bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 06:30

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 32 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

Hvaða flokk?
Framsóknarflokkinn 8%  8%  [ 8 ]
Frjálslyndaflokkinn 1%  1%  [ 1 ]
Samfylking 5%  5%  [ 5 ]
Sjálfstæðisflokkinn 20%  20%  [ 19 ]
Vinstri Græna 7%  7%  [ 7 ]
Óákveðin 39%  39%  [ 38 ]
Skila auðu 15%  15%  [ 15 ]
Annað - hvað? 4%  4%  [ 4 ]
Total votes : 97
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 23. Jan 2009 22:47 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Stanky wrote:
Og þessi tugga með að það sé heimskreppa.... bíddu... hvaða lönd eru það sem skuldsetja sig mörg hundruð jafnvel þúsund prósent meira en landsframleiðsla? Er það kannski heimskreppunni að kenna? Getum við ekki bara kennt Che Guevara um þetta allt saman? Það er EKKERT land sem er að fara jafn illa útur þessu og Ísland (correct me if i'm wrong).


Við skulum nú ekki mála ástandið svartara en það er. Ríkið er ekki að skuldsetja sig um 1000% af landsframleiðslu.
Samkvæmt Moody´s þá verður nettó skuldsetning ríkisins árið 2009 um 94% af landsframleiðslu (brúttó skuldirnar eru auðvitað hærri, tæplega 150% af VLF samkvæmt Moody´s).

Íslenska ríkið verður því eitt það skuldugasta í heiminum en auk þess eru íslensk heimili með þeim skuldsettustu í heiminum.

En það er alveg rétt að það hefur ekkert ríki farið eins illa út úr heimskreppunni og Ísland, því er t.d. spáð að landsframleiðsla dragist saman um 10% á Íslandi árið 2009 á meðan því er spáð að landsframleiðsla dragist saman um 0,1% - 1,5% á hinum Norðurlöndunum.

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 23. Jan 2009 23:15 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Zyklus wrote:
Gæti ekki hugsað mér að kjósa neinn af núverandi flokkum.
Það þarf að verða algjör endurnýjun á þingi. Jafnvel breyta kosningakerfinu þannig að maður kjósi menn í stað flokka.
Annars myndi ég vilja sjá nýjan flokk hægra megin við miðju með nýju skynsömu og trúverðugu fólki.

Mér finnst reyndar alveg stórfurðulegt þegar fólk segist ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn aftur, það er eins og fólk sé fastaáskrifendur að flokknum enda hef ég sagt að flokkurinn minnir meira á trúarkölt en stjórnmálaflokk.
Svo finnst mér alveg hlægilegt þegar fólk talar um að Geir sé svo frábær leiðtogi þrátt fyrir að maðurinn hafi hundsað allar viðvaranir alveg fram að hruni (hver man ekki eftir því þegar Geir kom fram sunnudagskvöldið fyrir setningu neyðarlaganna og sagði að það væri ekki ekki þörf á neinum aðgerðum...) og hafi ekki kjark í sér til að segja upp fjármálaráðherra, viðskiptamálaráðherra, stjórn SÍ og Fjármálaeftirlitsins sem er algjörlega nauðsynlegt til að byggja upp einhvern trúverðugleika.
Ég hef allavega ekki séð nein rök fyrir því afhverju Geir sé svona frábær leiðtogi...
Sjálfstæðisflokkurinn ber mesta ábyrgð á mesta efnahagsklúðri Íslands fyrr og síðar og því finnst mér það hreint út sagt óskiljanlegt hvernig fólk getur treyst þessum flokki áfram.

(Og plíííís ekki koma með þau „mótrök“ að VG séu ekkert skárri, þó ég styðji ekki Sjálfstæðisflokkinn þá er ekki þar með sagt að ég styðji VG, þetta eru þau allra kjánalegustu og einfeldningslegustu „mótrök“ sem hægt er að hugsa sér...)


Þorgerður Katrín verður vonandi næsti formaður og stokkar þennan flokk upp.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 23. Jan 2009 23:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
JonHrafn wrote:
Þorgerður Katrín verður vonandi næsti formaður og stokkar þennan flokk upp.

