Gangi þér sem best með þetta.


Hvaða rugli ert þú í ???saemi wrote:En að ég detti í þann gír að segja að lögregluþjónar séu allt sem hér hefur verið talað um er svo fjarstæðukennt. Mér persónulega finnst það sýna mjög takmarkaða hugsun viðkomandi að láta út úr sér alhæfingu um lögregluþjóna sem byggja á aðgerðum einstaks lögregluþjóns og slæma upplifuna manns eftir að hafa brotið af sér.

///MR HUNG wrote:Hvaða rugli ert þú í ???
Þetta voru töluvert fleiri enn einn gaur,Þetta voru 4 bílar og fullir af fíflum og ég skrifa nákvæmlega það sem mér finnst um þessa hálfvita.
var að heyra í varðstjóra áðan og þetta var víst aðgerð ríkislögreglustjóra og voru þeir með dómsútskurð um leit í þessum bíl![]()
Enn hann sagði að þegar ég kæri þann sem er fyndinn þá mun koma í ljós hver sá bjáni er og hann verður

saemi wrote:Þetta er súrt að lesa. Ömurlegt að lenda í svona og vera saklaus. Ég skil vel að þú sért ósáttur með þetta. Ég væri ekki par hrifinn af því að vera handjárnaður bara sí svona og farið með mig eins og afbrotamann. Hvað þá ef maður er með barnið sitt með. Það er náttúrulega bara ömurlegt fyrir það að hafa upplifað svona.
En samt sem áður, þá finnst mér algjörlega óviðeigandi að láta svona ummæli frá sér eins og ég strokaði út í textanum varðandi lögregluna. Ef svona gerist þá má vel vera að það sé e-ð að í ferlinu hjá þeim er heimilaði þessa aðgerð. En það að segja svona um fólkið sem er að vinna vinnuna sína finnst mér fyrir neðan allar hellur. Hvernig getur hver einstakur lögregluþjónn vitað fyrirfram að þú sért saklaus?? Ef ég væri að vinna þessa vinnu, lendandi í þeim hlutum sem maður les um í blöðunum þá væri ég ekkert að taka á mig sénsinn á því að fá afsagaða haglabyssu í ennið þegar ég labbaði upp að bíl sem yfirmaður minn hefði sagt mér að ætti að stoppa fyrir ólöglegan vopnaburð.
Réttlætið á að sjálfsögðu að ná fram að ganga. En ég sé ekki réttlætið í því að óska lögreglumönnum leiðinlega vist í neðra fyrir það að vinna vinnuna sína.
Ég skil 100% óánægjuna samfara þessu, þetta hlýtur að hafa verið ömurlegt. Sjálfsagt að segja frá þessu og fá leiðréttingu sinna mála ef á manni er brotið. Ég vona að gerist í þessu máli og saklaus fórnarlömb þurfi ekki að sitja undir svona aðgerðum.
Svo sé ég að fólk er hér að segja hverskonar asnar þessir laganna verðir séu og hallmælandi þeim hægri og vinstri. Ég var stöðvaður sjálfur í fyrsta skipti um daginn fyrir of hraðan akstur. Ég verð nú bara að segja að þeir aðilar voru mjög almennilegir við mig, útskýrðu fyrir mér meira en þeir þurftu varðandi radarmælinguna og voru ekkert nema liðlegheit og almennilegir. Sama á við þegar ég var stöðvaður fyrir 3 vikum í reglubundnu eftirliti. Mér var sleppt eins og skot eftir að kíkt var á ökuskírteini mitt.
Ég hef líka verið stöðvaður einu sinni ranglega fyrir að fara yfir á rauðu ljósi sem var bara bull. En einstaklingurinn má sín lítils gegn 4 lögregluþjónum svo ég varð bara að kyngja þeirri beisku staðreynd að þurfa að beygja mig í duftið og taka mistök þeirra á mig. Það er mjög erfitt að þurfa að játa á sig glæp sem maður á ekki sök á. Það svíður lengi.
En að ég detti í þann gír að segja að lögregluþjónar séu allt sem hér hefur verið talað um er svo fjarstæðukennt. Mér persónulega finnst það sýna mjög takmarkaða hugsun viðkomandi að láta út úr sér alhæfingu um lögregluþjóna sem byggja á aðgerðum einstaks lögregluþjóns og slæma upplifuna manns eftir að hafa brotið af sér.
Þórir wrote:
Ég er svosem alveg sammála því að þetta er mjög harkaleg aðgerð og lögreglumennirnir munu þurfa að útskýra hversvegna svona var staðið að hlutunum, það þurfa þeir að gera hvern einn og einasta dag. En að láta svona orð falla um fólk sem er að vinna vinnuna sína lýsir einfaldlega smásál og þið hinir sem hópist á bak við hann eruð lítið betri. Ég skil vel að þú sért ósáttur við þetta framferði EF þú hefur ekkert gert af þér, þá skaltu endilega láta reyna á þetta fyrir dómstólum, menn hafa sannarlega gert það áður og jafnvel fengið bætur. En það sem mér finnst alltaf jafn skondið er það að þeir sem rægja lögguna mest eru yfir höfuð þeir sem eru með einhverskonar óöryggi gagnvart henni og flestir þá með vonda samvisku.
Rektu þetta mál fyrir dómstólum en ekki á internetinu, þessir menn eru nefnilega ekki hérna til að svara fyrir sig!

Einsii wrote:Það er alveg hreint ótrúlegt hvað sem maður reynir að vera almenilegur við þessi löggu fífl, hvað þeir eru alltaf með skítkast og mikilmennsku brjálæði til baka.
Ég veit alveg upp á mig sökina þegar ég er tekinn fyrir ofhraðann eða þessháttar brot og er ekkert nema rólegur og þægilegur að eiga við þegar ég er svo böstaður en samt láta þessir guttar alltaf einsog ég hafa stungið móðir þeirra.
Og að láta sona við þig og hafa ekkert í höndunum nema nafnlausa ábendingu er auðvita til þess að maður reynir allt sem löglegt er til að pirra þessa gaura ef maður lendir í þeim!!!
Ég fer í fílu við þig líka ef þú ferð ekki í rosalega hart við þessa gutta!!
Geirinn wrote:Ég reyndi að vera almennilegur þegar ég var tekinn fyrir að draga bílinn minn ólöglega, þ.e. tæknilega var það tryggingasvik eða álíka bull.
Allavega, einn lögreglumaður og ein lögreglukona og ég átti erfitt með að átta mig á því hvort þeirra væri í verra skapi. Ég var sjálfur með enga stæla, eina sem ég spurði var hvort ég þyrfti að skrifa undir og mér var sagt að ég þyrfti þess.
SVO hefur maður auðvitað lennt í mjög líbó löggum sem hafa sleppt sektum fyrir ýmislegt, stuðaraleysi + plötuleysi, ekkert bílbelti, smávægilega of hraður akstur og fleira.
Users browsing this forum: No registered users and 15 guests