Sko, að bera saman kvóta á óveiddum fiski og jarðir sem bændur búa á er dáldið eins og bera saman epli og appelsínur.
Ef bóndinn hefði ekki þurft að borga fyrir jörðina upphaflega, en gæti leigt hana út á hverju ári og selt hana fyrir tugi eða hundruði milljóna svo þegar hann hættir búskap, þá væri þetta sambærilegt.
Bóndinn borgaði upphaflega fyrir jörðina. Það er munur þar á.
Spurt er, hverjum var kvótinn gefinn?
Hann var gefinn þeim sem voru að stunda veiðar á þeim tíma þegar kvótinn var settur á. Þeir sem komu nýjir inn eftir það þurftu að leigja eða kaupa af þeim ef þeir ætluðu að stunda fiskveiðar.
Að þessu leyti er kerfið gallað. Úthlutunin á að vera á hverju ári til þeirra sem eru að stunda fiskveiðar á hverjum tíma og vera óframseljanleg og óleigjanleg.
Það er óskiljanlegt að eitthvað skúffufyrirtæki geti átt milljarða virði í kvóta á óveiddum fiski. Það heftir verulega stöðu þeirra sem ætla að koma nýjir inn í fagið.
Og fyrst að menn eru svona að láta vita af því hvernig skapi menn eru við skrifin - því það sést kannski ekki á tölvuskjá, þá er ég í ágætis skapi. Nokkuð reiður út í stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi og dugleysi, en að öðru leyti í nokkuð góðu jafnvægi. Er jafnvel að spá í að fá mér bjór um helgina

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn