slapi wrote:
Ráða mennirnir eru venjulega að vinna í bílferðunum og ekki veitir af að nýta sem mestann tíma hjá sér í vinnu.
Ferðirnar eru mjög oft samnýttar ef menn eru að fara á sama manninn.
Þegar menn eru að tala um að láta þá hafa spark eða eitthvað, þetta eru vinnustaður bílstjóranna og eg er ekki alveg viss um að ég myndi vilja keyra 40-50-60 þús á ári í einhverju ógeði. Bílstjórarnir hafa verið mjög anægðir með BMW og Benz t.d. Ekki jafn hrifnir af Skoda og Toyota t.d.
Síðan er það þessi blessaði Lexus sem M.r President á að ef hann fer hann á honum út á völl þarf að fara annar bíll með til að taka farangurinn , hybrid shittið tekur allt skottið.
Þegar ÓRG fer upp á völl, þá fer hann oftast á LC 120 jeppa forsetaembættisins. Sá bíll er einnig mikið notarður milli Bessastaða og Sóleyjargötu (forsetaskrifstofan)
Þar sem ég þekki ágætlega til í þessum geira - og menn eru að láta sig þessi mál varða hérna á kraftinum, þá er ekki úr vegi að koma með upptalningu á þeim bílum sem eru nú þegar í þjónustu ráðuneytanna, forsetaembættisins og Alþingi.
BMW-arnir eru fjórir:
Fjármálaráðuneytið er með E60 í sinni þjónustu, utanríkisráðuneytið er með E53, forsætisráðuneytið er með E65 730Li sem er ekinn 220.þús. Alþingi er sömuleiðis með 730Li.
Toyoturnar sem ég man eftir í svipinn er áðurnefndur LC 120 forsetaembættisins og annar slíkur hjá Sjávar- og landbúnaðarráðuneytinu (breytist að líkindum vegna sameiningar ráðuneyta). Lexusarnir RX 400 eru þrír, hjá umhverfisráðuneytinu, velferðarráðuneytinu og iðnaðarráðuneytinnu. Þá hafði iðnaðarráðuneytið MMC Meva rafmagnsbíl til afnota í sumar, veit ekki hvort hann sé enn til staðar.
Benzarnir eru tveir, einn GL jeppi hjá viðskiptaráðuneytinu og w211 E280cdi sem er einskonar "floder" á milli ráðaneyta.
Innanríkisráðuneytið er með VOLVO XC90 og Mennta - og menningarmálaráðuneytið er með AUDI A6.
Forsetaembættið er með Cadillac og Packard (árg 1943) sem eru einungis notaðir á hátíðardögum - og svo áðurnefnda Lexus og LC 120.






Af því Slapi minnist á Skoda hér að ofan, þá minnist ég ekki að hafa séð Skoda hjá neinu af ráðuneytunum. Borgarstjórn er að vísu með einn Skoda Suberb, sem er bíll nr. tvö hjá þeim - og lætur bílstjórinn ágætlega af þeim bíl að ég best veit.
_________________
Jón Birgir
Mercedes-Benz C124 230CE '91
Renault Mégane II Sport Tourer '04
BMW E39 520i '99 (seldur)
BMW E28 518 '82 (seldur)
BMW GT