Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bebecar » Thu 13. Nov 2008 12:23

Stanky wrote:
bebecar wrote:Þú þarft nú aðeins að prófa að anda í gegnum nefið Stanky.

Ég sagði að fólkið í okkar landi væri ekkert öðruvísi en annarsstaðar. Spilling ræðst af því stjórnkerfi sem við búum til fyrst og fremst. Það þarf að laga stjórnkerfið og lagaramman. Þannig losnar þú við spillingu. Þú losnar ekki við hana með því að færa stjórnina yfir í annað batterí sem er líka spillt.

Ég held ég hafi meira að segja sagt þetta nokkrum sinnum.

Og ég held ég hafi heldur ekki sagt að á Íslandi væri engin spilling.

Þú ert komin í algjör rök þrot með þetta.

Þú varst rétt áðan að segja að Íslendingar gætu ekki ráðið sér sjálfir því þjóðfélagið væri svo spillt vegna þess að það væri svo lítið.

Ég er bara að spyrja hvernig þú kemst að þeirri niðurstöðu. Ég, og t.d. Transparency International, viljum meina að það sé stjórnskipanin sem ráði þessu. Fólk er flest eins innst inni.


Ég er alveg poll rólegur, ég skrifa bara svona, eins og ég sé mega æstur :).

Það er nú eins gott að það séu ekki allir sammála, því annars væri þessi þráður ekki til.


Það er gott. Það er reyndar alveg full ástæða til að vera æstur. En það er bara þetta með að stimpla heila þjóð sem fer dálítið í mig og skiptir þá skiptir litlu hvort um er að ræða Íslendinga eða aðra.

Það hefur lengi verið vitað að það þarf að laga stjórnkerfið á Íslandi og ég held að miklu leiti sé því um að kenna hvernig fyrir okkur er komið í dag - þ.e.a.s. hve langt þetta fór allt saman.

Vel fúnkerandi land er það land sem er með gegnsætt og skilvirkt stjórnkerfi.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby grettir » Thu 13. Nov 2008 12:25

Sko, að bera saman kvóta á óveiddum fiski og jarðir sem bændur búa á er dáldið eins og bera saman epli og appelsínur.

Ef bóndinn hefði ekki þurft að borga fyrir jörðina upphaflega, en gæti leigt hana út á hverju ári og selt hana fyrir tugi eða hundruði milljóna svo þegar hann hættir búskap, þá væri þetta sambærilegt.
Bóndinn borgaði upphaflega fyrir jörðina. Það er munur þar á.

Spurt er, hverjum var kvótinn gefinn?

Hann var gefinn þeim sem voru að stunda veiðar á þeim tíma þegar kvótinn var settur á. Þeir sem komu nýjir inn eftir það þurftu að leigja eða kaupa af þeim ef þeir ætluðu að stunda fiskveiðar.

Að þessu leyti er kerfið gallað. Úthlutunin á að vera á hverju ári til þeirra sem eru að stunda fiskveiðar á hverjum tíma og vera óframseljanleg og óleigjanleg.

Það er óskiljanlegt að eitthvað skúffufyrirtæki geti átt milljarða virði í kvóta á óveiddum fiski. Það heftir verulega stöðu þeirra sem ætla að koma nýjir inn í fagið.

Og fyrst að menn eru svona að láta vita af því hvernig skapi menn eru við skrifin - því það sést kannski ekki á tölvuskjá, þá er ég í ágætis skapi. Nokkuð reiður út í stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi og dugleysi, en að öðru leyti í nokkuð góðu jafnvægi. Er jafnvel að spá í að fá mér bjór um helgina :lol:
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby bimmer » Thu 13. Nov 2008 12:28

Varðandi kvótann þá eru nú bara ekki allir sem samþykkja það að
nokkurra ára veiðisaga áður en kerfið var sett á skuli hafa myndað
eignarrétt á kvótanum.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Thu 13. Nov 2008 12:38

Svo er eitt sem mér hefur alltaf fundist skondið. Það er álit almennings á því hvað skuli gera..

"Hvað finnst þér um þetta mál?" (skiptir í raun engu hvað málefnið er)
"Jahh, það þarf að gera eitthvað í þessu og það strax!"

Það virðast alltaf allir gera sagt þessa setningu í öllum viðtölum en enginn hefur hugmynd um hvað þetta "ekkert" er. Nema kannski jú þessa dagana eiga um það bil ALLIR að segja af sér.. Það virðist eina lausnin samkvæmt viðtölum við fólk úti á götu..

Ekki veit ég hvað skal gera frekar en næsti maður. Enda væri löngu búið að redda þessu ef það væri auðveld leið útúr þessu. En svona setningar hafa alltaf farið í taugarnar á mér.. "Það þarf bara að gera eitthvað" eins og þessir menn sitji bara inni á skrifstofu með vindil og koníak og séu ekkert að spá í þessu..:)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Thu 13. Nov 2008 12:42

User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby gstuning » Thu 13. Nov 2008 12:48



Vel að orði komið þarna :)
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby bebecar » Thu 13. Nov 2008 13:08

gstuning wrote:


Vel að orði komið þarna :)


Fyndið að menn séu loksins byrjaðir að tala um stöðuna eins og hún er. Ekki hægt að andmæla miklu sem þarna er sagt.

Fyrsta skrefið verður kannski stigið núna, að koma sér út úr afneitun á ástandinu.

Þá er loksins hægt að taka næsta skref og reyna að leysa vandann.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Thrullerinn » Thu 13. Nov 2008 14:22

bebecar wrote:
gstuning wrote:


Vel að orði komið þarna :)


Fyndið að menn séu loksins byrjaðir að tala um stöðuna eins og hún er. Ekki hægt að andmæla miklu sem þarna er sagt.

Fyrsta skrefið verður kannski stigið núna, að koma sér út úr afneitun á ástandinu.

Þá er loksins hægt að taka næsta skref og reyna að leysa vandann.


Samt kúl að reyna stærsta kennitölusvindl Íslands fyrr og síðar :lol:

..eða .. kannski ekki því við þurfum að borga einhverjar millur
fyrir þetta per haus
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bimmer » Thu 13. Nov 2008 14:31

Thrullerinn wrote:
Samt kúl að reyna stærsta kennitölusvindl Íslands fyrr og síðar :lol:

..eða .. kannski ekki því við þurfum að borga einhverjar millur
fyrir þetta per haus


Ertu þá að miða við að ekkert fáist fyrir eignir bankans?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Thu 13. Nov 2008 14:32

Thrullerinn wrote:
bebecar wrote:
gstuning wrote:


Vel að orði komið þarna :)


Fyndið að menn séu loksins byrjaðir að tala um stöðuna eins og hún er. Ekki hægt að andmæla miklu sem þarna er sagt.

Fyrsta skrefið verður kannski stigið núna, að koma sér út úr afneitun á ástandinu.

Þá er loksins hægt að taka næsta skref og reyna að leysa vandann.


Samt kúl að reyna stærsta kennitölusvindl Íslands fyrr og síðar :lol:

..eða .. kannski ekki því við þurfum að borga einhverjar millur
fyrir þetta per haus


Já þetta er nefnilega ekkert annað en ríkis-kennitöluflakk!!!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby bebecar » Thu 13. Nov 2008 19:51

Stanky wrote:
bebecar wrote:
Thrullerinn wrote:
einarsss wrote:http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/13/samningar_um_icesave_eina_leidin/

Jæja ... þá er búið að kúga Ísland til að gera upp skuldir sem hefðu átt að fara fyrir dómstóla!

Djöful er ég pisst núna :evil:


jæja, þá verðum við bara að beygja okkur eftir sápunni....


Ég sá í einhverri umræðu loksins að menn eru að átta sig á því að það eru í raun bara tvær leiðir í stöðunni, bæta allar inneignir jafnt eins og ég sagði hérna áður og þá ótakmarkað, eða bara upp að maxi.

Það er svo annað mál hvort að hægt sé að semja eitthvað um að maxið sé dekkað með eignum Landabankans sem væri að mínu mati besta lausnin.

Hinsvegar held ég að EU sýni einfaldlega sitt rétta andlit þarna. Lítil þjóð eins og Ísland á aldrei eftir að geta gætt sinna hagsmuna í ríkjasambandi við þessar stóru þjóðir.




