Aug 2010 15:03

agalega finnst manni Lýsing alltaf koma illa út úr umfjöllun um þessi erlendu lán öll og innheimtuaðgerðir og aðfarir í tenglslum við þau.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/0 ... rotid_log/
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby MrManiac » Sat 14. Aug 2010 11:11

Þeir gjaldfella öll þessi lán og setja fólk í þá stöðu að þurfa að greiða upp lánið eða semja um það aftur á þeirra skilmálum.

Þessi skrípaleikur sem er orðinn um þetta er alveg ótrúlegur.

Lýsing er líka farinn að dæla tækjum og bílum úr landi á félag sem þeir stofnuðu sjálfir.
Leifist mér að giska á að þeir séu að skjóta undan eigum áður enn félagið verður sett í gjaldþrot.
Jeeo Grand SRT-8
BMW 740I E38
BMW 730I E38
BMW 540 E39 sma M+LSD
BMW 530D E39
MMC 3000GT SL
MMC 3000GT VR-4
User avatar
MrManiac
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 365
Joined: Sat 15. Nov 2003 20:38

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby bimmer » Sat 14. Aug 2010 11:43

MrManiac wrote:Þeir gjaldfella öll þessi lán og setja fólk í þá stöðu að þurfa að greiða upp lánið eða semja um það aftur á þeirra skilmálum.

Hvaða heimild hafa þeir til þess ef lánið er í skilum?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby Tommi Camaro » Sun 15. Aug 2010 09:39

bimmer wrote:
MrManiac wrote:Þeir gjaldfella öll þessi lán og setja fólk í þá stöðu að þurfa að greiða upp lánið eða semja um það aftur á þeirra skilmálum.

Hvaða heimild hafa þeir til þess ef lánið er í skilum?

kallast það ekki forsendabrestur, að lánið standist ekki lög ?
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby bimmer » Sun 15. Aug 2010 15:29

Tommi Camaro wrote:
bimmer wrote:
MrManiac wrote:Þeir gjaldfella öll þessi lán og setja fólk í þá stöðu að þurfa að greiða upp lánið eða semja um það aftur á þeirra skilmálum.

Hvaða heimild hafa þeir til þess ef lánið er í skilum?

kallast það ekki forsendabrestur, að lánið standist ekki lög ?

Lánið sem slíkt hefur ekki verið dæmt ólöglegt - einungis sá þáttur að
tengja upphæðina við dagsgengi erlendra gjaldmiðla.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby drolezi » Fri 20. Aug 2010 03:21

batti wrote:
drolezi wrote:
Núna hefst biðin enn einu sinni...

Já nú er bara að vona að fyrirtækin verði ekki farin í þrot þegar kemur að skuldardögum til að flækja málin enn frekar.

Mig langar að forvitnast aðeins, hvenær tókst þú lánið þitt og hvenær greiddiru lánið upp að fullu?

Ef ég man þetta rétt þá tók ég lánið í mars 2008 og greiddi það upp í júlí 2009.
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Re: Lýsing ein eftir af okurlánafyrirtækjunum

Postby Zed III » Tue 24. Aug 2010 09:12

Ég átti erindi við Lýsingu áðan út af láni sem er á bíl.

Ég sagðist vilja kaupa bílinn en hefði ekki áhuga á láninu. Daman í símanum sagði mér að eina leiðin væri að lánið yrði flutt á annan bíl eða greitt upp, sem er ekki óeðlilegt í sjálfu sér nema hvað þeir eru ekki búnir að gera neinar leiðréttingar á þessum lánum eftir dóminn. Þeir geta ekki sagt mér hver staðan á láninu er miðað við dóma sem hafa fallið og stöðuna í dag.

Hún vildi ekki mæla með því að greiða lánið upp og eiga kröfu á Lýsingu fyrir leiðréttingunni.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 56 guests