Djofullinn wrote:
Logi wrote:
Aðeins að rifja upp hérna...
Er eitthvað annað en lélegir gormar sem getur valdið því að E34 sígur að aftan?
Ég er búinn að skipta um gorma og dempara að framan og aftan hjá mér. Gormarnir sem ég keypti eiga að lækka bílinn um ca 3 cm miðað við original (að framan og aftan). Bíllinn lækkaði ekkert að aftan sem betur fer, hann mátti ekki vera lægri en hann var orðinn.
Svo skipti ég um að framan í gær og hann lækkaði passlega mikið, en samsvarar sér ekki nógu vel finnst mér. Hann er áberandi lægri að aftan og ég er ekki sáttur við það. Vildi helst að hann væri 1-2 cm hærri að aftan en hann er núna...
ANYONE?
Ég held að málið sé bara að fá sér hærri gorma að aftan. Er þetta ekki bara útaf því að afturbrettin eru náttúrulega lægri en frambrettin? Allir bimmar koma með minna fendergap að aftan en framan útaf því.
Já ég geri mér grein fyrir því. Ég á eftir að mæla þetta, en mér finnst eins og það sé lægra upp í sílsana við afturbrettin en frambrettin. Finnst að það ætti frekar að vera öfugt, eða allavegana jafnhátt!