Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby arnibjorn » Fri 07. Nov 2008 14:35

Easy strákar.. gefiði þeim smá breik..

Þeir eru á fullu að reyna finna útúr þessari flækju og skítaklessu sem að bankarnir komu okkur í. Það er ekki eins og þetta séu einhverjir aular sem að vita ekkert hvað þeir eru að gera.. þetta er bara erfitt og það er ekkert að fara gerast einn tveir og þrír.

Allir þessir ráðamenn eru með marga menn undir sér og allir eru þeir eflaust með góða menntun og allir að reyna hjálpast að og gera sitt besta.

Þó svo að það sé kreppa og allt í steik þá finnst mér það ekkert gagnast að drulla yfir allt og alla og segjast bara vilja fá nýja menn og nýja menn..

Hvaða menn viljiði þá fá til að stjórna þessu??

Það er ENGINN sem að getur bara komið inn núna og reddað málunum.. skiptir engu hvort hann sé íslenskur eða erlendur..

Nema kannski John McClane.. hann gæti reddað þessu.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Zyklus » Fri 07. Nov 2008 14:37

ValliFudd wrote:Þetta virðist rekið eins og lager án verkstjóra.. Þessir anskotans feluleikir verða að hætta.. Það er allt leyndó og enginn má vita, og þegar hlutir fréttast út þykjast þeir aldrei vita neitt. En ef hann vissi virkilega ekki af þessu er hann alls enginn verkstjóri/forsætisráðherra.. Á hann ekki að vera einhvurs konar verkstjóri annars?

Það hefur bara sýnt sig og sannað undanfarna mánuði að þessir menn virðist ekki vita neitt um það sem þeir eru að gera. Það vantar allt sem heitir agi þangað. Enginn ber ábyrgð á neinu sem gerist og enginn veit neitt um neitt. wtf?


Því miður þá er þessi lýsing þín alveg sorglega sönn.

http://visir.is/article/20081107/FRETTIR01/922553764

Geir Haarde forsætisráðherra segist ekki gera ráð fyrir því að atvinnuleysi geti farið í 10% hér í lok næsta árs eins og spá Seðlabankans geri ráð fyrir. „Það er nú hlutur sem við munum gera allt til að afstýra. Það er reyndar miklu hærri tala en við höfum séð í þessu, þannig að ég þarf nú að gera athugasemd við það," segir Geir. Geir segir að spá Seðlabankans sé svartari en hann hafði reiknað með. Hann segir von á annarri spá frá fjármálaráðuneytinu og að Alþýðusamband Íslands hafi birt sínar horfur.

„Við vitum það vel að það er að verða hérna mikið efnahagslegt áfall, með miklu falli á þjóðarframleiðslunni sem hefur mikil áhrif á afkomu ríkissjóðs, atvinnuleysistölurnar og verðbólguna. En þetta mun breytast og það segir líka í öllum þessum spám að um leið og við munum koma fót að nýju undir krónuna með nýju gengi að þá gengur verðbólgan hratt niður og þá fara aðrir hlutir að ske," segir Geir. Hann segist búast við því að strax á árinu 2010 verði hægt að sjá nýja stöðu þar sem framleiðslan eykst, störfum fjölgi og tekjur ríkisins aukist. Forsendan fyrir þessu öllu sé hins vegar að klára þau mál sem eru nú á borði ríkisstjórnarinnar.

Geir segir að afgreiðsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á lánsumsókn Íslendinga sé ekki í neinni pattstöðu. Peningar frá Norðurlöndunum þurfi ekki að vera fastir í hendi heldur einhverskonar fyrirheit um að þeir muni koma. „Aðalmálið fyrir þá sem ætla að lána okkur er að við erum í góðu samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og það er lögð fram hérna trúverðug efnahagsáætlun," segir Geir um stöðuna. Hann hefur áður sagt að ástæðan fyrir því að afgreiðsla sjóðsins á málinu hefði dregist vegna þess að fjármögnun frá Norðurlöndunum væri ekki lokið. „Við þurfum að fá 6 milljarða bandaríkjadollara, en þetta eru ekki peningar sem þurfa að koma sama daginn," segir Geir. Hann segist ekki búast við því að tafirnar sem hafi orðið á afgreiðslu á láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hafi áhrif á önnur lán.

Þá ítrekar Geir að þeir 6 milljarðar bandaríkjadala sem verða teknir að láni séu ekki lán til eyðslu heldur sé lánið hugsað til þess að koma krónunni á flot.


:roll:

Þar sem Geir er fínn contrarian indicator þá má líklegast hækka þessa tölu töluvert...

Svo talar Geir um að nýta eigi lánin til að koma krónunni á flot. Það þýðir væntanlega að nota á lánsféð til að kaupa krónur. Ég held að það yrðu ein skelfilegustu mistök sem hægt væri að gera að eyða lánsfénu í ónýta krónu.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby bebecar » Fri 07. Nov 2008 16:03

Ég er nú reyndar ekki sammála því að krónan sem slík sé ónýt. En hagstjórninni hefur hinsvegar verið verulega ábótavant og við getum ekki spilað okkur stór út í heimi með krónunni.

Ef við hefðum haft evru, þá hefði skuldsetning bankanna líklega gengið mun lengra með enn alvarlegri afleiðingum.

Ég veit ekki alveg hvort ég treysti Geir í að leysa úr þessum vanda en það er samt vandséð að sjá hverjir aðrir gæti komið að þessu af þeim þingmönnum sem við eigum í dag.

Hinsvegar, þá er helsti galli Geirs að vera ekki með daglega upplýsingagjöf og hann á auðvitað að hætta þessu pukri! Þetta er alveg regla númer eitt í krísustýringu (en hana lærði ég í BA náminu) að það er bara einn maður sem talar í krísu og hann talar á hverjum degi!

Svo er það algjörlega af og frá að IMF fari fram á að stjórnin fari frá. Slíkar vangaveltur eru bara vangaveltur og ekkert annað. IMF myndi aldrei fara fram á slíkt, þaðan af síður þegar um er að ræða hægri stjórn.

Hinsvegar má vel vera að IMF geri kröfu um breytingar í Seðlabankanum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby ValliFudd » Fri 07. Nov 2008 16:13

Last edited by ValliFudd on Fri 07. Nov 2008 16:48, edited 2 times in total.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby JónP » Fri 07. Nov 2008 16:45

arnibjorn wrote:Nema kannski John McClane.. hann gæti reddað þessu.


Sammála
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby bebecar » Fri 07. Nov 2008 16:50



Það gæti nefnilega meira en vel verið - en klaufalegt samt.

Reyndar horfir þetta kannski örlítið öðruvísi við ef Pólverjar hafa sjálfir frumkvæðið að þessu. Vel gert hjá þeim að rétta okkur hjálparhönd!

Og það er svo fyndið, að bara það að fá einhverjar fréttir reglulega lætur manni líða aðeins betur. Fólk þarf að vita að það sé verið að vinna í málunum.

Leyfa þeim að klára dæmið og svo á að kjósa á ný!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby ValliFudd » Fri 07. Nov 2008 16:55

Ótrúlega spes að lesa fyrstu blaðsíðurnar í þessum þræði.. Þetta virðist vera að rætast t.d.. Skrifað í Mars..

Thrullerinn wrote:Svolítið skondið, ég fann í gær gamalt blað inni í vegg heima hjá mér..
Þetta var Þjóðviljinn, dagsettur einhverntímann árið 1985, á forsíðunni var
sagt frá hópi ungs fólks mótmælandi því að hafa misst íbúðirnar sínar.

23. ár síðan.. spurning hvort þetta endurtaki sig?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Fri 07. Nov 2008 17:09

Það er ágætt að kunna söguna - hún endurtekur sig alltaf.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby íbbi_ » Fri 07. Nov 2008 19:38

ég hef nákvæmlega 0% traust á ríkisstjórnini, það er fullt af hæfu fólki til að taka við, við núverandi aðstæður vildi ég sjá valinn hóp mentaðs fólks í einhverju samhengi við störfin sem þau eru settu í,taka við stýrinu

ég er ánægur með að IMF hafi frestað láninu, að þeim ástæðum að ég vill ekki sjá IMF hérna,

ég kíkti á mótmæli um daginn og var frekar óánægður með hvað það er verið að troða mikilli vinstri stefnu og kommatittum inn í þetta,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby shadow » Sat 08. Nov 2008 21:08

arnibjorn wrote:Easy strákar.. gefiði þeim smá breik..

Þeir eru á fullu að reyna finna útúr þessari flækju og skítaklessu sem að bankarnir komu okkur í. Það er ekki eins og þetta séu einhverjir aular sem að vita ekkert hvað þeir eru að gera.. þetta er bara erfitt og það er ekkert að fara gerast einn tveir og þrír.


Image


JAMM, þeir eru alveg önnum kafnir!
shadow
Kassabílstjóri
 
Posts: 137
Joined: Mon 25. Jun 2007 09:37

Postby arnibjorn » Sat 08. Nov 2008 21:19

shadow wrote:
arnibjorn wrote:Easy strákar.. gefiði þeim smá breik..

Þeir eru á fullu að reyna finna útúr þessari flækju og skítaklessu sem að bankarnir komu okkur í. Það er ekki eins og þetta séu einhverjir aular sem að vita ekkert hvað þeir eru að gera.. þetta er bara erfitt og það er ekkert að fara gerast einn tveir og þrír.


Image


JAMM, þeir eru alveg önnum kafnir!


Haha.. svo awesome dans.

Móðir mín vinnur í fjármálaráðuneytinu og spurði hana hvað væri í gangi þar..

Þú hittir naglann á höfuðið "Shadow"... allir að dansa.. Borat style! :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby ValliFudd » Mon 10. Nov 2008 12:07

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/10/framtidarsyn_i_greidslustodvun/

Þeir hefðu átt að setja meira út á þessa "vitleysinga" sem eru að fara á hausinn :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby shadow » Mon 10. Nov 2008 13:23

Voru þeir eitthvað að dissa aðra sem urðu gjaldþrota?
shadow
Kassabílstjóri
 
Posts: 137
Joined: Mon 25. Jun 2007 09:37

Postby Hannsi » Mon 10. Nov 2008 14:03

Vitiði mig er farið að hlakka til áramótaskaupsins. :lol:

"Ha vorum við að fá lán hjá pólverjum? :shock: "
"Þetta reddast."

"Það vissi ég ekki."

Og fleiri góðir frasar eru eftir að koma líklega :lol:
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby ValliFudd » Mon 10. Nov 2008 15:09

shadow wrote:Voru þeir eitthvað að dissa aðra sem urðu gjaldþrota?

Nei ég er nú bara að bulla :)
Þeir birta að mér sýnist aðallega tilkynningar frá fyrirtækjum.
Í fljótu bragði sýnist mér þeir vinna sína heimavinnu mun betur en aðrir fjölmiðlar á íslandi. En mjög spes samt sem áður að fyrirtæki sem er nánast eingöngu byggt upp af viðskiptafræðingum myndi maður allavega halda sé að rúlla..
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests