Jafnmargar mismunandi skoðanir og við erum hérna inni á þessu spjallborði

þó eru flestir sammála um mikilvægi þess að skipta út gömlu skónum, við geymum hvorki reimarnar né innleggið. Menn eru enn að eyða tíma í það að finna pólítískan sökudólg, allir flokkarnir eiga vini í einhverri bankastofnuninni og þetta fólk hittist í laxveiði og á fundum hérlendis sem erlendis. Er þetta þá orðið spursmál um það hver er duglegastur að benda og hrópa?
Hvert ferðu ef vélin gefur sig....Kistufell til dæmis

eða til Einars áttavillta ef bíllinn þinn hljómar ekki nógu karlmannlega. Þegar að ríkisstjórnin þín hefur hjálpað bönkunum að hylja yfir yfirvofandi efnahagslegar hörmungar....hvert ferðu þá? Þegar að þú hefur verið svikinn af fólkinu sem þú kaust á þing, þegar að kallinn í brúnni hefur misnotað þitt sparifé til að fjármagna sitt einkasvall....hvað gerirðu þá?
Ég vona að fólk falli ekki í þessa gildru, að trúa því að einhver einn flokkur hafi barasta ekki haft hugmynd um hvað væri í vændum. Að framsókn eða VG séu bara alveg "blanco" þegar að allt fór til andskotans, setja upp einhvern aulasvip eins og kreppan hafi komið aftan að þeim og slegið þau í hnakkann. NEGRI VINSAMLEGAST !
Mér er alveg sama hvað ráðamenn segja, burt með ykkur og þá gildir einu hvort þið eruð lasin eður ei....hvort þið eruð blá, græn eða rauð.
BURT
Nýtt blóð, án persónulegra hagsmuna eða tengsla við fyrri stjórn eða yfirmenn bankanna. Þeir mega koma frá Póllandi eða Portúgal fyrir mér, bara að þeir fatti hversu alvarlegt þetta er og hvað ÞARF að gera.
Virðingarfyllst.