Þórir wrote:
Ég er svosem alveg sammála því að þetta er mjög harkaleg aðgerð og lögreglumennirnir munu þurfa að útskýra hversvegna svona var staðið að hlutunum, það þurfa þeir að gera hvern einn og einasta dag. En að láta svona orð falla um fólk sem er að vinna vinnuna sína lýsir einfaldlega smásál og þið hinir sem hópist á bak við hann eruð lítið betri. Ég skil vel að þú sért ósáttur við þetta framferði EF þú hefur ekkert gert af þér, þá skaltu endilega láta reyna á þetta fyrir dómstólum, menn hafa sannarlega gert það áður og jafnvel fengið bætur. En það sem mér finnst alltaf jafn skondið er það að þeir sem rægja lögguna mest eru yfir höfuð þeir sem eru með einhverskonar óöryggi gagnvart henni og flestir þá með vonda samvisku.
Rektu þetta mál fyrir dómstólum en ekki á internetinu, þessir menn eru nefnilega ekki hérna til að svara fyrir sig!
1)
Ég er sammála Þóri láttu reyna á þetta. En mér finnst samt í góðu lagi að ræða þennan atburð hérna og gagnrýna lögregluna.
Auðvitað má þetta spjallborð ekki snúast upp í að verða einhver andstæðingur lögreglunnar en öll vitsmunaleg gagnrýni/umræða er af hinu góða svo lengi sem hún fer ekki út í persónulegar ásakanir. Sem á klárlega ekki við hér.
2)
Hér er aðeins búið að nefna ákveðinn atburð og hönum lýst hér er ekki verið að nefna eða nafngreina einstaka lögreglumenn.
3)
Ég er ekki sáttur við að þeir sem taka upp hanskann fyrir Þóri og vilja ræða þetta séu smásálir og hafi vonda samvisku. Ég þarf ekki að hafa vonda samvisku fyrir einu né neinu gagnvart lögreglunni. Ég hef aldrei verið dæmdur fyrir eitt né neitt, mér hefur aldrei verið stungið inn, ég hef aldrei verið handjárnaður. Samskipti mín við lögregluna eru þessvegna mjög lítil. Ég hef enga ástæðu til að hafa slæma samvisku.
Þar eru reyndar misjafnir menn og eflaust eru þar margir góðir, en það eru þeir ekki allir.
4)
Hvað er svo að því að segja frá reynslu sinni hér á netinu. Þetta er nú bara þjóðfélagið sem við lifum í í dag. Þetta er nú enginn málarekstur hann verður alltaf inni í dómssölum hvað sem tautar og raular.
Og eitt að lokum, hvaða tvíræði er það að segja "ég skil 100% að þú sért fúll sár og svektur en ekki segja frá því" það má ekki gagnrýna lögguna.
ps.
sorry en ég er í rosa nöldurstuði núna því ég á að vera að vinna
