Stanky wrote:bebecar wrote:Þú þarft nú aðeins að prófa að anda í gegnum nefið Stanky.
Ég sagði að fólkið í okkar landi væri ekkert öðruvísi en annarsstaðar. Spilling ræðst af því stjórnkerfi sem við búum til fyrst og fremst. Það þarf að laga stjórnkerfið og lagaramman. Þannig losnar þú við spillingu. Þú losnar ekki við hana með því að færa stjórnina yfir í annað batterí sem er líka spillt.
Ég held ég hafi meira að segja sagt þetta nokkrum sinnum.
Og ég held ég hafi heldur ekki sagt að á Íslandi væri engin spilling.
Þú ert komin í algjör rök þrot með þetta.
Þú varst rétt áðan að segja að Íslendingar gætu ekki ráðið sér sjálfir því þjóðfélagið væri svo spillt vegna þess að það væri svo lítið.
Ég er bara að spyrja hvernig þú kemst að þeirri niðurstöðu. Ég, og t.d. Transparency International, viljum meina að það sé stjórnskipanin sem ráði þessu. Fólk er flest eins innst inni.
Ég er alveg poll rólegur, ég skrifa bara svona, eins og ég sé mega æstur.
Það er nú eins gott að það séu ekki allir sammála, því annars væri þessi þráður ekki til.
Það er gott. Það er reyndar alveg full ástæða til að vera æstur. En það er bara þetta með að stimpla heila þjóð sem fer dálítið í mig og skiptir þá skiptir litlu hvort um er að ræða Íslendinga eða aðra.
Það hefur lengi verið vitað að það þarf að laga stjórnkerfið á Íslandi og ég held að miklu leiti sé því um að kenna hvernig fyrir okkur er komið í dag - þ.e.a.s. hve langt þetta fór allt saman.
Vel fúnkerandi land er það land sem er með gegnsætt og skilvirkt stjórnkerfi.


