by Danni » Sat 20. Aug 2011 18:27
Það sem ég er nú mest hræddur við er hversu stabílt þetta er.
Rétt áður en ég færði mig úr Arion vegna þess að þeir voru ekki lengur með útibú í Keflavík þá fékk ég svona kortalesara frá þeim. Ég setti upp, fór 100% eftir leiðbeiningum og gat síðan byrjað að nota þetta.
En síðan kom það vandamál að Windows var ekki alveg sammála mér því að þetta var öruggt og eftir að hafa notað undirskriftina mína einu sinni þá gat ég ekki notað hana aftur án þess að restarta tölvunni!
Þannig ég komst inn í heimabankann, en ef ég vildi t.d. millifæra inn á einhvern sem ég hafði aldrei millifært á áður þá gat ég það ekki, vegna þess að ég þurfti að restarta tölvunni til að nota kortið aftur, en þá þurfti ég nota kortið til að skrá mig inn.
Það er að mínu mati skref afturábak að láta fólk fá búnað sem það tengir við tölvuna sína, þar sem að mjög margir notendur í dag eru alls ekki klárir á tölvur!
Ég er MIKIÐ á móti þessu. Þegar ég fór yfir í Byr og fékk nýja kortið spurði þjónustufulltrúinn mig hvort að ég væri búinn að fara inn á heimabankann og fá PUK númerið fyrir kortið svo ég gæti virkjað rafrænu skilríkin. Ég sagði henni að ég væri ekki búinn að því og ég ætlaði ekki að gera það, því ég ætla mér ekki að notast við þetta. Frekar vil ég nota auðkennislyklana en þetta drasl!
Danni
'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi