bmw X4

Sástu flottan BMW og vilt leyfa okkur hinum að njóta líka? Póstaðu því þá hér.

bmw X4

Postby jonthor » Tue 09. Apr 2013 16:27

Mér finnst þessi lofa góðu, hvað segja menn?

http://www.bmwcoop.com/2013/04/05/bmw-o ... 4-concept/
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Re: bmw X4

Postby olinn » Tue 09. Apr 2013 16:35

Lookar vel, þó ég hafi aldrei raunverulega samþykkt þessa niður að aftan jepplinga frá bmw
325is seldur
User avatar
olinn
Getawaybílstjóri
 
Posts: 829
Joined: Tue 11. May 2010 22:46

Re: bmw X4

Postby oskar9 » Tue 09. Apr 2013 17:17

Allveg er maður að fá gubbuna af þessum "SUV" tilraunum hjá BMW, hvað gerir þessi bíll sem 530D gerir ekki ? Afi átti 2011 X5 og þetta var einhver versti bíll sem ég hef keyrt ef maður fór útaf þjóðveginum, og við skulum ekki einusinni tala um hvernig hann lét ef hann byrjaði að festast í snjó :lol: , X1 er fáranlegur, X3 er ljótur, X5 er flottur og X6 er useless bíll.

X5 er samt það eina sem meikar eitthvað sens í þessum jeppalínum hjá BMW, frekar stór og rúmgóður fjölskyldu bíll með medium ground clearance, hitt eru allt einhverjar inkaupakerrur með einhverju plat 4x4 kerfi, allavegna eftir að hafa prufað Cayenne og RR í bæði miklum snjó og utanvegar drullu og grjótakstri þá sér maður hvað þetta er mikið platkerfi hjá BMW hehe

Ættu að beefa X5 aðeins upp og gera hann meira jeppalegan, stækka svo X3 og gera hann líkari því sem X5 er í dag, svo má losa sig við restina
VW Touareg V8
Audi 90, 2.8
BMW 540IA
Alpina B-10 V8
Lexus SC-400
User avatar
oskar9
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 94
Joined: Sat 28. Mar 2009 16:28

Re: bmw X4

Postby Alpina » Tue 09. Apr 2013 18:21

oskar9 wrote:Allveg er maður að fá gubbuna af þessum "SUV" tilraunum hjá BMW, hvað gerir þessi bíll sem 530D gerir ekki ? Afi átti 2011 X5 og þetta var einhver versti bíll sem ég hef keyrt ef maður fór útaf þjóðveginum, og við skulum ekki einusinni tala um hvernig hann lét ef hann byrjaði að festast í snjó :lol: , X1 er fáranlegur, X3 er ljótur, X5 er flottur og X6 er useless bíll.

X5 er samt það eina sem meikar eitthvað sens í þessum jeppalínum hjá BMW, frekar stór og rúmgóður fjölskyldu bíll með medium ground clearance,

Ættu að beefa X5 aðeins upp og gera hann meira jeppalegan, stækka svo X3 og gera hann líkari því sem X5 er í dag, svo má losa sig við restina


Djöfull er ég ánægður með Óskar.. lesa þessum vitleysingum pistilinn,, ég er svo 100% sammála :thup: :thup:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: bmw X4

Postby íbbi_ » Tue 09. Apr 2013 20:24

ég verð eiginlega að vera sammála þessu að mörgu leyti

X5 er góður, bæði sá eldri og sá yngri. hann er er þvílíkt akkurat spot on í það sem þessir bílar eiga i.m.o að gera, bíll sem veitir 5-7línu lúxus og gadgets í bíl sem kemur þér í vinnuna innanbæjar allt árið.

þegar það kemur hinsvegar að jeppapartinum þá er X5 illa niðurlægður af cayanne/touareg og þá sérstaklega af sínum eigin systurbíl RR. fyrir mér hinsvegar skiptir það engu máli þannig, ég sæi bara ekki fyrir mér að tíma að beita svona bíl utanvegar á rándýrum 20" álfelgum.
í ræsir hérna áður var innanhúsgrín að ef þú ætlaðir út


x3 gamli fannst mér alltaf spes bíll, ég fékk svoleðis bíl með 3.0l Diesel vélinni reglulega til notkunar og hann var alveg brilliant, ég gat hinsvegar ekki fyrir mitt littla líf áttað mig á því hverju þessi bíll átti að skila, því að það var ekkert sem hann gerði sem 330xd touring myndi ekki gera. og 330xd gott betur smekklegri bíll heldur en x3

sá alla þessa X drive flóru fyrir utan BL um daginn finnst x1 lúmskt flottur, hann er að keppa við audi Q5, vw tiguan og mercedes GLK.
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: bmw X4

Postby Davíð » Tue 09. Apr 2013 21:56

Ég er sammála ýmsu þarna.. er ekki að fíla X1 og X3, X6 er flottur enjá useless. Var ekki hrifinn af X5 fyrren ég fékk mér slíkan, E53 4.4. Og ég verð að segja að ég varð virkilega impressed með hvernig hann er í snjó og ófærð.. því fyrirfram bjóst ég við nákvæmlega ENGU enda var ekkert endilega að leita eftir því. Á lala dekkjum keyrði ég auðveldlega í hringi kringum Audi Q5 og Q7 sem sátu alls staðar fastir í smá snjó. Efast ekki um að RR séu betri utanvegar, en Touareq er ég ekki hrifinn af. Hef ekki prufað Cayenne utanvegar eða í snjó.

Hef alltaf verið hrifinn af MB ML bílunum eftir ca. 2005, en þessi nýji finnst mér forljótur.
Davíð
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 23
Joined: Thu 11. Aug 2011 01:58

Re: bmw X4

Postby Alpina » Tue 09. Apr 2013 23:16

Davíð wrote:Ég er sammála ýmsu þarna.. er ekki að fíla X1 og X3, X6 er flottur enjá useless. Var ekki hrifinn af X5 fyrren ég fékk mér slíkan, E53 4.4. Og ég verð að segja að ég varð virkilega impressed með hvernig hann er í snjó og ófærð.. því fyrirfram bjóst ég við nákvæmlega ENGU enda var ekkert endilega að leita eftir því. Á lala dekkjum keyrði ég auðveldlega í hringi kringum Audi Q5 og Q7 sem sátu alls staðar fastir í smá snjó. Efast ekki um að RR séu betri utanvegar, en Touareq er ég ekki hrifinn af. Hef ekki prufað Cayenne utanvegar eða í snjó.

Hef alltaf verið hrifinn af MB ML bílunum eftir ca. 2005, en þessi nýji finnst mér forljótur.


Alveg skelfingin ein
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: bmw X4

Postby Eggert » Wed 10. Apr 2013 00:19

Einhvernveginn grunar mig samt að BMW séu búnir að gera talsvert meira í sínum rannsóknum en að sleikja þumalinn og stinga honum upp í loftið til að komast að þeirri niðurstöðu að svona skipta þeir kaupendum niður í hópa sem versla svo þessa jepplinga af þeim. Það eru töluverð fræði þarna á bakvið þó svo að við sjáum bara hvað meikar sens á okkar litla Íslandi :thup:
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Re: bmw X4

Postby íbbi_ » Wed 10. Apr 2013 01:08

bmw hefur líka verið að auka gríðarlega við sig á ýmsum öðrum mörkuðum en bílarnir voru hannaðir fyrir hérna áður og sömuleiðis hefur aðsóknin í premium brand bíla aukist mikið. og því er ekkert nema eðlilegt að bílaframleiðendurnir hamri járnið meðan það er heitt, þetta snýst jú allt um að búa til meiri peninga.

já shi.. djöfull klúðruðu benz útlitinu á nýja ML hann er alveg hrikalega ófríður. eins og 06-11 bíllinn er fínn
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: bmw X4

Postby Dr. Stock » Wed 10. Apr 2013 23:03

oskar9 wrote:Allveg er maður að fá gubbuna af þessum "SUV" tilraunum hjá BMW, hvað gerir þessi bíll sem 530D gerir ekki ? Afi átti 2011 X5 og þetta var einhver versti bíll sem ég hef keyrt ef maður fór útaf þjóðveginum, og við skulum ekki einusinni tala um hvernig hann lét ef hann byrjaði að festast í snjó :lol: , X1 er fáranlegur, X3 er ljótur, X5 er flottur og X6 er useless bíll.

X5 er samt það eina sem meikar eitthvað sens í þessum jeppalínum hjá BMW, frekar stór og rúmgóður fjölskyldu bíll með medium ground clearance, hitt eru allt einhverjar inkaupakerrur með einhverju plat 4x4 kerfi, allavegna eftir að hafa prufað Cayenne og RR í bæði miklum snjó og utanvegar drullu og grjótakstri þá sér maður hvað þetta er mikið platkerfi hjá BMW hehe

Ættu að beefa X5 aðeins upp og gera hann meira jeppalegan, stækka svo X3 og gera hann líkari því sem X5 er í dag, svo má losa sig við restina


Ja, hér er ekki skafið utan af því. Átt E53 4,4 og á nú E70 3,0si. Báðir eru frábærir akstursbílar en verð að segja að akstursánægjan var mun meiri með 4,4 velina undir húddinu! E70 liggur vel, góður í hálku og snjó (á réttum dekkjum), rýmri en E53. Myndi kaupa allt annað ef ég væri að leita mér að torfærutæki - þá vil ég bíl með millikassa og lágt drif en það býður BMW ekki uppá. En E61 Touring 530xi sem ég á einnig slær þessum bílum gersamlega við varðandi aksturseiginleika; fjórhjóladrifið, lágur þyngdarpunktur, léttarien X5 = Snarpur og Límdur við veginn!!! Snilldarvagn.

PS: Já nýi ML Bensinn er hræðilega ljótur; hélt þetta væri einhver illa heppnaður Kóreujeppi (Norður-Kóreu kannski?) er ég sá hann fyrst :thdown:
Image
BMW X1, 18d, 2014 (E84)
BMW X5, 4,8i, 2007 (E70)
BMW 635CSi,1986 (E24)
BMW 316,1987 (E30)
BMW 530Xi Touring, 2006 (E61), seldur
BMW X5, 2007, (E70), seldur
BMW X5 4,4i, 2004 Seldur
User avatar
Dr. Stock
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 148
Joined: Wed 15. Nov 2006 21:58
Location: Hafnarfjörður

Re: bmw X4

Postby íbbi_ » Thu 11. Apr 2013 09:20

líka virkilega eiguleg fimman sem þú átt dr stock.


fyndið hvað nýji ML er ljótur því að núna var að koma nýr GL sem er bara mjög fallegur. og GL og ML eru löng og stutt útgáfa af sama bílnum
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: bmw X4

Postby Jón Ragnar » Thu 11. Apr 2013 11:45

Nýi GL-inn er hrikalega flottur

ML-inn er alveg ágætur líka

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1


Return to Áhugaverðir bimmar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests