Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Stanky » Fri 31. Oct 2008 10:04

luzifer wrote:álverinn eru klárlega málið á þessum tímum myndi ég halda....


Heimsmarkaðsverð á áli er að hrapa eins og hvað annað.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Einarsss » Fri 31. Oct 2008 10:53

Ég held amk vinnuni en fyrirtækið ætlar að lækka laun um 10% hjá öllum starfsmönnum og dótturfélögum á Íslandi
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby íbbi_ » Fri 31. Oct 2008 13:25

ég lagði banana við alþingi í morgun.. að vísu var búið að fjarlægja hann stuttu seinna
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby birkire » Fri 31. Oct 2008 13:32

íbbi_ wrote:ég lagði banana við alþingi í morgun.. að vísu var búið að fjarlægja hann stuttu seinna


hahaha

látum bara rigna yfir þá banönum á næstunni
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím

Postby bebecar » Fri 31. Oct 2008 16:21

pallorri wrote:http://eyjan.is/silfuregils/2008/10/30/nokkur-lesendabref-i-vidbot

30. október, 2008
Nokkur lesendabréf í viðbót

Frá bankamanni

Smá saga af því sem er að gerast innan bankanna þriggja núna - staðfest frá fyrstu hendi þar sem ég er einn af þeim sem þetta á við. Finnst siðferðisleg skylda mín að láta vita af þessu.

Mikill fjöldi starfsmanna hefur keypt hlutabréf gegn láni (og þá helst erlendu) á undanförnum árum og jafnvel stuttu fyrir hrunið. Innan bankanna er unnið að því hörðum höndum að leysa úr þessari flækju og losa fólk undan þessari skuldbindingu - ástæðan er m.a. sú að starfsmenn sem tapa öllu og verða gjaldþrota mega ekki vinna hjá bankanum.

Hvaða sanngirni er þetta - ef losa á ákveðinn hóp undan skuldbindingum, afhverju á það ekki við alla. Þetta þarf að fá á hreint frá Björgvini G., formönnum skilanefnda og/eða núverandi bankastjórum.

Annað að fjölmargir framkvæmdastjórar seldu eitthvað að bréfum vikuna fyrir hrunið - FME hlýtur að rannsaka það og bakfæra slík viðskipti, við treystum þeim til þess (eða ekki!).



Það þarf svo að fá meiri umfjöllun á þetta!


Ég bara varla trúi því að þetta geti verið rétt :shock:

Gjörsamlega sjúkt ef satt er :evil:

Hér er kærkomið tækifæri til þess einmitt að losa þá bera mikla ábyrgð á ástandinu út úr kerfinu með því að láta þá taka afleiðingunum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby íbbi_ » Fri 31. Oct 2008 16:26

nýja bankastýra glitnis er með ýmislegt óhreint, hún var nú hægri hönd bjarna ármans, og keypti hlutabréf í bankanum fyrir 190 milljónir, sem átti að greiðast með arði af bréfunum sjálfum? fyrir einhevr mistök gleymdist að skrá hlutinn, og hún af því virtist hafði ekki tekið eftir því,, fyrr en jú.. hún tapaði ENGU þegar bankinn fór niður, þvílíkt og annað eins,. þetta hættir aldrei, er svo ekki finnur, nýji kaupþingstjórinn mágur hennar?

þetta er ekkert að lagast, og þessi ómenni á þingi gera í því, en ekki öfugt,

hver kemur með mér á morgun að setja banana við alþingi? grínlaust, engin læti, enginn að kasta neinu, heldur bara lagður við andyrið ;)
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Zyklus » Fri 31. Oct 2008 16:33

pallorri wrote:http://eyjan.is/silfuregils/2008/10/30/nokkur-lesendabref-i-vidbot

30. október, 2008
Nokkur lesendabréf í viðbót

Frá bankamanni

Smá saga af því sem er að gerast innan bankanna þriggja núna - staðfest frá fyrstu hendi þar sem ég er einn af þeim sem þetta á við. Finnst siðferðisleg skylda mín að láta vita af þessu.

Mikill fjöldi starfsmanna hefur keypt hlutabréf gegn láni (og þá helst erlendu) á undanförnum árum og jafnvel stuttu fyrir hrunið. Innan bankanna er unnið að því hörðum höndum að leysa úr þessari flækju og losa fólk undan þessari skuldbindingu - ástæðan er m.a. sú að starfsmenn sem tapa öllu og verða gjaldþrota mega ekki vinna hjá bankanum.

Hvaða sanngirni er þetta - ef losa á ákveðinn hóp undan skuldbindingum, afhverju á það ekki við alla. Þetta þarf að fá á hreint frá Björgvini G., formönnum skilanefnda og/eða núverandi bankastjórum.

Annað að fjölmargir framkvæmdastjórar seldu eitthvað að bréfum vikuna fyrir hrunið - FME hlýtur að rannsaka það og bakfæra slík viðskipti, við treystum þeim til þess (eða ekki!).



Það þarf svo að fá meiri umfjöllun á þetta!


Maður er bara orðlaus. Það var svo sem vitað að við búum í litlu spilltu klíkusamfélagi en þetta er hreint út sagt ótrúlegt.

Á meðan að fólk sem hefur bara tekið lán til að geta komið þakið yfir höfuðið en getur ekki borgað af sínum lánum vegna atvinnumissis og aukinnar verðbólgu fær ekki einu sinni að frysta lánin sín þá eru háttsettir bankamenn að afskrifa lán til sín upp á fleiri milljarða ef þetta er rétt. Lán sem tekin voru til þess að græða! Maður verður bara reiður að lesa þetta. Spillingin og ósvífnin gerist ekki meiri. Bara sem dæmi þá námu lán til starfsmanna Kaupþings 50 milljörðum króna.

Það þarf að fara í algjöra hreingerningu hérna, einfaldlega að fá erlenda óháða sérfræðinga til að fara í gegnum þetta allt. Traust mitt á íslenskum ráðamönnum er einfaldlega NÚLL.

Og annað dæmi um hversu gengdarlaus spillingin og vitleysisgangurinn er hér á þessu blessaða skeri er að nú á ríkissaksóknari að rannsaka son sinn?! Og hvað segir Björn Bjarna, jú jú, maðurinn er auðvitað hæfur til að sjá um rannsókn þar sem sonur saksóknarans er meðal þeirra sem eiga að vera rannsakaðir.
Er ég staddur í vestrænu lýðræðisþjóðfélagi eða er ég í einhverju suður-amerísku bananlýðveldi?
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby bebecar » Fri 31. Oct 2008 16:43

Í bananalýðveldi...

Ég kemst því miður ekki í bananatúrinn.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Zyklus » Fri 31. Oct 2008 16:46

íbbi_ wrote:nýja bankastýra glitnis er með ýmislegt óhreint, hún var nú hægri hönd bjarna ármans, og keypti hlutabréf í bankanum fyrir 190 milljónir, sem átti að greiðast með arði af bréfunum sjálfum? fyrir einhevr mistök gleymdist að skrá hlutinn, og hún af því virtist hafði ekki tekið eftir því,, fyrr en jú.. hún tapaði ENGU þegar bankinn fór niður, þvílíkt og annað eins,. þetta hættir aldrei, er svo ekki finnur, nýji kaupþingstjórinn mágur hennar?

þetta er ekkert að lagast, og þessi ómenni á þingi gera í því, en ekki öfugt,

hver kemur með mér á morgun að setja banana við alþingi? grínlaust, engin læti, enginn að kasta neinu, heldur bara lagður við andyrið ;)


Þetta mál með Birnu er nú líka enn eitt dæmið um ruglið sem er í gangi hérna.

Hér er tilkynningin til Kauphallarinnar um kaup Birnu:

Glitnir banki - Viðskipti fruminnherja

Svo er ætlast til þess að fólk trúi því að þessi kaup hafi bara á einhvern undaverðan hátt gufað upp í kerfinu. Halló! Á einhver að trúa þessu rugli?
Ef bréfin í Glitni hefðu tvöfaldast í verði þá er ég nú viss um að þessi kaup hefðu ekki gufað svona upp...
Pælið samt í ruglinu sem er búið að vera hérna í bankakerfinu. Yfirmaður í banka stofnar ehf. og fær lán frá bankanum til að kaupa bréf í bankanum fyrir 190 milljónir. Lánið á að greiðast með arðgreiðslum og miðað við hvað Glitnir hefur verið að greiða í arð hefði tekið nokkra áratugi að greiða þetta niður. Ef yfirmaðurinn er heppinn og bréfin hækka í verði selur hann bréfin, borgar lánið og hirðir gróðann. Ef hins vegar illa fer þá er bara hægt að láta einkahlutafélagið fara á hausinn.
Þetta er mjög þægilegt fyrirkomulag fyrir þessa yfirmenn, ef bréfin hækka græða þeir fleiri tugi ef ekki hundruði milljóna, ef bréfin lækka og þau standa ekki undir láninu þá lætur þú bara ehf.-ið rúlla. Sem sagt áhættulaus ávöxtun (allavega áhættuminni en peningamarkaðssjóðirnir...).
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby Zyklus » Fri 31. Oct 2008 16:55

bebecar wrote:Í bananalýðveldi...

Ég kemst því miður ekki í bananatúrinn.


Ef að Íslendingar láta stjórnvöld og ráðamenn komast upp þetta rugl sem er í gangi og er búið að vera í gangi þá einfaldlega missi ég allt álit á okkur Íslendingum.

Ég vona allavega að íslenska þjóðin sé ekki það undirgefin, blind og með svo mikla þrælslund að við látum menn komast upp með þetta. Ef einhvern tímann hefur verið tími til að hér fari fram allsherjar hreingerning þá er sá tími núna.
Það þarf einfaldlega að sópa öllu þessu liði sem hefur verið við stjórn hér og ber ábyrgð á öllu þessu rugli út. Svo verður að fá hingað óháða erlenda rannsóknaraðila til að taka allt kerfið í gegn. Okkur Íslendingum ætlast því miður ekki að takast það sjálf.
T.d. hægt að byrja á því fá erlendan sérfræðing í stól seðlabankastjóra. Þá allavega höfum við örlítinn trúverðugleika.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby bjornvil » Fri 31. Oct 2008 17:20

Af Wikipedia:
"A Banana Republic is a pejorative term for a small country that is politically unstable, dependent on limited agriculture (e.g., bananas), and ruled by a small, self-elected, wealthy, and corrupt clique."

Get ekki betur séð en að þetta eigi ágætlega við Ísland :lol:
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby bebecar » Fri 31. Oct 2008 17:45

Zyklus wrote:
bebecar wrote:Í bananalýðveldi...

Ég kemst því miður ekki í bananatúrinn.


Ef að Íslendingar láta stjórnvöld og ráðamenn komast upp þetta rugl sem er í gangi og er búið að vera í gangi þá einfaldlega missi ég allt álit á okkur Íslendingum.

Ég vona allavega að íslenska þjóðin sé ekki það undirgefin, blind og með svo mikla þrælslund að við látum menn komast upp með þetta. Ef einhvern tímann hefur verið tími til að hér fari fram allsherjar hreingerning þá er sá tími núna.
Það þarf einfaldlega að sópa öllu þessu liði sem hefur verið við stjórn hér og ber ábyrgð á öllu þessu rugli út. Svo verður að fá hingað óháða erlenda rannsóknaraðila til að taka allt kerfið í gegn. Okkur Íslendingum ætlast því miður ekki að takast það sjálf.
T.d. hægt að byrja á því fá erlendan sérfræðing í stól seðlabankastjóra. Þá allavega höfum við örlítinn trúverðugleika.


Ég er algjörlega sammála þér en það er sem betur fer ýmsilegt að gerast á bak við tjöldin.

Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég væri heima núna en maður er svo ótrúlega reiður. Ég og fleiri gamlir vinir mínir erum flestir gamlir SUS-arar og maður trúir varla að svona spilling verði látin viðgangast af fólki sem maður treysti. Maður lifði samkvæmt prinsippum á sínum tíma... kannski þessvegna sem maður er ekki viðriðin þetta lengur :roll:

Mér finnst bottom line í þessu öllu saman vera það að þeir sem hafa stofnað óvarlega til skulda eigi að bera ábyrgðina og það á jafnt við um þetta sem skuldsett fyrirtæki, Icesave og 100% húsnæðislán o.s.frv. Þeir sem hafa stofnað svona rækilega til skulda, t.d. eins og að taka lán fyrir 200 milljónum í hlutabréfum þurfa bara virkilega að fá að svíða.

Ég þekki alveg menn sem tóku lán fyrir hlutabréfum í bönkunum sem þeir voru að vinna í en aldrei tóku menn sér meira en þeir treystu sér til að tapa enda eru þeir ennþá með hreina samvisku gagnvart mér og öðrum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby íbbi_ » Fri 31. Oct 2008 18:48

það er ekki af ástæðulausu sem maður er að hrauna yfir ríkisstjórnina og kaupa banana á yfirdráttarheimild,

þetta er eitt stórt alsherjar djöfulsins klúður, og nú á að sópa þeim niður sem eru tæpir með hækkun stýrivaxta, rétt aðgerð sem slík, en enn og aftur er verið að láta okkur fólkið sem eigum ekkert og höfum engu síður öllu að tapa, borga helvítis brúsan!, ég er bókstaflega öskuillur yfir þessu öllu, spilling, valdagræðgi, einkavinavæðingar og svo algjört aðgjörðarleysi er það sem við erum búinn að láta ganga yfir okkur,

það verður mótmælaganga frá hlemmi á morgun, þar sem verður krafist afsagnar ríkisstjórnarinnar, MÆTIÐ!!!!!!!! ég ætla taka banana með mér!
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby bebecar » Fri 31. Oct 2008 19:37

Ríkisstjórninni má mótmæla og krefjast þess að hún fari frá ef hún tekur ekki til og hreinsar upp eftir þessa vitleysu. Það sem þarf að gera er að skipta út þeim sem stýra bönkunum - það verður að vera hafið yfir allan vafa fólkið sem stýrir þeim og það MÁ ekki koma úr þessum þremur bönkum heldur verður það að koma annarsstaðar frá. Forstöðumaður FME verður einnig að taka pokann sinn svo og seðlabankastjórarnir og stjórnin þar - þetta eru nefnilega þeir sem bera ekki pólitíska ábyrgð og voru skipaðir til að gæta hagsmuna þjóðfélagsins.

Ríkisstjórnin ber hinsvegar pólitíska ábyrgð og þeirra dómur verður svo felldur í næstu kosningum, eða ef boðað verður til kosninga þegar það versta er afstaðið.

Mér finnst út í hött að mótmæla eingöngu Davíð og ríkisstjórninni og ætla sér að vera trúverðugur þegar maður lætur það svo eiga sig að mótmæla hjá þeim sem stofnuðu til skuldanna sem við nú súpum seyðið af - en einhvern vegin virðist engin vilja gera það, kannski vegna þess að fólk er svo samdauna því og meðvirkt að það er bara auðveldara að benda á einhvern annan. Margir hafa náttúrulega verið í vinnu sem er borguð með þessari skuldsetningu eða tengjast einhverjum slíkum náið í svona litlu samfélagi.

Ísland er samt banana lýðveldi auðvitað og hefur verið það frá lýðveldisstofnun. Það er kannski ekki svo óeðlilegt enda lýðveldið ungt og stofnanir þess enn í mótun.
Last edited by bebecar on Fri 31. Oct 2008 19:45, edited 1 time in total.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby íbbi_ » Fri 31. Oct 2008 19:44

hárétt,

það þarf algjöra uppstokkun, bara áhrifin ein að fólkið í landinu sjái að það hafi áorkað einhverju með því að láta í sér heyra,

maður er ennþá að heyra fólk segja "hey!! það var massa góðæri hérna mest allan tíman hjá sjálfstæðisflokkunm!" einmitt,

ég er hræddastur við að allir verði búnir að gleyma áður en kostningarnar koma, það þarf eitthvað að ske meðan hitinn er ennþá í fólki, við erum svo miklir þrælar í okkur að við látum koma sona fram við okkur,

það sést best þegar einhver mótmælir einhverju, þá er meira mótmælt mótmælandanum en því sem hann er að mótmæla,

það þarf eitthvað að ske, og við þurfum að fara sjá eitthvað sem gerir þó ekki eitthvað nema að róa fólk,
hlutir eins og uppþot, glæpaöldur, eyturlyfjafaraldur (af meira magni) og mjög aukin sjálfsmorðstíðni eru raunveruleg vandamál sem við gætum verið að horfa fram á
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests