Stanky wrote:Og þessi tugga með að það sé heimskreppa.... bíddu... hvaða lönd eru það sem skuldsetja sig mörg hundruð jafnvel þúsund prósent meira en landsframleiðsla? Er það kannski heimskreppunni að kenna? Getum við ekki bara kennt Che Guevara um þetta allt saman? Það er EKKERT land sem er að fara jafn illa útur þessu og Ísland (correct me if i'm wrong).
Við skulum nú ekki mála ástandið svartara en það er. Ríkið er ekki að skuldsetja sig um 1000% af landsframleiðslu.
Samkvæmt Moody´s þá verður nettó skuldsetning ríkisins árið 2009 um 94% af landsframleiðslu (brúttó skuldirnar eru auðvitað hærri, tæplega 150% af VLF samkvæmt Moody´s).
Íslenska ríkið verður því eitt það skuldugasta í heiminum en auk þess eru íslensk heimili með þeim skuldsettustu í heiminum.
En það er alveg rétt að það hefur ekkert ríki farið eins illa út úr heimskreppunni og Ísland, því er t.d. spáð að landsframleiðsla dragist saman um 10% á Íslandi árið 2009 á meðan því er spáð að landsframleiðsla dragist saman um 0,1% - 1,5% á hinum Norðurlöndunum.