Ég held að þú þurfir á endurmenntun að halda...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 00:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
Steini B wrote:
JonHrafn wrote:
Þorgerður Katrín verður vonandi næsti formaður og stokkar þennan flokk upp.

Ég held að þú þurfir á endurmenntun að halda...


Ég hló :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 01:04 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Ég mun skila auða eins og ég hef gert seinustu árin. Enda ekkert almennilegt í boði

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 01:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég vil ekki sjá neinn sem,.


Er atvinnupólitíkus , því lengra því verra.....

Pólitíkus sem er ekki með menntun við hæfi....

Er á einhvern hátt tengdur því fólki sem hefur áður átt eða stjórnað stærstu bönkum/fjármálastofnunum íslands. Sem og fjölmiðlum íslands eða á nokkurn hátt er skilt þeim sem hafa beint stjórnað áður nefndum stofnunum og fyrirtækjum og eru viðriðin þessi útrásar viðskipti um að selja sjálfum sér hluti og kaupa svo aftur með annarra manna peningum til að eingöngu hagnast á því sjálf.

Ég vil sjá ný andlit sem eru ekki enn menguð af siðspillingu sem íslensk fjármál og stjórnmál bera með sér. Og að þessi andlit hafi vit í því að ráða sem flesta fræðinga á þeim sviðum sem þarfnast áhættu mikla ákvarðanna á næstu mánuðum.

Ég vil sjá að fremstu hagfræðingar, þjóðhagfræðingar, og fólk af svipuðu reki sé notað bókstaflega til að aðstoða ríkið í ákvarðanna töku, mér er sama þótt þetta fólk fái ekki borgað einn aur fyrir vinnu sína, það myndi ég frekar telja það þjóðlega skildu þess að sækjast í þessi verkefni til að aðstoða fjölskyldur sínar og ættingja og vini og vandamenn.
Ég meina í alvöru, hver hérna myndi ekki vinna streitulaust í margar mánuði ef það gæti hjálpað íslensku hagkerfi af einhverri alvöru??????????????????

Ég sé á engann hátt að fáeinir stjórnmála menn með "nokkra" hagfræðinga á speed dial geti fundið upp á aðgerðum sem munu aðstoða íslenska þegna.

Mér persónulega gæti ekki verið meira sama um stjórnmála menn yfir höfuð,
Ég vil sjá íslenska ríkisborgara komast útúr þessu á sem bestann hátt. Fyrir þjóðina,
Heildin yfir fámennann hópin..

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 09:28 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Steini B wrote:
JonHrafn wrote:
Þorgerður Katrín verður vonandi næsti formaður og stokkar þennan flokk upp.

Ég held að þú þurfir á endurmenntun að halda...


Núhh


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 11:24 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það er alltof snemmt að segja eitthvað til um hvað maður muni kjósa - set því óákveðinn.

En hinsvegar þá er ekki heldur rétt að skella skuldinni bara á D. S og B bera talsverða sök líka því það má ekki gleyma því að þetta eru þeir flokkar sem hafa verið ráðandi í íslenskri pólitík síðustu árin og hafa sterkustu ítökin í atvinnulífinu og það var auðvitað atvinnulífið - útrásin sem setti þjóðina á hausinn á meðan stjórnvöld og eftirlitsstofnanir litu undan.

Þeir sem halda að allt muni lagast með nýju fólki í flokkunum eiga eftir að verða fyrir vonbrigðum. Það þarf nýtt fólk í framlínuna nánast allsstaðar: í pólitík, embættismannakerfi og fremstu línu atvinnulífsins.

Ástæða þess að stjórnvöld gripu svo ekki inn í má líklega finna í hugmyndafræðilegri aðferðafræði. Það er sama ástæðan fyrir því að stjórnvöld í öðrum löndum eins og USA, UK, Írlandi, Spáni, Ítalíu, Grikklandi, Eystrasalstslöndunum svo nokkur séu nefnd, brugðust ekki heldur við.

Ísland er minnsta hagkerfið og fljótast að aðlagast. Það gæti vel farið svo að önnur ríki muni koma verr út úr heimskreppunni en Ísland þegar staðan verður tekin eftir eitt til tvö ár. Það er t.d. vandséð að sjá hvernig lönd eins og Írland og UK muni glíma við gríðarlegt tekjutap vegna þjónustugeirans, hafandi skorið niður framleiðslugeirann í áratugi. Þessi þjóðfélög eru meira baseruð á neyslu en okkar (fyrir utan síðustu 4-5 ár kannski) og þjóðfélög byggð á neyslu munu fara verst út úr kreppunni. Sem betur fer vorum við ekki búin að vera mjög lengi á fylleríinu.

Kerfið sem hefur verið notað "globally" og var dyggilega stutt af þessum þremur flokkum heima (D, S og B) er gallað af því leitinu til að trúin á fyrirtækin og það vald sem þeim var leyft að hafa í krafti fjármagns er hættulegt og á kostnað ríkisvaldsins. Nú hef ég alltaf álitið mig hægri mann. En það sem hefur eiginlega staðið upp úr í þessu er að á meðan fyrirtæki hafa bara eitt markmið (að græða pening) þá eiga þau ekki að vera svona valdamikil. Völdum fylgir ábyrgð og í raun hefði fyrirtækjum aldrei átt að leyfast að hafa svona mikil völd, nema bera sömu samfélagslegu ábyrgð og við "hinar kennitölurnar" í samfélaginu. M.ö.o. stórfyrirtækjum ætti að bera skylda til að skapa atvinnu og tekjur til lengri tíma fyrst og fremst, hagnað númer tvö sem sjálfsagða afleiðingu af því að sinna skyldum sínum sem "þegn". Ég sé ekki afhverju kennitala fyrirtækis á að vera stikkfrí frá siðferðislegri ábyrgð á meðan ég sit uppi með mína kennitölu alla ævi og þá bletti sem kunna að koma á hana á lífsleiðinni.

Þetta hefur í raun lítið með vinstri og hægri að gera - bara formið á því hvernig valdi er komið fyrir og hvað fylgir því.

Það þarf því miklu meiri breytingar en bara pólitískar og enn er ekki neinn að krefjast breytinga í atvinnulífinu að neinu ráði. Við munum því fá kosningar í vor, nýjan meirihluta að öllum líkindum en útrásarvíkingarnir verða enn á sínum stað með öll tögl og haldir - hvað heldur fólk að muni breytast? Það verður nýtt fólk að gæta sömu hagsmuna og áður.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 12:50 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Mon 05. Mar 2007 00:58
Posts: 156
Tek undir það sem síðasti ræðumaður sagði.

Þó svo að ég sé nú ekki að benda sökinni eingöngu á einn flokk, þá finnst mér sorglegt hvað fólk er fljótt að gleyma hversu ósvífnir framsóknarmenn hafa verið. Eftir þessar hremmingar hafa þeir gengið út úr þessum bönkum og stóru fyrirtækjum sem "stýrðu landinu" með framvarðarsveit lögfræðinga í fararbroddi gegn FME og Seðlabankanum og gengu út með milljarða, EFTIR að allt draslið hrundi.

Hreiðar Már fv. forstjóri Kaupþings: framsóknarmaður.

Sigurður Einarsson fv stjórnarformaður Kaupþings: framsókarmaður.

Ólafur Ólafsson stærsti eigandi Samskipa gegnum Kjalar(sem var 10% hluthafi gamla Kaupþigns), einnig meðlimur í S-hópnum sem eingaðist Búnaðarbankann á sínum tíma: framsókarmaður

Finnur Ingólfsson, fv. stjórnarformaður icelandair group(seldi 15,5% hlut í því félagi 2007 á genginu 31,5 þegar markaðsverð var 27,2) og fv. forstjóri VÍS og stjórnarformaður þess síðar(gekk út úr því félagi með nokkra milljarða), einnig meðlimur í S-hópnum svokallaða. Saga hans er einfaldelga of löng til að rifja upp hér: framsóknarmaður.