Ísland á ekkert erindi lengur að halda sínu eigin alþingi jafnvel, það sést bara mjög vel á því hversu ótrúlega spillt þessi þjóð er. Sonur fyrrv. borgarstjóra sem átti yfir 3 milljarða í KB, og er líklega laus við skuldahalann?




kveðja,
haukur


Mér var bent á að sonur borgarstjórans (Villa Vill þ.e.a.s) heitir Baldur Vilhjálmsson. Ég var beðinn um að koma þessu á framfæri, það er, þessi Ingvar Vilhjálmson sem ég held að þú sért að vísa í er ekki sonur Villa Vill.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Stanky » Thu 13. Nov 2008 19:55

My bad :) :oops:
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Zyklus » Fri 14. Nov 2008 14:46

Jón Steinsson doktor í hagfræði hittir naglann á höfuðið:

Í síðustu viku voru ný bankaráð skipuð yfir nýju ríkisbönkunum. Svo virðist sem nýju bankaráðin hafi verið skipuð á pólitískum en ekki faglegum forsendum. Með fullri virðingu fyrir því fólki sem er í þessum nýju bankaráðum þá held ég að enginn telji að þarna fari þegar á heildina er litið þeir aðilar sem eru best til þess fallnir að gæta þeirra gríðarlegu hagsmuna sem skattgreiðendur hafa af rekstri nýju bankanna. Margt af þessu fólki virðist ekki hafa nokkra einustu reynslu af bankastarfsemi.

Það er vitaskuld engin nýlunda á Íslandi að fagleg sjónarmið víki fyrir flokkspólitík þegar ráðið er í stöður hjá ríkinu. Á undanförnum vikum höfum við byrjað að súpa seyðið af þessu svo um munar. Er nema von að allt sé að fara til fjandans á Íslandi þegar trekk í trekk er gengið fram hjá hæfasta fólki landsins og afdankaðir stjórnmálamenn, skyldmenni þeirra og aðrir flokkshestar eru ráðnir í margar helstu stöður innan ríkisins.

Ráðning Davíðs Oddssonar í stöðu Seðlabankastjóra er gott dæmi. Aðgerðir hans og ummæli á síðustu vikum og mánuðum hafa gert það að verkum að fjöldi erlendra stórblaða hefur birt greinar sem hæðast að honum og hæðast í leiðinni að íslensku þjóðinni.

Við þurfum að lifa með afleiðingum pólitískra ráðninga ekki bara í Seðlabankanum heldur einnig í dómskerfinu, lögreglunni, utanríkisþjónustunni, heilbrigðiskerfinu, ráðuneytunum, ríkisstofnunum, ríkisfyrirtækjum og víða annars staðar. Við líðum öll fyrir þessar ráðningar á hverjum degi þótt það sé ekki augljóst nema þegar allt ef komið í óefni.

Annað sem við höfum ekki efni á lengur er að þeir sem standa sig ekki í starfi komist hjá því að segja af sér eða vera settir af. Það er nánast engin hefð fyrir því að embættismenn og stjórnmálamenn segi af sér á Íslandi. Einu dæmin um slíkt hafa með smámál að gera eins og bílakaup, laxveiði og nú síðast að reyna að koma höggi á samherja. En þegar hundruð milljóna tapast og nú í seinni tíð hundruð milljarða gerist ekkert. Meira að segja George Bush þurfti á endanum að láta Donald Rumsfeld, Michael Brown og Alberto Gonzales fara. Á Íslandi hefðu þessir menn setið sem fastast.

Við erum fámenn þjóð og því kemur oft upp sú staða að langhæfasti aðilinn til einhvers verks er í röngum flokki. Við þurfum nauðsynlega hugarfarsbreytingu í þessum efnum. Við höfum ekki efni á því að ganga fram hjá hæfasta fólkinu þegar kemur að stjórn mikilvægustu stofnana landsins.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby bebecar » Fri 14. Nov 2008 16:16

Já, hann gerir það - ég held því miður að við séum ennþá langt frá því að menn fari að hegða sér skikkanlega. Líklegast þarf meiri mótmæli og svo breytingar á flokkunum innan frá. Það gæti mögulega gerst.

En annars, varðandi Icesave, þá heyrir maður nefndar tölur um að það vanti 200 milljónir Evra upp á að eignirnar dekki þetta. Við hvað er miðað þar veit ég hinsvegar ekki.

EN það væri hinsvegar alveg hægt að lifa við að borga þá upphæð.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby gstuning » Fri 14. Nov 2008 16:46

Svo er það annað,

Hvernig fer fyrir hlutum af bankarnir á íslandi fara að stækka og dafna vel?
"við" eigum þá, ætti það ekki á endanum að koma landanum vel?
Þegar ríkið selur þá svo.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 35 guests