bjarni-m5 wrote:
ég er svona að pæla hvað kostar að fara ut í svona véla breytingar eins og þessi maður er að gera
STAY AWAY! þetta er dýrt dýrara dýrast og svo eitthvað dýrara en það.
Þetta byrjar gjarnan á því að menn vilja smá afl aukningu en endar svo í ruglinu (take it from me).
Ef við förum í basics þá er kostnaðurinn c.a. svona fyrir V8 sem er fully built (c.a. verð) hef þetta í EUR.
1200 stimplasett (Þrykktir CP)
900 stangasett (þrykktar)
300 ARP heddboltasett
300 heddpakningasett
250 slípisett (rebuild)
400 stangalegur og höfuðlegur
1500 Slívar (S62 þarf þær) giska á verðið
1500 fyrir plönun á heddum, borun á blokk og insert á slívum
800 Spíssar
Þá ertu með selection af flottum varahlutum og á eftir að setja saman.
Verð aðeins € 7150
Svo kemur kostnaður við blásarakerfið sem er kanski € 5000?
+
Sterkari kúpling € 500
+
ECU og tjún eða OEM og MrX tjún. € 2500
Samtals án samsetningar € 15,150 e
Þetta sinnum 160 = 2.4 milljónir, og ég er að skjóta á verðin hér locally og því án gjalda til Íslands.
Þá ertu mögulega með 500-600hestafla S62
Það verður aldrei hægt að réttlæta þetta kostnaðarlega, en auðvitað er mikil ánægja í þessu þegar þetta er í lagi.
Persónulega held ég að þetta henti bara í tveimur tilvikum.
Annarsvegar þegar menn eiga fyrir þessu og eru það handlagnir (og með aðstöðu) að þeir geta sett saman sjálfir
Hinsvegar þar sem að svo mikið er til af peningum að þetta verður eingögnu gert á "because I can" forsendum.