gstuning wrote:
#1.
Ekki halda að kallinn Enzo sjálfur hafi gert ALLT ,
allir Ferrari eru ítalskir og þar liggur það,
mér finnst soldið fyndið að heyra að Ferrari hafi misst character þegar Enzo deyr. Ég myndi segja að hann hafi ekki komið við verkfæri síðan snemma 5áratugins.
Einnig þýðir ekkert að segja að old skool engin tækni hafi verið Enzo heldur.
enginn hérna þekkti kallinn og getur á engann veginn dæmt um það.
Tækni í nýjum bílum er þörf ekki bara útaf betri performance tölum heldur að það er það sem kúnninn vill,. ekkert annað.
Andi Enzo??
Getur ÞÚ Ingvar dæmt um það?
Afhverju finnst mér alltaf jafn fyndið að lesa pósta eftir suma bílaáhugamenn sem tala um bílaframleiðslu sem einhverskonar drauma myndun yfirmannsins sem framleiddi bílanna. Get real.
Bílaframleiðsla í dag hefur "0" að gera við áhuga, passion, destiny, desire,, excellence, dreams, enthusiasm.
Í dag er þetta ekkert nema hardcore business. Mörgum finnst leiðinlegt að heyra það enn svona er þetta bara og búið að vera í mjög langann tíma.
Framleiðendur framleiða ekki það sem þeim langar í heldur það sem vel valdir interest/focus groups SEGJA að vanti að framleiða.
Þetta á þá eingöngu við þau company sem eru svo vel þekkt að minnstu mistök geta sett starfsemina á hliðina. Aðrir sem selja í minna upplagi eiga meiri séns á að smíða það sem þeim dreymir um og geta hannað fyrir ákveðinn kúnna hóp sem þeir stefna í,
Ferrari getur ekki bara smíðað það sem þeim langar í, þeim vantar að meika aura, þeir verða að sjá til ákveðins hagnaðs á hverju ári svo fjárfestar séu sáttir og svo fleira,
Þú misskilur að mínu mati það sem ég er að segja og auðvitað er það, hve mikinn þátt Enzo gamli átti í hönnun bílanna, ekki eitthvað sem ég, frekar en nánast nokkur annar getur dæmt um. Ég veit bara að bílarnir hafa breyst - ekki endilega til hins verra, heldur eru þeir bara öðruvísi.
Mig langar hinsvegar að segja þér nokkuð og það er að ég hitti reglulega kreðsur af bílablaðamönnum, reynsluökuþóra bílaframleiðenda og fyrrum og núverandi keppniskarla þó ég flaggi því lítið. Umræðurnar geta oft verið skemmtilegar og maður lærir nú eitt og annað af því að hlusta á aðra og taka þátt í umræðunum.
Þannig að ekki vera að væna mig um að vera í einhverjum öðrum heimi þó þú sért ekki sammála því sem ég reyndar lýsti sem minni eigin skoðun. Það sem ég er að lýsa er skoðun, sem ekki bara ég hef vissa samúð með, heldur er hún bara afskaplega áberandi í t.d. hópi bílaáhugafólks og sérstaklega á meðal bílablaðamanna og alveg jafn "real" og það sem þú bendir réttilega á með nútíman í dag.
Það er engin að segja að Enzo hafi sjálfur átt allan heiðurinn af bílunum en hann ók þeim þó alltaf sjálfur og var alræmdur fyrir það að hafna því sem honum líkaði ekki - hve skynsamlegt sem það svo var.
Reyndar á Fart mjög góðann punkt í þessu að hápunkturinn, fyrir utan núna, hafi verið á fimmta og sjötta áratugnum - en það eru einmitt bílar sem maður sjálfur er líka hrifinn af eins og stóru GT bílarnir.
Sjálfur setti ég svo grensuna of neðarlega með því að vitna í Þórð því í rauninni er yngsti bíllinn sem ég gæti hugsað mér 575. Hinsvegar er 355 yngsti bíllinn sem ég gæti hugsað mér í miðju V8 bílunum.
Svo er þetta nú ekki alveg rétt með að allir bílaframleiðendur framleiði eingöngu með þá hugsjón að marki að selja sem flesta bíla. Bæði t.d. Porsche og Ferrari geta selt miklu fleiri bíla (t.d. með baby Ferrari) en með því móti getur ýmsum langtíma gróða sjónarmiðum verið stefnt í voða. Með sömu rökum væri t.d. Formúla 1 því þáttaka þar hefur lítið með áður nefnd gróðasjónarmið að gera. Auðvitað getur þó slík strategía heppnast vel eins og hjá BMW en líka farið ílla eins og hjá Jaguar.
Þú átt reyndar mjög góðan punkt með þessu hér "
Bílaframleiðsla í dag hefur "0" að gera við áhuga, passion, destiny, desire,, excellence, dreams, enthusiasm. " en þetta er einmitt ástæðan fyrir því að maður sér margt frá gamla tímanum í hyllingum því þar er enn hægt að fá þessi eftirsóknarverðu "gæði".
Ég held að þú hafir kannski litið framhjá aðal útgangspunktinum sem var sá að ef ég væri að leita mér að nothæfum brúgsbíl með performance sem aðal markmiðinu þá t.d. væri lang eðlilegast að kaupa nýjann GT-R. Þar færðu MEGA græju, með áreiðanleika og hörku prestige. Þetta á jafnt við um nýja Porsche, M-Bimma, Ferrari og hvað svo sem það er annað að GT-R er einfaldlega betri hvað þetta varðar. Þeir sem t.d. hafa notað performance rök til þess að kaupa M bíla ættu t.d. samkvæmt því sama að líta í átt til Nissan. Sumir gera það hinsvegar ekki sem einmitt eru hin fínustu rök fyrir því að eitthvað annað og meira geti líka skipt máli en pjúra performance.
Hinsvegar þá eru margir gamlir bílar með sérstaka "sál" sem í nánast öllum tilfellum er grafin undir þykku lagi að köplum, vírum og örgjörvum í nýjum bíl. Það er ekki hægt að segja að einhverjir sem aðhyllast þetta sem einmitt þú segir að sé farið í dag - hafi rangt fyrir sér.
Þetta er bara mismunandi smekkur.
Reyndar langar mig líka að segja að ég hef talað við nokkra Ferrari karla t.d. einn sem á Testarossu og einn 512TR, annan sem á F430 og svo hef ég spjallað við herramann sem er búin að eiga nokkra 308.
Testarossan er reyndar notaður sem varahlutabíll eftir erfiðlega gekk að halda honum góðum en 512TR bíllinn er búin að vera í eigu sama manns í mörg ár og er í dag að nálgast 80 þúsund km og er tekið verulega á honum á brautardögum um nánast hverja helgi hvert sumar. Kallinn er alsæll með bílinn og segir hann vera mjög áreiðanlegan þó viðhaldið sé dýrt.
F430 bíllinn er lítið keyrður en alveg til friðs.
308 bíllinn (blöndungsbíll, er ekki klár á árgerð) sem er í núverandi eigu herramannsins er notaður á daglegum basis á sumrin og er ekki dýrari í rekstri en hver annar sportbíll á svipuðum aldri segir sá.
Þetta er auðvitað, besides the point samt.
Ég veit ekki alveg hvernig hægt er að lýsa þessu en kannski má á einhvern háttå sjá þetta á samkomum hjá t.d. Ferrari þar sem flestir hópast í kringum gömlu bílana. Það er t.d. iðulega mesta crowdið í kringum F40 þó flestir viti að F50 var mun betri bíll.