bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 11:23

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 141 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5 ... 10  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 10:23 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Ég er eiginlega bara orðlaus maður :?
Gangi þér sem best með þetta.

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 10:43 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Það er alveg hreint ótrúlegt hvað sem maður reynir að vera almenilegur við þessi löggu fífl, hvað þeir eru alltaf með skítkast og mikilmennsku brjálæði til baka.
Ég veit alveg upp á mig sökina þegar ég er tekinn fyrir ofhraðann eða þessháttar brot og er ekkert nema rólegur og þægilegur að eiga við þegar ég er svo böstaður en samt láta þessir guttar alltaf einsog ég hafa stungið móðir þeirra.
Og að láta sona við þig og hafa ekkert í höndunum nema nafnlausa ábendingu er auðvita til þess að maður reynir allt sem löglegt er til að pirra þessa gaura ef maður lendir í þeim!!!
Ég fer í fílu við þig líka ef þú ferð ekki í rosalega hart við þessa gutta!! ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 10:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Úff leiðinlegt að heyra og þá sérstaklega fyrir son þinn. Sammála því að þú eigir bara fara með þetta alla leið. Gangi þér vel.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 10:54 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Þetta er súrt að lesa. Ömurlegt að lenda í svona og vera saklaus. Ég skil vel að þú sért ósáttur með þetta. Ég væri ekki par hrifinn af því að vera handjárnaður bara sí svona og farið með mig eins og afbrotamann. Hvað þá ef maður er með barnið sitt með. Það er náttúrulega bara ömurlegt fyrir það að hafa upplifað svona.

En samt sem áður, þá finnst mér algjörlega óviðeigandi að láta svona ummæli frá sér eins og ég strokaði út í textanum varðandi lögregluna. Ef svona gerist þá má vel vera að það sé e-ð að í ferlinu hjá þeim er heimilaði þessa aðgerð. En það að segja svona um fólkið sem er að vinna vinnuna sína finnst mér fyrir neðan allar hellur. Hvernig getur hver einstakur lögregluþjónn vitað fyrirfram að þú sért saklaus?? Ef ég væri að vinna þessa vinnu, lendandi í þeim hlutum sem maður les um í blöðunum þá væri ég ekkert að taka á mig sénsinn á því að fá afsagaða haglabyssu í ennið þegar ég labbaði upp að bíl sem yfirmaður minn hefði sagt mér að ætti að stoppa fyrir ólöglegan vopnaburð.

Réttlætið á að sjálfsögðu að ná fram að ganga. En ég sé ekki réttlætið í því að óska lögreglumönnum leiðinlega vist í neðra fyrir það að vinna vinnuna sína.

Ég skil 100% óánægjuna samfara þessu, þetta hlýtur að hafa verið ömurlegt. Sjálfsagt að segja frá þessu og fá leiðréttingu sinna mála ef á manni er brotið. Ég vona að gerist í þessu máli og saklaus fórnarlömb þurfi ekki að sitja undir svona aðgerðum.

Svo sé ég að fólk er hér að segja hverskonar asnar þessir laganna verðir séu og hallmælandi þeim hægri og vinstri. Ég var stöðvaður sjálfur í fyrsta skipti um daginn fyrir of hraðan akstur. Ég verð nú bara að segja að þeir aðilar voru mjög almennilegir við mig, útskýrðu fyrir mér meira en þeir þurftu varðandi radarmælinguna og voru ekkert nema liðlegheit og almennilegir. Sama á við þegar ég var stöðvaður fyrir 3 vikum í reglubundnu eftirliti. Mér var sleppt eins og skot eftir að kíkt var á ökuskírteini mitt.

Ég hef líka verið stöðvaður einu sinni ranglega fyrir að fara yfir á rauðu ljósi sem var bara bull. En einstaklingurinn má sín lítils gegn 4 lögregluþjónum svo ég varð bara að kyngja þeirri beisku staðreynd að þurfa að beygja mig í duftið og taka mistök þeirra á mig. Það er mjög erfitt að þurfa að játa á sig glæp sem maður á ekki sök á. Það svíður lengi.

