Held það sé kominn tími á smá update, bíllinn fékk smá dekur (Mössun og bón) fyrir sumarið




Var bónaður með DoDO Juice bóni eftir mössun

Strukum aðeins af vélarsalnum líka

Svo var svo fínt veður þrátt fyrir að ég keyrði bílinn út til að smella myndum af honum eftir mössunina


Keypti nýja gírkassapúða og tók pólý gírkassa púðana úr, við þá breytingu snar minnkaði allur víbringur í hægagangi,
Svo fyrst maður er með Racing Dynamics stýri, petala ofl varð ég að fá gírhnúð í stíl, þetta er nýr hnúður sem er í raun eftirlíking,
því miður finn ég hvergi orginal RD gírhnúð, en þetta er ansi góð replica, svo þetta verður að duga þangað til ég finn orginal RD gírhnúð einn daginn



Svo eru það smá atriðin, öskubakkinn aftur í hefur alltaf verið brotinn hjá mér,
ég fékk óbrotinn öskubakka gefins sem var með ónýtri fjöður fyrir lokið, færði lokið og fjaðrinar af mínum brotna á þann sem ég fekk gefins
Smáatriðin sko!


Svo er það afturbekkurinn,, ótrúlega ljótur... ljósgrár með engum höfuðpúðum og passar ekki við neitt annað inni í bílnum

ég er ekki kominn með annan afturbekk en ég eignaðist mjög þurra og myglaða leður höfuðpúða ásamt bracketum fyrir þá,
ákvað því að þrífa þá upp og koma þeim í bekkinn þrátt fyrir að vera kannski ekki alveg í stíl við gráa tauið, en það er á dagsskrá seinna að láta klæða afturbekkinn í svart leður.


Brakketin fyrir hauspúðana

Komið í,, læt svo klæða afturbekkinn upp í svart leður næsta haust kannski, sjáum til.


Svo er það rúsínan í pylsuendanum!
flutti inn felgugang sem mig hefur lengi langað í, Racing Dynamics RGP 17" Staggered 17x8.5 og 17x9.5
Eru í flottu standi en sá sem átti þær á undan mér málaði þær svartar, sem er viðbjóður en við kippum því í lag áður en þær fara undir bílinn.




Nokkrum vikum seinna:














Ansi ánægður með útkomuna, næsta skref verður að kaupa á þetta dekk og setja undir.
Fólk hefur kannski tekið eftir því að ég er mikið fan af Racing Dynamics, ég fann þennan gamla bækling í Indónesíu sem er 144bls catalog yfir e30/e36/e34/e31 ofl bíla,
auðvitað varð ég að eignast þetta svo ég borgaði heimskulega mikið fyrir þetta











Draumurinn er að finna e30 Racing Dynamics body kit, þá fær Mtech 2 kittið á bílnum að fjúka.