ice5339 wrote:Auðvitað eru afskipti borgara og lögreglu oft á tíðum misjöfn. Þú gætir hafa átt slæman dag og kemur þess vegna kalt fram við lögreglumanninn og þá sýnir sálfræðin okkur það að hann er líklegri til að svara svipuðum dúr.Lögreglumaðurinn gæti vel hafa verið að koma frá sjálfsvígsvettvangi eða dauðaslysi, sem getur óhjákvæmilega haft áhrif á hans skap eða yfirvegun.
En óháð þessu öllu saman þá legg ég til að fólk prófi smá tilraun.
A) verslaðu í sjoppu og vertu draugfúll og í vörn og sjáðu hvernig afgreiðslumaðurinn bregst við.
B) farðu í sjoppu, hrikalega hress og kátur og bjóddu góðan daginn og brostu, og sjáðu hversu mikið viðmótið hjá afgreiðslumanninum breytist.
Við erum öll manneskjur og bregðumst ávalt við því áreiti sem við verðum fyrir, oft þarf bara einn til að samskipti tveggja verða miður glæsileg.
Þeir sem búsast við slæmum samskiptum (t.d. við lögreglu) kalla það oft fram með sinni eigin hegðun og samskiptamáta.
Það má skoða þetta með því að leita að
"self fulfilling prophecy"
á vöfrurum.
"Self-fulfilling prophecy is a phenomenon by which people’s expectations about the future events lead them to behave in particular ways that, on occasion, can cause the expected event to occur. People tend to find what they are looking for. More than that, they may even tend, unwittingly, to create what they seek"
Því miður þá er þetta staðreynd.
Ef þú hefur samskipti við stétt eða aðila sem þú ert fyrirfram búin að ákveða að verði neikvæð, þá verða samskiptin óhjákvæmilega neikvæð.
Ég veit að þetta er smá (Heilan helling) off topic, en þar sem ég er menntaður á sviði félagsfræði/sálfræði þá vildi ég koma þessu fram.
Ekki það að þetta sé lausn eða svar við upphaflegu innleggi, en svolítið fyrir suma til að hugsa um.
Ehhh....Ekki ertu að meina mig???
Ég fékk ekki séns á að tjá mig neitt fyrr enn 2 hetjur voru búnar að járna mig á skottinu mínu og henda mér í volvo.
Ég var rólegur til að byrja með því ég augljóslega vissi að hvað sem væri í gangi þá væri það einn risa miskilningur og það fauk í mig fyrst þegar ég sá að það ætti að fara með mig í hafnarfjörð á stöðina og að setja strákinn í annan bíl
p.s guttinn spurði mig áðan hvort ég væri að fara í fangelsi.
Spurði mömmu sína í dag í Blómaval fyrir framan fullt af fólki hvort hún vissi ekki að Pabbi hafi verið handtekinn af löggunni,Þannig að þetta hefur augljóslega mikil áhrif á börn að lenda í svona vitleysu.
Og þið ykkar sem virðast hneykslaðir á þvi að ég setji þetta á netið þá mun ég ekki láta þetta kjurrt liggja og vill sýna hvurslags vinnubrögð eru hjá þessu liði og hvernig er níðst á blásaklausum borgurum!!!