En að ég detti í þann gír að segja að lögregluþjónar séu allt sem hér hefur verið talað um er svo fjarstæðukennt. Mér persónulega finnst það sýna mjög takmarkaða hugsun viðkomandi að láta út úr sér alhæfingu um lögregluþjóna sem byggja á aðgerðum einstaks lögregluþjóns og slæma upplifuna manns eftir að hafa brotið af sér.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 11:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
saemi wrote:
En að ég detti í þann gír að segja að lögregluþjónar séu allt sem hér hefur verið talað um er svo fjarstæðukennt. Mér persónulega finnst það sýna mjög takmarkaða hugsun viðkomandi að láta út úr sér alhæfingu um lögregluþjóna sem byggja á aðgerðum einstaks lögregluþjóns og slæma upplifuna manns eftir að hafa brotið af sér.
Hvaða rugli ert þú í ???

Þetta voru töluvert fleiri enn einn gaur,Þetta voru 4 bílar og fullir af fíflum og ég skrifa nákvæmlega það sem mér finnst um þessa hálfvita.

var að heyra í varðstjóra áðan og þetta var víst aðgerð ríkislögreglustjóra og voru þeir með dómsútskurð um leit í þessum bíl :roll:

Enn hann sagði að þegar ég kæri þann sem er fyndinn þá mun koma í ljós hver sá bjáni er og hann verður Image

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 11:20 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
///MR HUNG wrote:
Hvaða rugli ert þú í ???

Þetta voru töluvert fleiri enn einn gaur,Þetta voru 4 bílar og fullir af fíflum og ég skrifa nákvæmlega það sem mér finnst um þessa hálfvita.

var að heyra í varðstjóra áðan og þetta var víst aðgerð ríkislögreglustjóra og voru þeir með dómsútskurð um leit í þessum bíl :roll:

Enn hann sagði að þegar ég kæri þann sem er fyndinn þá mun koma í ljós hver sá bjáni er og hann verður Image


Það má vel vera að þér finnist ég vera í rugli. Það er bara allt í lagi ef þér finnst annað en mér. Þannig er lífið, það hafa ekki allir sömu skoðun á hlutunum.

En á meðan ég er í stjórn á þessu spjallborði og finnst ástæða til þess að ritskoða það sem er skrifað hér inn, þá geri ég það. Það er kannski þín skoðun að þú getir skrifað hér inn allt sem þig langar til. Ég ætla ekki og hef ekki bannað þér að skrifa hér það sem þú vilt. En því mun verða eytt áfram ef það er talið óviðeigandi og boð send til þín um það.

Með BMWkrafts kveðju,

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 11:41 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Posts: 1498
Location: Hrollkalda Ísland
Þetta kemur mér ekkert á óvart. Ég senti inn póst hérna inn fyrir nokkrum misserum þar sem ég hélt því fram að löggan legði BMW eigendur í einelti (ekki verður þessi grein til að draga úr þeirri skoðun minni).
Það voru magir undrandi á gagnrýni minni og sögðu "tja þú ert bara sár yfir að hafa verið tekin x2 sömu helgina" Það eru klárlega aðrar hendur lagana varða sem fara um okkur.
Svo held ég að BMW dópmálið dragi ekki úr þessu hjá aumingja mönnunum.
Ég er ekki hlintur því að menn séu svertir hérna persónulega en ég get alveg sagt ykkur að löggan er ekki hafin yfir gagnrýni.
Ég mundi svo 100% fara með þetta í lögfræðing EKKI hika við það. Þó svo það kosti þig einhverja þúsudkalla þá væri það þessi virði að fá einhvern ámynntann fyrir þetta eða þá allav. athuga hver réttur þinn er í þessu. Annars á þetta eftir að plaga þig alla tíð.

_________________
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 12:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Ég á ekki til orð.

Ég hélt nú að fleiri en einn þyrftu að láta vita um svona áður en þessi blessuðu embætti myndu taka það fyrir víst en ekki að það sé nóg fyrir einn John Doe að hringja og setja að það séu vopn eða eiturlyf í þessum og þessum bíl/um.

