20"Tommi wrote:Þetta eru alvöru bissnes menn ..!!!notfæra sér vonda stöðu samborgarans og sparka í hann þegar að hann liggur...
ATH .Í frétta blaðinu er maður að bjóða evrur á 185 og það umsemjanlegt....þannig að þú gétur troðið þeim þar sem sólin aldrei skin fyrir 210 kr á evru.. Vona svo innilega að þú sitir uppi með þetta og sá gróði sem þú hefur þénað hingað til standi í hálsinum á þér......!!!
Bara min skoðun.
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
KJ540 wrote:Kristjan wrote:Alpina wrote:Hverslags sleggjudómar eru þetta...
Heyr heyr
heyr heyr
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."

A.H. wrote:
Í fyrsta lagi, Herr Alpina, þá er það mat margra að menn sem nýti sér aðstöðu sína með þessum hætti séu braskarar. Slíkt kann að vera löglegt en er að mínu mati siðlaust.
Þú líkir þessu við hverja aðra þjónustu. Ég spyr mig hvort greiddur sé skattur af þessari þjónustustarfsemi, en gengishagnaður er væntanlega skattskyldur eins og aðrar tekjur. KJ getur kannski svarað því...
Ég get reyndar ekki mikið sagt, enda er ég greinilega „þröngsýnn“ eins og þú orðar það.
Ein helsta ástæða þess að Íslendingar eiga nú um sárt að binda er að menn sem höfðu til þess aðstöðu, nýttu sér hana með skammtímahagsmuni að leiðarljósi. Kaup og sala á Sterling-flugfélaginu er gott dæmi um þetta. Að þeim viðskiptum stóðu menn sem var algjörlega sama um hvort traust erlendra aðila á íslenskum viðskiptum rýrnaði. Þeir vildu bara fá sinn pening og gáfu skít í aðra. Það er líklega bara „góður business“ að þínu mati. Þeirra skammtímasjónarmið munu leiða af sér slæmt orðspor sem mun fylgja þjóðinni næstu áratugina og bitna á öllum sem hér búa.
Þjóðin er að reyna að rífa sig upp úr þeim efnahagshremmingum sem við blasa. Okursalar sem braska með erlendan gjaldeyri eru ekki virðingarverðir að mínu mati. Ég stend þeim ekki í vegi en ég mun seint leggja blessun mína yfir sölu sem þessa þrátt fyrir að þú haldir ekki vatni yfir því hvað þetta sé „sniðugt“.
Að mati sumra hljóma ég kannski eins og bitur maður. En það er líka rétt. Ég er bitur því ég sé að tækifærissinnar með skammtímasjónarmið hafa ekki bara „fokkað“ upp sínum eigin málum, heldur stöðu þjóðarinnar allrar.
Sú reiði leiðir til aukins pirrings gagnvart KJ sem hann á kannski ekki skilið. Ef svo er biðst ég afsökunar.
Kveðja,
Einn pirraður
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
A.H. wrote:Þú líkir þessu við hverja aðra þjónustu. Ég spyr mig hvort greiddur sé skattur af þessari þjónustustarfsemi, en gengishagnaður er væntanlega skattskyldur eins og aðrar tekjur. KJ getur kannski svarað því...
6. tl. 3. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 wrote:6. Allir aðilar sem hafa hér á landi tekjur af leigu, afnotum eða rétti til hagnýtingar á lausafé, einkaleyfum, hvers konar réttindum eða sérþekkingu, svo og af söluhagnaði vegna slíkra eigna, skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum. [Ákvæði þetta tekur þó ekki til tekna af leigu loftfara og skipa sem notuð eru til flutninga á alþjóðaleiðum.]1)
kreditkort.is wrote: Kreditkort vill koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri
Þjónusta við MasterCard og American Express korthafa er óskert bæði innanlands og erlendis.
Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests