ValliFudd wrote:
Þetta virðist rekið eins og lager án verkstjóra.. Þessir anskotans feluleikir verða að hætta.. Það er allt leyndó og enginn má vita, og þegar hlutir fréttast út þykjast þeir aldrei vita neitt. En ef hann vissi virkilega ekki af þessu er hann alls enginn verkstjóri/forsætisráðherra.. Á hann ekki að vera einhvurs konar verkstjóri annars?
Það hefur bara sýnt sig og sannað undanfarna mánuði að þessir menn virðist ekki vita neitt um það sem þeir eru að gera. Það vantar allt sem heitir agi þangað. Enginn ber ábyrgð á neinu sem gerist og enginn veit neitt um neitt. wtf?
Því miður þá er þessi lýsing þín alveg sorglega sönn.
http://visir.is/article/20081107/FRETTIR01/922553764Quote:
Geir Haarde forsætisráðherra segist ekki gera ráð fyrir því að atvinnuleysi geti farið í 10% hér í lok næsta árs eins og spá Seðlabankans geri ráð fyrir. „Það er nú hlutur sem við munum gera allt til að afstýra. Það er reyndar miklu hærri tala en við höfum séð í þessu, þannig að ég þarf nú að gera athugasemd við það," segir Geir. Geir segir að spá Seðlabankans sé svartari en hann hafði reiknað með. Hann segir von á annarri spá frá fjármálaráðuneytinu og að Alþýðusamband Íslands hafi birt sínar horfur.
„Við vitum það vel að það er að verða hérna mikið efnahagslegt áfall, með miklu falli á þjóðarframleiðslunni sem hefur mikil áhrif á afkomu ríkissjóðs, atvinnuleysistölurnar og verðbólguna. En þetta mun breytast og það segir líka í öllum þessum spám að um leið og við munum koma fót að nýju undir krónuna með nýju gengi að þá gengur verðbólgan hratt niður og þá fara aðrir hlutir að ske," segir Geir. Hann segist búast við því að strax á árinu 2010 verði hægt að sjá nýja stöðu þar sem framleiðslan eykst, störfum fjölgi og tekjur ríkisins aukist. Forsendan fyrir þessu öllu sé hins vegar að klára þau mál sem eru nú á borði ríkisstjórnarinnar.
Geir segir að afgreiðsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á lánsumsókn Íslendinga sé ekki í neinni pattstöðu. Peningar frá Norðurlöndunum þurfi ekki að vera fastir í hendi heldur einhverskonar fyrirheit um að þeir muni koma. „Aðalmálið fyrir þá sem ætla að lána okkur er að við erum í góðu samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og það er lögð fram hérna trúverðug efnahagsáætlun," segir Geir um stöðuna. Hann hefur áður sagt að ástæðan fyrir því að afgreiðsla sjóðsins á málinu hefði dregist vegna þess að fjármögnun frá Norðurlöndunum væri ekki lokið. „Við þurfum að fá 6 milljarða bandaríkjadollara, en þetta eru ekki peningar sem þurfa að koma sama daginn," segir Geir. Hann segist ekki búast við því að tafirnar sem hafi orðið á afgreiðslu á láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hafi áhrif á önnur lán.
Þá ítrekar Geir að þeir 6 milljarðar bandaríkjadala sem verða teknir að láni séu ekki lán til eyðslu heldur sé lánið hugsað til þess að koma krónunni á flot.
Þar sem Geir er fínn contrarian indicator þá má líklegast hækka þessa tölu töluvert...
Svo talar Geir um að nýta eigi lánin til að koma krónunni á flot. Það þýðir væntanlega að nota á lánsféð til að kaupa krónur. Ég held að það yrðu ein skelfilegustu mistök sem hægt væri að gera að eyða lánsfénu í ónýta krónu.