Ég meira að segja hélt að það væru heil 3stk sem þyrftu að benda á sama mann/bíl. En jæja.

Ég vona að þetta endi á besta veg... ekki er nú gaman að standa í þessu :x

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 13:21 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
saemi wrote:
Þetta er súrt að lesa. Ömurlegt að lenda í svona og vera saklaus. Ég skil vel að þú sért ósáttur með þetta. Ég væri ekki par hrifinn af því að vera handjárnaður bara sí svona og farið með mig eins og afbrotamann. Hvað þá ef maður er með barnið sitt með. Það er náttúrulega bara ömurlegt fyrir það að hafa upplifað svona.

En samt sem áður, þá finnst mér algjörlega óviðeigandi að láta svona ummæli frá sér eins og ég strokaði út í textanum varðandi lögregluna. Ef svona gerist þá má vel vera að það sé e-ð að í ferlinu hjá þeim er heimilaði þessa aðgerð. En það að segja svona um fólkið sem er að vinna vinnuna sína finnst mér fyrir neðan allar hellur. Hvernig getur hver einstakur lögregluþjónn vitað fyrirfram að þú sért saklaus?? Ef ég væri að vinna þessa vinnu, lendandi í þeim hlutum sem maður les um í blöðunum þá væri ég ekkert að taka á mig sénsinn á því að fá afsagaða haglabyssu í ennið þegar ég labbaði upp að bíl sem yfirmaður minn hefði sagt mér að ætti að stoppa fyrir ólöglegan vopnaburð.

Réttlætið á að sjálfsögðu að ná fram að ganga. En ég sé ekki réttlætið í því að óska lögreglumönnum leiðinlega vist í neðra fyrir það að vinna vinnuna sína.

Ég skil 100% óánægjuna samfara þessu, þetta hlýtur að hafa verið ömurlegt. Sjálfsagt að segja frá þessu og fá leiðréttingu sinna mála ef á manni er brotið. Ég vona að gerist í þessu máli og saklaus fórnarlömb þurfi ekki að sitja undir svona aðgerðum.

Svo sé ég að fólk er hér að segja hverskonar asnar þessir laganna verðir séu og hallmælandi þeim hægri og vinstri. Ég var stöðvaður sjálfur í fyrsta skipti um daginn fyrir of hraðan akstur. Ég verð nú bara að segja að þeir aðilar voru mjög almennilegir við mig, útskýrðu fyrir mér meira en þeir þurftu varðandi radarmælinguna og voru ekkert nema liðlegheit og almennilegir. Sama á við þegar ég var stöðvaður fyrir 3 vikum í reglubundnu eftirliti. Mér var sleppt eins og skot eftir að kíkt var á ökuskírteini mitt.

Ég hef líka verið stöðvaður einu sinni ranglega fyrir að fara yfir á rauðu ljósi sem var bara bull. En einstaklingurinn má sín lítils gegn 4 lögregluþjónum svo ég varð bara að kyngja þeirri beisku staðreynd að þurfa að beygja mig í duftið og taka mistök þeirra á mig. Það er mjög erfitt að þurfa að játa á sig glæp sem maður á ekki sök á. Það svíður lengi.

En að ég detti í þann gír að segja að lögregluþjónar séu allt sem hér hefur verið talað um er svo fjarstæðukennt. Mér persónulega finnst það sýna mjög takmarkaða hugsun viðkomandi að láta út úr sér alhæfingu um lögregluþjóna sem byggja á aðgerðum einstaks lögregluþjóns og slæma upplifuna manns eftir að hafa brotið af sér.


Heyr heyr Sæmi.

Ég er svosem alveg sammála því að þetta er mjög harkaleg aðgerð og lögreglumennirnir munu þurfa að útskýra hversvegna svona var staðið að hlutunum, það þurfa þeir að gera hvern einn og einasta dag. En að láta svona orð falla um fólk sem er að vinna vinnuna sína lýsir einfaldlega smásál og þið hinir sem hópist á bak við hann eruð lítið betri. Ég skil vel að þú sért ósáttur við þetta framferði EF þú hefur ekkert gert af þér, þá skaltu endilega láta reyna á þetta fyrir dómstólum, menn hafa sannarlega gert það áður og jafnvel fengið bætur. En það sem mér finnst alltaf jafn skondið er það að þeir sem rægja lögguna mest eru yfir höfuð þeir sem eru með einhverskonar óöryggi gagnvart henni og flestir þá með vonda samvisku.

Rektu þetta mál fyrir dómstólum en ekki á internetinu, þessir menn eru nefnilega ekki hérna til að svara fyrir sig!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 13:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Vel mælt Þórir...

Ég ætla ekki að reyna að setja mig í spor Nonna né löggunnar, en get svosem skilið báðar hliðar. Ömurlegt að lenda í þessu svona, sérstaklega með drenginn hágrátandi að horfa á. En afturámóti hefði þarna verið um að ræða gaur sem væri með eina afsagaða í fanginu, þá væri það einmitt svona sem maður vill sjá lögregluna díla við málið.

En hvernig er það, menn sem ljúga svona upp á aðra, sem veldur á endanum svona uppákomum, fá þeir ekki bara smá rassskell og málið búið? Eða hefur svona mönnum virkilega verið refsað?

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 13:56 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Posts: 1498
Location: Hrollkalda Ísland
Þórir wrote:

Ég er svosem alveg sammála því að þetta er mjög harkaleg aðgerð og lögreglumennirnir munu þurfa að útskýra hversvegna svona var staðið að hlutunum, það þurfa þeir að gera hvern einn og einasta dag. En að láta svona orð falla um fólk sem er að vinna vinnuna sína lýsir einfaldlega smásál og þið hinir sem hópist á bak við hann eruð lítið betri. Ég skil vel að þú sért ósáttur við þetta framferði EF þú hefur ekkert gert af þér, þá skaltu endilega láta reyna á þetta fyrir dómstólum, menn hafa sannarlega gert það áður og jafnvel fengið bætur. En það sem mér finnst alltaf jafn skondið er það að þeir sem rægja lögguna mest eru yfir höfuð þeir sem eru með einhverskonar óöryggi gagnvart henni og flestir þá með vonda samvisku.

Rektu þetta mál fyrir dómstólum en ekki á internetinu, þessir menn eru nefnilega ekki hérna til að svara fyrir sig!


1)
Ég er sammála Þóri láttu reyna á þetta. En mér finnst samt í góðu lagi að ræða þennan atburð hérna og gagnrýna lögregluna.
Auðvitað má þetta spjallborð ekki snúast upp í að verða einhver andstæðingur lögreglunnar en öll vitsmunaleg gagnrýni/umræða er af hinu góða svo lengi sem hún fer ekki út í persónulegar ásakanir. Sem á klárlega ekki við hér.

2)
Hér er aðeins búið að nefna ákveðinn atburð og hönum lýst hér er ekki verið að nefna eða nafngreina einstaka lögreglumenn.

3)
Ég er ekki sáttur við að þeir sem taka upp hanskann fyrir Þóri og vilja ræða þetta séu smásálir og hafi vonda samvisku. Ég þarf ekki að hafa vonda samvisku fyrir einu né neinu gagnvart lögreglunni. Ég hef aldrei verið dæmdur fyrir eitt né neitt, mér hefur aldrei verið stungið inn, ég hef aldrei verið handjárnaður. Samskipti mín við lögregluna eru þessvegna mjög lítil. Ég hef enga ástæðu til að hafa slæma samvisku.

Þar eru reyndar misjafnir menn og eflaust eru þar margir góðir, en það eru þeir ekki allir.

4)
Hvað er svo að því að segja frá reynslu sinni hér á netinu. Þetta er nú bara þjóðfélagið sem við lifum í í dag. Þetta er nú enginn málarekstur hann verður alltaf inni í dómssölum hvað sem tautar og raular.

Og eitt að lokum, hvaða tvíræði er það að segja "ég skil 100% að þú sért fúll sár og svektur en ekki segja frá því" það má ekki gagnrýna lögguna.

ps.
sorry en ég er í rosa nöldurstuði núna því ég á að vera að vinna :oops:

_________________
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 14:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég held að flestir geri sér ekki grein fyrir því hvernig svona hlutir fara með lítil börn,

Ég segji Nonni give them hell,

Þetta er svo léleg lögregluvinna að það er ekki eðlilegt, þeir hefðu alveg getað komið heim til þin í nótt og leitað í bílnum þá.

Ég efa að krakkinn þinn gleymi þessu nokkurn tímann,,

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 14:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Einsii wrote:
Það er alveg hreint ótrúlegt hvað sem maður reynir að vera almenilegur við þessi löggu fífl, hvað þeir eru alltaf með skítkast og mikilmennsku brjálæði til baka.
Ég veit alveg upp á mig sökina þegar ég er tekinn fyrir ofhraðann eða þessháttar brot og er ekkert nema rólegur og þægilegur að eiga við þegar ég er svo böstaður en samt láta þessir guttar alltaf einsog ég hafa stungið móðir þeirra.
Og að láta sona við þig og hafa ekkert í höndunum nema nafnlausa ábendingu er auðvita til þess að maður reynir allt sem löglegt er til að pirra þessa gaura ef maður lendir í þeim!!!
Ég fer í fílu við þig líka ef þú ferð ekki í rosalega hart við þessa gutta!! ;)


Nákvæmlega! Minnir mig á þetta eina skipti sem ég hef verið stoppaður fyrir of hraðan akstur. Fór í bílinn hjá þeim og hann byrjaði að spyrja mig. Svo sagði ég eigilega bara strax, mjög rólegur og fínn, að ég gerði mér fullkomlega grein fyrir því að ég braut af mér og ætli bara að taka afleiðingunum. Og svipurinn sem kom á gaurinn... það var einsog hann væri svekktur eða eitthvað. Var meira að segja byrjaður að skrifa í skýrsluna "Ökumaður rengir mældan hraða" og svo krotaði hann yfir það og skrifaði það sem ég sagði :lol:

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 14:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Ég reyndi að vera almennilegur þegar ég var tekinn fyrir að draga bílinn minn ólöglega, þ.e. tæknilega var það tryggingasvik eða álíka bull.

Allavega, einn lögreglumaður og ein lögreglukona og ég átti erfitt með að átta mig á því hvort þeirra væri í verra skapi. Ég var sjálfur með enga stæla, eina sem ég spurði var hvort ég þyrfti að skrifa undir og mér var sagt að ég þyrfti þess.

SVO hefur maður auðvitað lennt í mjög líbó löggum sem hafa sleppt sektum fyrir ýmislegt, stuðaraleysi + plötuleysi, ekkert bílbelti, smávægilega of hraður akstur og fleira.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 14:41 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Posts: 1498
Location: Hrollkalda Ísland
Geirinn wrote:
Ég reyndi að vera almennilegur þegar ég var tekinn fyrir að draga bílinn minn ólöglega, þ.e. tæknilega var það tryggingasvik eða álíka bull.

Allavega, einn lögreglumaður og ein lögreglukona og ég átti erfitt með að átta mig á því hvort þeirra væri í verra skapi. Ég var sjálfur með enga stæla, eina sem ég spurði var hvort ég þyrfti að skrifa undir og mér var sagt að ég þyrfti þess.

SVO hefur maður auðvitað lennt í mjög líbó löggum sem hafa sleppt sektum fyrir ýmislegt, stuðaraleysi + plötuleysi, ekkert bílbelti, smávægilega of hraður akstur og fleira.


Það er auðvitað óréttlátt að dæma heila starfsstétt fyrir afglöp nokkurra manna. En afglöp þessara manna eru nokkuð stór og alvarleg.

En svo er líka gaman að heyra sögur af "góðum" löggum það má ekki gleyma þeim.

_________________
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 141 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5 ... 10  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group