íbbi_ wrote:
nýja bankastýra glitnis er með ýmislegt óhreint, hún var nú hægri hönd bjarna ármans, og keypti hlutabréf í bankanum fyrir 190 milljónir, sem átti að greiðast með arði af bréfunum sjálfum? fyrir einhevr mistök gleymdist að skrá hlutinn, og hún af því virtist hafði ekki tekið eftir því,, fyrr en jú.. hún tapaði ENGU þegar bankinn fór niður, þvílíkt og annað eins,. þetta hættir aldrei, er svo ekki finnur, nýji kaupþingstjórinn mágur hennar?
þetta er ekkert að lagast, og þessi ómenni á þingi gera í því, en ekki öfugt,
hver kemur með mér á morgun að setja banana við alþingi? grínlaust, engin læti, enginn að kasta neinu, heldur bara lagður við andyrið

Þetta mál með Birnu er nú líka enn eitt dæmið um ruglið sem er í gangi hérna.
Hér er tilkynningin til Kauphallarinnar um kaup Birnu:
Glitnir banki - Viðskipti fruminnherja
Svo er ætlast til þess að fólk trúi því að þessi kaup hafi bara á einhvern undaverðan hátt gufað upp í kerfinu. Halló! Á einhver að trúa þessu rugli?
Ef bréfin í Glitni hefðu tvöfaldast í verði þá er ég nú viss um að þessi kaup hefðu ekki gufað svona upp...
Pælið samt í ruglinu sem er búið að vera hérna í bankakerfinu. Yfirmaður í banka stofnar ehf. og fær lán frá bankanum til að kaupa bréf í bankanum fyrir 190 milljónir. Lánið á að greiðast með arðgreiðslum og miðað við hvað Glitnir hefur verið að greiða í arð hefði tekið nokkra áratugi að greiða þetta niður. Ef yfirmaðurinn er heppinn og bréfin hækka í verði selur hann bréfin, borgar lánið og hirðir gróðann. Ef hins vegar illa fer þá er bara hægt að láta einkahlutafélagið fara á hausinn.
Þetta er mjög þægilegt fyrirkomulag fyrir þessa yfirmenn, ef bréfin hækka græða þeir fleiri tugi ef ekki hundruði milljóna, ef bréfin lækka og þau standa ekki undir láninu þá lætur þú bara ehf.-ið rúlla. Sem sagt áhættulaus ávöxtun (allavega áhættuminni en peningamarkaðssjóðirnir...).