A.H. wrote:
Í fyrsta lagi, Herr Alpina, þá er það mat margra að menn sem nýti sér aðstöðu sína með þessum hætti séu braskarar. Slíkt kann að vera löglegt en er að mínu mati siðlaust.
Þú líkir þessu við hverja aðra þjónustu. Ég spyr mig hvort greiddur sé skattur af þessari þjónustustarfsemi, en gengishagnaður er væntanlega skattskyldur eins og aðrar tekjur. KJ getur kannski svarað því...
Ég get reyndar ekki mikið sagt, enda er ég greinilega „þröngsýnn“ eins og þú orðar það.
Ein helsta ástæða þess að Íslendingar eiga nú um sárt að binda er að menn sem höfðu til þess aðstöðu, nýttu sér hana með skammtímahagsmuni að leiðarljósi. Kaup og sala á Sterling-flugfélaginu er gott dæmi um þetta. Að þeim viðskiptum stóðu menn sem var algjörlega sama um hvort traust erlendra aðila á íslenskum viðskiptum rýrnaði. Þeir vildu bara fá sinn pening og gáfu skít í aðra. Það er líklega bara „góður business“ að þínu mati. Þeirra skammtímasjónarmið munu leiða af sér slæmt orðspor sem mun fylgja þjóðinni næstu áratugina og bitna á öllum sem hér búa.
Þjóðin er að reyna að rífa sig upp úr þeim efnahagshremmingum sem við blasa. Okursalar sem braska með erlendan gjaldeyri eru ekki virðingarverðir að mínu mati. Ég stend þeim ekki í vegi en ég mun seint leggja blessun mína yfir sölu sem þessa þrátt fyrir að þú haldir ekki vatni yfir því hvað þetta sé „sniðugt“.
Að mati sumra hljóma ég kannski eins og bitur maður. En það er líka rétt. Ég er bitur því ég sé að tækifærissinnar með skammtímasjónarmið hafa ekki bara „fokkað“ upp sínum eigin málum, heldur stöðu þjóðarinnar allrar.
Sú reiði leiðir til aukins pirrings gagnvart KJ sem hann á kannski ekki skilið. Ef svo er biðst ég afsökunar.
Kveðja,
Einn pirraður

Mr. A.H.
Þetta innlegg þitt er alls ekkert óvitlaust,, en þú kemur með lagabókstafinn út í ystu æsar á því sjónarmiði að menn eigi að greiða gjöld ofl, af þessu vegna þess að þeir eru að reyna að liðka til ,,
vel má vera að þeir séu tækifærissinnar,,,,,,,,,
en ATH þetta er ekki kommúnista-ríki og markaðurinn ÖSKRAR á gjaldeyri ======= vöntun
siðlaust,, ???????
þeir sem eru að mótmæla eru kreddu reglugerðar -öfunds-hálsar sem þykjast vera með sitt svo á hreinu og geta ALLS ekki unað einum eða neinu að auka innkomu sína á einn eða neinn hátt án þess að fetta fingur út í það
Hvað er að eiginlega...... er fólk svona biturt yfir höfuð..
ps.. en ef matvæli væru í boði og skortur á þeim,,
ekki viss að hljóðið væri alveg svona ,,,, OKRARALEGT í fólki
_________________
Sv.H
E30
CABRIO V12 M70B50
///ALPINA B10 BITURBO
346 @ 507
E34 550
V12 JML(OO[][]OO)
http://alpina.123.is/pictures/Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."