by srr » Mon 05. Nov 2012 01:44
Einarsss wrote:Sælir, Rafgeymirinn kláraðist um daginn eftir að það voru skilin eftir stöðuljósin á honum í 6 tíma, gaf svo bílnum start og var hann í lagi í 36 tíma. Kom svo að honum í gær tómum aftur (engin ljós sem voru skilin eftir á á honum).
Reyndar kom vélarljósið á hann eftir að ég gaf honum startið í fyrsta skiptið en mig minnir endilega að það sé sér ljós ef hleðslan er ekki í lagi á e39.
Anyways, ég fór og keypti 12v hleðslugaur og er búinn að hafa kvikindið í hleðslu síðan kl 18 í gær og samkvæmt mælinum á hleðslugræjunni þá er hann nánast tómur! byrjaði í ca 6-7v en er núna ca 1v. Er manni ekki óhætt að dæma hann ónýtan og punga út fyrir nýjum?
Var að spá í að fara í rafgeymasöluna í hafnarfirði að græja nýjan, minnir að það hafi verið talað um að þeir séu ódýrastir? Annars sýnist mér að geymir að þessari stærð 100ah og stór um sig sé í kringum 36k

Mælirinn á hleðslutækinu sýnir yfirleitt það sem hann er að hlaða inn á geymirinn, ekki það sem geymirinn er í V.
Byrjar hátt og lækkar svo eftir því sem hleðslan verður meiri á geyminum.
Þannig virka allavega bæði hleðslutækin mín.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d