Heyrðu kæliviftan í 540i bílnum mínum sem er 1999 módel (e39) fer stundum (frekar oft) að snúast svo sjúklega hratt að fólk heldur að ég sé að fara að fljúga.
Stundum fæ ég meldinguna í mælaborðið "check coolant level" og ég tel mig hafa fyllt rétt á vatnið og tappað loftið af.
Kannast einhver við þetta og hvað er til ráðs ?
ps. Ég las einhverntímann á bimmerfest spjallinu að kælikerfið (coolant system) í þessum bílnum fara yfirleitt að gefa sig eftir 100.000 mílur. Bíllinn minn er keyrður 164þús - en ofhitnar samt ekki.

