bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 15:45

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 67 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 18:19 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 12. Jul 2004 20:02
Posts: 68
Location: Rock City
Seldi USD um daginn vitandi það að ég gæti fengið svartamarkaðsgengi fyrir.... seldi samt í gegnum bankakerfið og á bankagengi. Call me stupid eða hvað sem menn vilja. Hafði persónulega ekki áhuga á að ýta undir svarta markaðinn.

_________________
Ich geb Gas, Ich hab Spaß


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 18:37 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Posts: 2389
Location: keflavik
Einzi wrote:
Ég get reddað ferðum á MJÖG lítinn pening.
PM


En geturu svara PM :roll:

_________________
BMW 525D E61 07 Facelift


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 18:39 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 27. Jun 2006 04:48
Posts: 64
20"Tommi wrote:
Þetta eru alvöru bissnes menn ..!!!notfæra sér vonda stöðu samborgarans og sparka í hann þegar að hann liggur...
ATH .Í frétta blaðinu er maður að bjóða evrur á 185 og það umsemjanlegt....þannig að þú gétur troðið þeim þar sem sólin aldrei skin fyrir 210 kr á evru.. Vona svo innilega að þú sitir uppi með þetta og sá gróði sem þú hefur þénað hingað til standi í hálsinum á þér......!!!

Bara min skoðun.



Herðu já takk fyrir það kallinn minn ég og pabbi verslum nú svoldið oft hjá þér og sérstaklega gamli maðurinn einhverstaðar verður maður að verða sér út um pening

en ég skil nu samt ekki svona skítkast það er einginn að byðja ykkur um að kaupa evruna á 210 kr ég bara get reddað mér evrum og ef einhver vill getur hann verslað af mér evrur
það er nu ekki eins og einhverjar einstæðar mæður á atvinnuleysis bótum hafi verið að hringja og kaupa.


en svon óþarfa skítkast en bara rugl það er einginn að skikka einn eða neinn til að kaupa evrur ef þið fáið þetta a betri kjörum annars staðar gjörið svo vel
ég by erlendis og hef nog við evrurnar að gera sjálfur :D


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 18:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Hverslags sleggjudómar eru þetta...

Þeir sem eru á höttunum eftir € og VANTAR umfram framboð ættuð að vera þakklátir að gjaldeyrir yfir höfuð er í boði


ótrúlegt hvað menn geta sett sig í hásæti og dæmt samborgarann yfir tittlinga skít ,,,

munið........ neyðin kennir naktri konu að spinna ..

og á það vel við í þessu tilfelli

þetta er þjónusta í boði og ekkert annað


kemur ekkert málinu við hvort um ,,,,okur sé að ræða ,,, siðblinda ,,
seljandi sé að misnota ástandið.. hann sé hálfviti,, hann er ríkur ,, hann er fátækur.. eða hvað annað

þetta er hreint úrvals greiði að mínu mati til þeirra sem vantar € og VERÐA að fá € sökum einhvers ..... viðkomandi getur þó reddað þessu

annað en peningastofnanirnar

BARA piiiiiissssssstttt yfir svona þröngsýni

..

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 18:57 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 27. Jun 2006 04:48
Posts: 64
Þetta var ég að senda 20" tomma í ep þetta er mín útskýring

Blessaður herðu ég er ekki að ná þessi skítkasti.
málinu er þannig háttað að ég er búsettur á spáni og get þessvegna orðið mér út um evrur í gegnum bankann minn þar.
ég kom heim til íslands með X mikið af gjaldeyri vegna þess að ég vissi hvað það er mikill skortur á honum.
og er nu buinn að vera auglýsa hann og tala við nokkur fyrirtæki og er nu buinn að selja ágætis slatta.
ég er ekki að skikka!! nokkurn mann til að verlsa af mér evrur.
ég er heldur ekki að valda þvi að einhver svelti.
málið er bara þannig að fólk sem hefur efni á gjaldeyri og að ferðast og vantar gjaldeyri og fyrirtækin sem vantar gjaldeyri en eiga íslanskan pening geta ekki ferðast og fyrirtækin fara í þrot ef þeir redda sér ekki gjaldeyri.
það er mikill kostnaður fyrir mig að fljúga framm og til baka með evrurnar þess vegna er ég með svona verð á þeim.
og auðvitað líka til að græða aðeins.
græða ekki ósvipað og þú hefur grætt á mér og föðurmínum ásamt mörgum kunningjum hans sem eru miklir veiðimenn og verlsa mikið við þig þú kaupur vöru á x og selur hana á xx ekki satt
en svona skítkast passar ekki og byð ég þig að endurskoða aðeins það sem þú varst að segja við mig ég er búinn að hjálpa 2 fyrirtækjum með stærri upphæðir en koma hér framm fyrirtækjum sem hefðu annars lent í gjaldþroti eða að vera með tómar verslanir þessi fyrirtæki áttu íslenskar krónur en gátu ekki reddað sér gjaldeyri.......


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 19:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Alpina wrote:
Hverslags sleggjudómar eru þetta...


Heyr heyr

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 19:41 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 27. Jun 2006 04:48
Posts: 64
Kristjan wrote:
Alpina wrote:
Hverslags sleggjudómar eru þetta...


Heyr heyr





heyr heyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 20:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
KJ540 wrote:
Kristjan wrote:
Alpina wrote:
Hverslags sleggjudómar eru þetta...


Heyr heyr





heyr heyr


já .....ég hlusta :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 20:16 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
burt séð frá því hvað lögmæti eða siðferði eða whatever er í þessu, þá er þetta á kolvitlausum stað. þetta er ekki rétti staðurinn fyrir söluauglýsingar og ef ég vil skoða þær fer ég í þartilgerðan dálk sem heitir "flóamarkaður"

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 20:25 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 25. Oct 2003 19:40
Posts: 151
Location: Grafarvogur
...

_________________
Image
Núna: Z3.
Áður: E21, E30, E36, E38.


Last edited by A.H. on Sun 18. Jan 2009 13:55, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 20:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
A.H. wrote:


Í fyrsta lagi, Herr Alpina, þá er það mat margra að menn sem nýti sér aðstöðu sína með þessum hætti séu braskarar. Slíkt kann að vera löglegt en er að mínu mati siðlaust.

Þú líkir þessu við hverja aðra þjónustu. Ég spyr mig hvort greiddur sé skattur af þessari þjónustustarfsemi, en gengishagnaður er væntanlega skattskyldur eins og aðrar tekjur. KJ getur kannski svarað því...

Ég get reyndar ekki mikið sagt, enda er ég greinilega „þröngsýnn“ eins og þú orðar það.

Ein helsta ástæða þess að Íslendingar eiga nú um sárt að binda er að menn sem höfðu til þess aðstöðu, nýttu sér hana með skammtímahagsmuni að leiðarljósi. Kaup og sala á Sterling-flugfélaginu er gott dæmi um þetta. Að þeim viðskiptum stóðu menn sem var algjörlega sama um hvort traust erlendra aðila á íslenskum viðskiptum rýrnaði. Þeir vildu bara fá sinn pening og gáfu skít í aðra. Það er líklega bara „góður business“ að þínu mati. Þeirra skammtímasjónarmið munu leiða af sér slæmt orðspor sem mun fylgja þjóðinni næstu áratugina og bitna á öllum sem hér búa.

Þjóðin er að reyna að rífa sig upp úr þeim efnahagshremmingum sem við blasa. Okursalar sem braska með erlendan gjaldeyri eru ekki virðingarverðir að mínu mati. Ég stend þeim ekki í vegi en ég mun seint leggja blessun mína yfir sölu sem þessa þrátt fyrir að þú haldir ekki vatni yfir því hvað þetta sé „sniðugt“.

Að mati sumra hljóma ég kannski eins og bitur maður. En það er líka rétt. Ég er bitur því ég sé að tækifærissinnar með skammtímasjónarmið hafa ekki bara „fokkað“ upp sínum eigin málum, heldur stöðu þjóðarinnar allrar.

Sú reiði leiðir til aukins pirrings gagnvart KJ sem hann á kannski ekki skilið. Ef svo er biðst ég afsökunar.

Kveðja,

Einn pirraður :oops:


Mr. A.H.

Þetta innlegg þitt er alls ekkert óvitlaust,, en þú kemur með lagabókstafinn út í ystu æsar á því sjónarmiði að menn eigi að greiða gjöld ofl, af þessu vegna þess að þeir eru að reyna að liðka til ,,
vel má vera að þeir séu tækifærissinnar,,,,,,,,,

en ATH þetta er ekki kommúnista-ríki og markaðurinn ÖSKRAR á gjaldeyri ======= vöntun

siðlaust,, ???????

þeir sem eru að mótmæla eru kreddu reglugerðar -öfunds-hálsar sem þykjast vera með sitt svo á hreinu og geta ALLS ekki unað einum eða neinu að auka innkomu sína á einn eða neinn hátt án þess að fetta fingur út í það

Hvað er að eiginlega...... er fólk svona biturt yfir höfuð..

ps.. en ef matvæli væru í boði og skortur á þeim,,

ekki viss að hljóðið væri alveg svona ,,,, OKRARALEGT í fólki

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 21:11 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Mon 10. Dec 2007 16:16
Posts: 503
Ekki beint eins og evrur séu okkur bráðnauðsynlegar..

Þá á ég auðvitað við svona smá gjaldeyri, auðvitað eru þær mikilvægar í viðskiptum.

Ef fólk er á leiðinni í utanlandsferðir núna, gjaldeyrinn í bankanum er ekki nóg þá er þetta í fínu lagi.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 21:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
A.H. wrote:
Þú líkir þessu við hverja aðra þjónustu. Ég spyr mig hvort greiddur sé skattur af þessari þjónustustarfsemi, en gengishagnaður er væntanlega skattskyldur eins og aðrar tekjur. KJ getur kannski svarað því...


Skv. lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 myndi gengishagnaður teljast skattskyldur, t.a.m. á grundvelli 6. tl. 3. gr. laganna:

6. tl. 3. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 wrote:
6. Allir aðilar sem hafa hér á landi tekjur af leigu, afnotum eða rétti til hagnýtingar á lausafé, einkaleyfum, hvers konar réttindum eða sérþekkingu, svo og af söluhagnaði vegna slíkra eigna, skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum. [Ákvæði þetta tekur þó ekki til tekna af leigu loftfara og skipa sem notuð eru til flutninga á alþjóðaleiðum.]1)

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. Nov 2008 21:58 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Posts: 5509
Location: 108 Reykjavík
Afhverju að kaupa evrur á 210kr þegar þú getur fengið þær á 169kr
Mastercard gengið er 169kr í augnablikinu og engin takmörk fyrir því hversu mikið þú getur notað... nema kreditkortaheimild eða þá ótakmörkuð ef menn eru með fyriframgreitt kreditkort...

http://www.borgun.is/mastercardgengi/

kreditkort.is wrote:
Kreditkort vill koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri


Þjónusta við MasterCard og American Express korthafa er óskert bæði innanlands og erlendis.

_________________
Ódýrir OEM Bosch súrefnisskynjarar til sölu!

Vantar þig aðstoð við að panta af ebay eða annarstaðar á netinu? Sendu mér PM.

1994 BMW E36 332i sedan
1991 Chevrolet Camaro Z28
1982 Toyota Carina A60
2005 Ford Fiesta ST


Svezel wrote:
Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Nov 2008 09:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
Vá maður,Það er aldeilis kominn tími á að panta væluhópferðabíl fyri liðið hér :roll:

Barnaland hvað :shock:

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 67 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 108 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group