bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 09:19

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
PostPosted: Fri 16. May 2008 18:55 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Posts: 559
Location: Halfpriceland
er þetta blá 350z sem þú ert á íbbi? 8)

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 16. May 2008 18:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
E55FFFan wrote:
er þetta blá 350z sem þú ert á íbbi? 8)

Hvítt. :)

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205

E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. May 2008 19:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
zetan mín er hvít sanseruð.. frekar dumdumdumdum neon litur.. svo sanseraður að maður fattar oft ekki hvort hann er mislitur eða bara áttin sem maður er að horfa á hann úr...

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. May 2008 19:51 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
fart wrote:
bimmer wrote:
Persónulega færi ég ekki í eldra en 355 í 3XX línunni.

Sammála að hluta, en það er líka allt annað price range.

Decent 360 fer reyndar að verða viðráðanlegur.

Persónulega færi ég aldrei í yngra en 355..... þá er t.d. alveg eins hægt að fá sér GT-R ef þetta er spurning um performance.

Fyrir mína parta myndi ég vilja hafa þetta sem næst arfleifð Enzo.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. May 2008 19:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bebecar wrote:

þetta er ruglingslegt innlegg

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. May 2008 20:07 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Alpina wrote:

Þér ferst maður :lol:

Ég meina að Enzo lést árið 1988 ef ég man rétt, þó bílarnir í nokkur ár eftir það hafi verið á teikniborðinu þegar hann lést eða í hans anda eftir að hann lést. Nýju bílarnir eru nýja kynslóðin og bera merkið - en eru augljóslega ekki eftir Ferrari kallinn sjálfann.

Það er stundum talað um að síðasti alvöru Ferrari-inn hafi verið F40 af þessum sökum.

Að mínu mati er 355 síðasti Ferrari bíllinn sem er laus við hafsjó að tölvutækni og 348 eini bíllinn sem er alveg laus við hana (enda talinn gallagripur af mörgum). Semsagt bíll sem Enzo sjálfur var með puttana í eða bíl sem næst hans arfleifð eins og t.d. 355.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Last edited by bebecar on Sat 17. May 2008 12:38, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. May 2008 20:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
599 blabla-ettí fyrir mig

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. May 2008 20:48 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Posts: 586
Location: Grafarvogur
Bara flottur bíll.
Sá hann um daginn á ferðinni, fallega rauður.

_________________
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. May 2008 20:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bebecar wrote:

Fyrir mína parta myndi ég vilja hafa þetta sem næst arfleifð Enzo.

Fullt af fólki sem heldur að þú sért að meina VAFF TÓLF enzo

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. May 2008 23:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
#1.
Ekki halda að kallinn Enzo sjálfur hafi gert ALLT ,
allir Ferrari eru ítalskir og þar liggur það,
mér finnst soldið fyndið að heyra að Ferrari hafi misst character þegar Enzo deyr. Ég myndi segja að hann hafi ekki komið við verkfæri síðan snemma 5áratugins.

Einnig þýðir ekkert að segja að old skool engin tækni hafi verið Enzo heldur.
enginn hérna þekkti kallinn og getur á engann veginn dæmt um það.

Tækni í nýjum bílum er þörf ekki bara útaf betri performance tölum heldur að það er það sem kúnninn vill,. ekkert annað.

Andi Enzo??
Getur ÞÚ Ingvar dæmt um það?

Afhverju finnst mér alltaf jafn fyndið að lesa pósta eftir suma bílaáhugamenn sem tala um bílaframleiðslu sem einhverskonar drauma myndun yfirmannsins sem framleiddi bílanna. Get real.

Bílaframleiðsla í dag hefur "0" að gera við áhuga, passion, destiny, desire,, excellence, dreams, enthusiasm.

Í dag er þetta ekkert nema hardcore business. Mörgum finnst leiðinlegt að heyra það enn svona er þetta bara og búið að vera í mjög langann tíma.
Framleiðendur framleiða ekki það sem þeim langar í heldur það sem vel valdir interest/focus groups SEGJA að vanti að framleiða.

Þetta á þá eingöngu við þau company sem eru svo vel þekkt að minnstu mistök geta sett starfsemina á hliðina. Aðrir sem selja í minna upplagi eiga meiri séns á að smíða það sem þeim dreymir um og geta hannað fyrir ákveðinn kúnna hóp sem þeir stefna í,

Ferrari getur ekki bara smíðað það sem þeim langar í, þeim vantar að meika aura, þeir verða að sjá til ákveðins hagnaðs á hverju ári svo fjárfestar séu sáttir og svo fleira,

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 17. May 2008 00:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Alpina wrote:
bebecar wrote:

Fyrir mína parta myndi ég vilja hafa þetta sem næst arfleifð Enzo.

Fullt af fólki sem heldur að þú sért að meina VAFF TÓLF enzo

Ekki fyrr en þú minnist á það kom mér það skrýmsli í hug :lol:

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 17. May 2008 06:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Ok, ég þekki nokkra Ítala sem eru bifvélavirkjar og reka verkstæði. Þetta er þeirra skoðun á pre 355 (360) 550 Ferrari. Þeir vinna mikið við þessa eldri Ferraris og gamli kallinn sem á verstæðið á Testarossa.

Helst ekki gang nema daginn sem að þú ætlar með hann á verkstæðið, logandi hræðsla við að það muni loga úr bílnum eftir bílstúr, funky as hell afstaða við stýrið og dofnir framhandleggir ásamt ömurlegum bremsum og ekkert allt of miklum kraft en aftur á móti alvöru look, þetta er arfleið arfleið Enzo (fyrir utan F40 og GTA).

Hef sagt það áður að meira að segja die hard F-car menn gefa ekki mikið fyrir aksturseiginleika F40. Léleg fjöðrun, ömurlegar bremsur og svo framvegis.

Þannig að það má segja að arfleið Enzo hafi verið nokkuð góð framanaf, maður þarf í raun að fara vel aftur í tíman þegar Ferrari var leiðandi (50's 60's 70's) til að fá Enzo arfleiðina. Eftir það kemur tími þar sem sem að Ferrari var í TÓMU basli, Enzo orðinn gamall og uppfullur af gamalli hugsjón/tækni þangað til að Ferrari dettur niður á 355 sem er í raun fyrsta tilraun til að gera bíl sem mætir kröfum nútímans. Eftir það eru þetta bara hörku reliable performance supercars.

En já, Fordómar gagnvart nýju eru oft jafn ýktir og fordómar gagnvart gömlu

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 17. May 2008 12:39 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
zazou wrote:
Alpina wrote:
bebecar wrote:

Fyrir mína parta myndi ég vilja hafa þetta sem næst arfleifð Enzo.

Fullt af fólki sem heldur að þú sért að meina VAFF TÓLF enzo

Ekki fyrr en þú minnist á það kom mér það skrýmsli í hug :lol:

Hehe - ég kveikti ekki á því heldur :D

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 17. May 2008 13:15 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
gstuning wrote:
#1.
Ekki halda að kallinn Enzo sjálfur hafi gert ALLT ,
allir Ferrari eru ítalskir og þar liggur það,
mér finnst soldið fyndið að heyra að Ferrari hafi misst character þegar Enzo deyr. Ég myndi segja að hann hafi ekki komið við verkfæri síðan snemma 5áratugins.

Einnig þýðir ekkert að segja að old skool engin tækni hafi verið Enzo heldur.
enginn hérna þekkti kallinn og getur á engann veginn dæmt um það.

Tækni í nýjum bílum er þörf ekki bara útaf betri performance tölum heldur að það er það sem kúnninn vill,. ekkert annað.

Andi Enzo??
Getur ÞÚ Ingvar dæmt um það?

Afhverju finnst mér alltaf jafn fyndið að lesa pósta eftir suma bílaáhugamenn sem tala um bílaframleiðslu sem einhverskonar drauma myndun yfirmannsins sem framleiddi bílanna. Get real.

Bílaframleiðsla í dag hefur "0" að gera við áhuga, passion, destiny, desire,, excellence, dreams, enthusiasm.

Í dag er þetta ekkert nema hardcore business. Mörgum finnst leiðinlegt að heyra það enn svona er þetta bara og búið að vera í mjög langann tíma.
Framleiðendur framleiða ekki það sem þeim langar í heldur það sem vel valdir interest/focus groups SEGJA að vanti að framleiða.

Þetta á þá eingöngu við þau company sem eru svo vel þekkt að minnstu mistök geta sett starfsemina á hliðina. Aðrir sem selja í minna upplagi eiga meiri séns á að smíða það sem þeim dreymir um og geta hannað fyrir ákveðinn kúnna hóp sem þeir stefna í,

Ferrari getur ekki bara smíðað það sem þeim langar í, þeim vantar að meika aura, þeir verða að sjá til ákveðins hagnaðs á hverju ári svo fjárfestar séu sáttir og svo fleira,

Þú misskilur að mínu mati það sem ég er að segja og auðvitað er það, hve mikinn þátt Enzo gamli átti í hönnun bílanna, ekki eitthvað sem ég, frekar en nánast nokkur annar getur dæmt um. Ég veit bara að bílarnir hafa breyst - ekki endilega til hins verra, heldur eru þeir bara öðruvísi.

Mig langar hinsvegar að segja þér nokkuð og það er að ég hitti reglulega kreðsur af bílablaðamönnum, reynsluökuþóra bílaframleiðenda og fyrrum og núverandi keppniskarla þó ég flaggi því lítið. Umræðurnar geta oft verið skemmtilegar og maður lærir nú eitt og annað af því að hlusta á aðra og taka þátt í umræðunum.

