luzifer wrote:álverinn eru klárlega málið á þessum tímum myndi ég halda....
Heimsmarkaðsverð á áli er að hrapa eins og hvað annað.
pallorri wrote:http://eyjan.is/silfuregils/2008/10/30/nokkur-lesendabref-i-vidbot30. október, 2008
Nokkur lesendabréf í viðbót
Frá bankamanni
Smá saga af því sem er að gerast innan bankanna þriggja núna - staðfest frá fyrstu hendi þar sem ég er einn af þeim sem þetta á við. Finnst siðferðisleg skylda mín að láta vita af þessu.
Mikill fjöldi starfsmanna hefur keypt hlutabréf gegn láni (og þá helst erlendu) á undanförnum árum og jafnvel stuttu fyrir hrunið. Innan bankanna er unnið að því hörðum höndum að leysa úr þessari flækju og losa fólk undan þessari skuldbindingu - ástæðan er m.a. sú að starfsmenn sem tapa öllu og verða gjaldþrota mega ekki vinna hjá bankanum.
Hvaða sanngirni er þetta - ef losa á ákveðinn hóp undan skuldbindingum, afhverju á það ekki við alla. Þetta þarf að fá á hreint frá Björgvini G., formönnum skilanefnda og/eða núverandi bankastjórum.
Annað að fjölmargir framkvæmdastjórar seldu eitthvað að bréfum vikuna fyrir hrunið - FME hlýtur að rannsaka það og bakfæra slík viðskipti, við treystum þeim til þess (eða ekki!).
Það þarf svo að fá meiri umfjöllun á þetta!

íbbi_ wrote:nýja bankastýra glitnis er með ýmislegt óhreint, hún var nú hægri hönd bjarna ármans, og keypti hlutabréf í bankanum fyrir 190 milljónir, sem átti að greiðast með arði af bréfunum sjálfum? fyrir einhevr mistök gleymdist að skrá hlutinn, og hún af því virtist hafði ekki tekið eftir því,, fyrr en jú.. hún tapaði ENGU þegar bankinn fór niður, þvílíkt og annað eins,. þetta hættir aldrei, er svo ekki finnur, nýji kaupþingstjórinn mágur hennar?
þetta er ekkert að lagast, og þessi ómenni á þingi gera í því, en ekki öfugt,
hver kemur með mér á morgun að setja banana við alþingi? grínlaust, engin læti, enginn að kasta neinu, heldur bara lagður við andyrið
bebecar wrote:Í bananalýðveldi...
Ég kemst því miður ekki í bananatúrinn.
Zyklus wrote:bebecar wrote:Í bananalýðveldi...
Ég kemst því miður ekki í bananatúrinn.
Ef að Íslendingar láta stjórnvöld og ráðamenn komast upp þetta rugl sem er í gangi og er búið að vera í gangi þá einfaldlega missi ég allt álit á okkur Íslendingum.
Ég vona allavega að íslenska þjóðin sé ekki það undirgefin, blind og með svo mikla þrælslund að við látum menn komast upp með þetta. Ef einhvern tímann hefur verið tími til að hér fari fram allsherjar hreingerning þá er sá tími núna.
Það þarf einfaldlega að sópa öllu þessu liði sem hefur verið við stjórn hér og ber ábyrgð á öllu þessu rugli út. Svo verður að fá hingað óháða erlenda rannsóknaraðila til að taka allt kerfið í gegn. Okkur Íslendingum ætlast því miður ekki að takast það sjálf.
T.d. hægt að byrja á því fá erlendan sérfræðing í stól seðlabankastjóra. Þá allavega höfum við örlítinn trúverðugleika.

Users browsing this forum: No registered users and 86 guests