Bjarni Ármannson, fv. forstjóri Glitnis banka(þar sem hann gekk út með milljarða, kvittaði pent undir og sagði: "Screw you guys, I´m going home!!!) og síðar stór spilari í flókna REI-GGE málinu þar sem Bjarni Ármansson ásamt fleiri framsóknarmönnum ætlaði að sölsa undir sig eign almennings úr Orkuveitu Reykjavíkur(það gekk ekki eftir, en hann græddi þó vaxtarkostnað af nokkur hundruð milljónum vegna samningsins): einnig framsóknarmaður.

Ég gæti haldið áfram að telja, en ég bara held að enginn mundi nenna að lesa þetta.

Ef fólki hugnast að kjósa þetta yfir sig áfram, þá verður það bara að eiga það við sjálft sig. Svona inngróin spilling er ekki að fara að breytast út af einum manni.

_________________
750iL E38


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 14:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Það þarf að ígrunda valið

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 19:43 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Þetta eru einhverjar mikilvægustu kosningar sem lýðveldið Ísland hefur staðið frammi fyrir.. en þó, ef engin ný andlit með nýjar lausnir fara að spretta upp hratt og virðast raunhæfur kostur þá skipta þær litlu máli.

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 20:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Jafnmargar mismunandi skoðanir og við erum hérna inni á þessu spjallborði :) þó eru flestir sammála um mikilvægi þess að skipta út gömlu skónum, við geymum hvorki reimarnar né innleggið. Menn eru enn að eyða tíma í það að finna pólítískan sökudólg, allir flokkarnir eiga vini í einhverri bankastofnuninni og þetta fólk hittist í laxveiði og á fundum hérlendis sem erlendis. Er þetta þá orðið spursmál um það hver er duglegastur að benda og hrópa?

Hvert ferðu ef vélin gefur sig....Kistufell til dæmis :) eða til Einars áttavillta ef bíllinn þinn hljómar ekki nógu karlmannlega. Þegar að ríkisstjórnin þín hefur hjálpað bönkunum að hylja yfir yfirvofandi efnahagslegar hörmungar....hvert ferðu þá? Þegar að þú hefur verið svikinn af fólkinu sem þú kaust á þing, þegar að kallinn í brúnni hefur misnotað þitt sparifé til að fjármagna sitt einkasvall....hvað gerirðu þá?
Ég vona að fólk falli ekki í þessa gildru, að trúa því að einhver einn flokkur hafi barasta ekki haft hugmynd um hvað væri í vændum. Að framsókn eða VG séu bara alveg "blanco" þegar að allt fór til andskotans, setja upp einhvern aulasvip eins og kreppan hafi komið aftan að þeim og slegið þau í hnakkann. NEGRI VINSAMLEGAST !

Mér er alveg sama hvað ráðamenn segja, burt með ykkur og þá gildir einu hvort þið eruð lasin eður ei....hvort þið eruð blá, græn eða rauð.

BURT

Nýtt blóð, án persónulegra hagsmuna eða tengsla við fyrri stjórn eða yfirmenn bankanna. Þeir mega koma frá Póllandi eða Portúgal fyrir mér, bara að þeir fatti hversu alvarlegt þetta er og hvað ÞARF að gera.




Virðingarfyllst.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 20:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
Ég ætla að kjósa mig enda er ég eigingjarn

_________________
Suzuki Sidekick 33" 1977


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 21:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
IngóJP wrote:
Ég ætla að kjósa mig enda er ég eigingjarn


Ja eg ætla að kjosa þig lika, nenniru að gera mig að þingmanni með 600.000 kall a manuði og eg þarf ekki að gera neitt? :shock:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 24. Jan 2009 21:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
gunnar wrote:
IngóJP wrote:
Ég ætla að kjósa mig enda er ég eigingjarn


Ja eg ætla að kjosa þig lika, nenniru að gera mig að þingmanni með 600.000 kall a manuði og eg þarf ekki að gera neitt? :shock:


Geri það

_________________
Suzuki Sidekick 33" 1977


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 32 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 44 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group