e39 540i - viftan fer alveg á milljón!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

e39 540i - viftan fer alveg á milljón!

Postby geirisk8 » Sat 29. May 2010 18:40

Heyrðu kæliviftan í 540i bílnum mínum sem er 1999 módel (e39) fer stundum (frekar oft) að snúast svo sjúklega hratt að fólk heldur að ég sé að fara að fljúga.

Stundum fæ ég meldinguna í mælaborðið "check coolant level" og ég tel mig hafa fyllt rétt á vatnið og tappað loftið af.

Kannast einhver við þetta og hvað er til ráðs ?

ps. Ég las einhverntímann á bimmerfest spjallinu að kælikerfið (coolant system) í þessum bílnum fara yfirleitt að gefa sig eftir 100.000 mílur. Bíllinn minn er keyrður 164þús - en ofhitnar samt ekki.
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: e39 540i - viftan fer alveg á milljón!

Postby slapi » Sat 29. May 2010 21:04

Vertu viss um að hann sé ekki að tapa vatninu.
Ef að viftan fer strax í gang við að bíll sé settur í gang jafnvel kaldur getur verið bilun í hitaskynjara á neðri kælivatnsshosunni.
Hitamælirinn gefur þér voðalega litla hugmynd hvað er að gerast með hitann á vélinni í raun og veru þar engar hitasveiflur koma inn á hann.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: e39 540i - viftan fer alveg á milljón!

Postby geirisk8 » Sat 29. May 2010 21:44

Já sko til að vera nákvæmari að þá lætur bíllinn fínt að öllu leyti fyrir utan þetta. Þegar bíllinn er að hita sig upp þá er allt í góðu en það er ekki fyrr en að vélin er orðin heit þar sem viftan fer í gang. Ég er búinn að kanna þetta nokkuð vel og komst að því að þegar ég er að keyra virðist vélin ekki hitna (vegna þess að loft fer inn um grillið ?) en þegar bíllinn er kyrrstæður vill viftan fara mjög oft í gang og fer alveg á fullan snúning. Þá verður rosa mikil læti í henni!

Ef skynjarinn er ekki í lagi, getur það orsakað það að viftan fer á fullt í að reyna að kæla vélina (þó að það sé kannski ekki eins nauðsynlegt og virðist) ?
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: e39 540i - viftan fer alveg á milljón!

Postby BMW_Owner » Thu 03. Jun 2010 23:13

geirisk8 wrote:Já sko til að vera nákvæmari að þá lætur bíllinn fínt að öllu leyti fyrir utan þetta. Þegar bíllinn er að hita sig upp þá er allt í góðu en það er ekki fyrr en að vélin er orðin heit þar sem viftan fer í gang. Ég er búinn að kanna þetta nokkuð vel og komst að því að þegar ég er að keyra virðist vélin ekki hitna (vegna þess að loft fer inn um grillið ?) en þegar bíllinn er kyrrstæður vill viftan fara mjög oft í gang og fer alveg á fullan snúning. Þá verður rosa mikil læti í henni!

Ef skynjarinn er ekki í lagi, getur það orsakað það að viftan fer á fullt í að reyna að kæla vélina (þó að það sé kannski ekki eins nauðsynlegt og virðist) ?


jamm :thup:

samt er þetta nú yfirleitt af "réttri" ástæðu sem hún fer í gang
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58

Re: e39 540i - viftan fer alveg á milljón!

Postby Nice1 » Wed 09. Jun 2010 04:20

Auxilary Fan ætti með öllu réttu að fara í gang ef að viftukúplingin feilar... sennilega væri nóg að skipta um hana og þá heyriru þetta ekki fyrr en að hún fer næst :)
540 seldur, er að bíða eftir drauma M5!
Nice1
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 70
Joined: Tue 26. Jan 2010 08:03
Location: Keilir, Vallarheiði

Re: e39 540i - viftan fer alveg á milljón!

Postby geirisk8 » Wed 09. Jun 2010 13:28

Ég er búinn að komast að því hvað er að. Það er smá leki alveg efst við litla tappann sem maður notar til að tappa loftinu af kælikerfinu og þar afleiðandi er ekki nóg vatn eftir nokkra daga noktun sem veldur því að rafmagnsviftan fer á fullt í að reyna að kæla (alveg óeðlilega hratt)

Ég komst að þessu og gerði tilraun. Ég fyllti vatnið og tappaði burt loftið, leyfði vélinni að ganga heitri og tók eftir því að þegar viftan fór af stað þá hljómaði hún eðlilega.

Ég þarf að taka boxið úr sem maður hellir vatninu í og skoða hvers vegna lekinn er, hugsanlega þarf ég að kaupa nýtt.
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests