Jæja nú á allt að vera klappað og klárt fyrir utan möppun.
Planið var að fara út 24. og keyra upp til DK og láta Hr. X mappa.
Þeir hjá Tauber ætluðu þá að vera búnir að koma RNGTOY til Nurburg.
Frá Nurburg til DK og tilbaka er 2 x 800km, 2 dagar, slit á bíl og €€€€€€€€€€€ í bensín.
Þannig að... ég tékkaði hvað flug kostaði fyrir Hr. X frá Billund til
Munchen og kom í ljós að það væri mun skynsamlegra varðandi €€€€€.
Athugaði svo hvort karlinn væri ekki til í þetta og það var ekki málið
Þannig að nú er planið að ég fari út 24. og keyri til Tauber, taki þar
RNGTOY og keyri niður til Munchen. Hr. X birtist þann 25. um morguninn,
mappað um daginn heima hjá Oliver og Hr. X síðan heim um kvöldið.
Sem þýðir að ég verð vonandi farinn að tæta og trylla á hringnum
með ca. 500 hross að kveldi 26. eftir að hafa pickað upp Hr. Sezar
á Hahn á leiðinni til Nurburg.