Kominn tími á update eftir sumarið, eftir bíladaga fór ég á nánast allar BMWKrafts samkomur, þetta var ansi skemmtilegt sumar



Hér eru einhverjar myndir frá samkomum í sumar






Svo gifti Árni sig í sumar, ég verð að skjóta inn nokkrum myndum þaðan, e36 blæjan alveg glæsileg hjá honum!







Svo fann ég þennan ekta Racing Dynamics 122 18 00 100 gírhnúð til sölu og varð auðvitað að kaupa hann,, langar meira í leður hnúðinn en ég finn hann kannski einn daginn...
þetta er allavega flott í bili


Fékk aðstoðarmann til að skipta um þetta og hann fékk að eiga gamla hnúðinn í staðinn




Svo er kom að haustinu og bíllinn fór inn í "Dvala"

Smá breytingar framundan hér ofaní


Árni félagi minn keypti af mér M50 Turbo kramið fyrir mörgum árum sem var í E30 M3 hjá mér á sínum tíma áðaur en hann tjónaðist illa
þetta kram fór uppúr bílnum í þokkalega góðu lagi árið 2016 og hefur ekki verið gangsett né notað síðan,, núna 10 árum seinna keypti ég það til baka

Þetta þarf góða yfirferð,, í minningunni var þetta farið að reykja svolítið þegar slegið var af og kominn tími á ýmislegt þegar þetta var tekið úr notkun

Þetta hinsvegar bjó til hellings afl á sínum tíma og ætti að geta það en í dag með smá klappi

Keypti uppgerðarsett í Borg Warner S256 túrbínuna sem var á þessu

Walbro 255 bensíndæla

Nýr knastásskynjari og sveifarásskynjari

Ný vatnsdæla, leiðarahjól, strekkjari og strekkjarahjól

Lok á olíusíuhúsið sem sensor portum uppá olíuhita

Vatnsláshús og 88c vatnslás

Hosur, klemmur og turbo blanket,, (Nýr intercooler á leiðinni)

Túrbínan komin til baka frá Aroni Jarl,, hann græjaði uppgerðarsettið í hana fyrir mig

Gamla góða VEMS standaloneið,, þetta er pínu úrelt en þetta er til svo þetta verður notað áfram



Mótorinn er svo ljótur eitthvað að ég ákvað að taka olíusíuhúsið og fríska uppá það ásamt því að skipta um pakkningu milli blokkar og síuhúss.

Vélarsalurinn verður allur slípaður og málaður í leiðinni verða e30 cabrio styrkingar soðnar í bílinn



Sandblés og málaði lokið framaná heddinu til að fríska uppá lookið


Strax farið að líta aðeins betur út, ventlalokið verður sandblásið og málað líka á næstunni

Fleiri update á leiðinni á næstunni