Þannig að ekki vera að væna mig um að vera í einhverjum öðrum heimi þó þú sért ekki sammála því sem ég reyndar lýsti sem minni eigin skoðun. Það sem ég er að lýsa er skoðun, sem ekki bara ég hef vissa samúð með, heldur er hún bara afskaplega áberandi í t.d. hópi bílaáhugafólks og sérstaklega á meðal bílablaðamanna og alveg jafn "real" og það sem þú bendir réttilega á með nútíman í dag.

Það er engin að segja að Enzo hafi sjálfur átt allan heiðurinn af bílunum en hann ók þeim þó alltaf sjálfur og var alræmdur fyrir það að hafna því sem honum líkaði ekki - hve skynsamlegt sem það svo var.

Reyndar á Fart mjög góðann punkt í þessu að hápunkturinn, fyrir utan núna, hafi verið á fimmta og sjötta áratugnum - en það eru einmitt bílar sem maður sjálfur er líka hrifinn af eins og stóru GT bílarnir.

Sjálfur setti ég svo grensuna of neðarlega með því að vitna í Þórð því í rauninni er yngsti bíllinn sem ég gæti hugsað mér 575. Hinsvegar er 355 yngsti bíllinn sem ég gæti hugsað mér í miðju V8 bílunum.

Svo er þetta nú ekki alveg rétt með að allir bílaframleiðendur framleiði eingöngu með þá hugsjón að marki að selja sem flesta bíla. Bæði t.d. Porsche og Ferrari geta selt miklu fleiri bíla (t.d. með baby Ferrari) en með því móti getur ýmsum langtíma gróða sjónarmiðum verið stefnt í voða. Með sömu rökum væri t.d. Formúla 1 því þáttaka þar hefur lítið með áður nefnd gróðasjónarmið að gera. Auðvitað getur þó slík strategía heppnast vel eins og hjá BMW en líka farið ílla eins og hjá Jaguar.

Þú átt reyndar mjög góðan punkt með þessu hér "
Bílaframleiðsla í dag hefur "0" að gera við áhuga, passion, destiny, desire,, excellence, dreams, enthusiasm. " en þetta er einmitt ástæðan fyrir því að maður sér margt frá gamla tímanum í hyllingum því þar er enn hægt að fá þessi eftirsóknarverðu "gæði".

Ég held að þú hafir kannski litið framhjá aðal útgangspunktinum sem var sá að ef ég væri að leita mér að nothæfum brúgsbíl með performance sem aðal markmiðinu þá t.d. væri lang eðlilegast að kaupa nýjann GT-R. Þar færðu MEGA græju, með áreiðanleika og hörku prestige. Þetta á jafnt við um nýja Porsche, M-Bimma, Ferrari og hvað svo sem það er annað að GT-R er einfaldlega betri hvað þetta varðar. Þeir sem t.d. hafa notað performance rök til þess að kaupa M bíla ættu t.d. samkvæmt því sama að líta í átt til Nissan. Sumir gera það hinsvegar ekki sem einmitt eru hin fínustu rök fyrir því að eitthvað annað og meira geti líka skipt máli en pjúra performance.

Hinsvegar þá eru margir gamlir bílar með sérstaka "sál" sem í nánast öllum tilfellum er grafin undir þykku lagi að köplum, vírum og örgjörvum í nýjum bíl. Það er ekki hægt að segja að einhverjir sem aðhyllast þetta sem einmitt þú segir að sé farið í dag - hafi rangt fyrir sér.

Þetta er bara mismunandi smekkur.

Reyndar langar mig líka að segja að ég hef talað við nokkra Ferrari karla t.d. einn sem á Testarossu og einn 512TR, annan sem á F430 og svo hef ég spjallað við herramann sem er búin að eiga nokkra 308.

Testarossan er reyndar notaður sem varahlutabíll eftir erfiðlega gekk að halda honum góðum en 512TR bíllinn er búin að vera í eigu sama manns í mörg ár og er í dag að nálgast 80 þúsund km og er tekið verulega á honum á brautardögum um nánast hverja helgi hvert sumar. Kallinn er alsæll með bílinn og segir hann vera mjög áreiðanlegan þó viðhaldið sé dýrt.

F430 bíllinn er lítið keyrður en alveg til friðs.

308 bíllinn (blöndungsbíll, er ekki klár á árgerð) sem er í núverandi eigu herramannsins er notaður á daglegum basis á sumrin og er ekki dýrari í rekstri en hver annar sportbíll á svipuðum aldri segir sá.

Þetta er auðvitað, besides the point samt.

Ég veit ekki alveg hvernig hægt er að lýsa þessu en kannski má á einhvern háttå sjá þetta á samkomum hjá t.d. Ferrari þar sem flestir hópast í kringum gömlu bílana. Það er t.d. iðulega mesta crowdið í kringum F40 þó flestir viti að F50 var mun betri bíll.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group