Rant um nýu auðkennislyklana

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby gardara » Sat 20. Aug 2011 14:50

ValliFudd wrote:
Þeir vilja uppfæra öryggið hjá sér og ég á að borga fyrir það ?

:roll:

Þeir eru að auka öruggið fyrir þig, ekki sig.. Ég veit ekki með þig en ég vil nú helst ekki að aðrir séu að fara inn í minn heimabanka


Það er þá skrýtið að þetta sé ekki valfrjálst... Ef ég vil meira öryggi, þá get ég borgað fyrir það... Ef ég vil það ekki, þá á eǵ ekki að þurfa að greiða þetta gjald.
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby ValliFudd » Sat 20. Aug 2011 14:57

gardara wrote:
ValliFudd wrote:
Þeir vilja uppfæra öryggið hjá sér og ég á að borga fyrir það ?

:roll:

Þeir eru að auka öruggið fyrir þig, ekki sig.. Ég veit ekki með þig en ég vil nú helst ekki að aðrir séu að fara inn í minn heimabanka


Það er þá skrýtið að þetta sé ekki valfrjálst... Ef ég vil meira öryggi, þá get ég borgað fyrir það... Ef ég vil það ekki, þá á eǵ ekki að þurfa að greiða þetta gjald.


Maður á ekki að treysta notendum þegar kemur að svona öryggismálum..:) Ef það væri ekki password policy á heimabönkum og flestum tölvukerfum í fyrirtækjum væru flestir með lykilorð upp á 4 stafi, og í 90% tilfellum hluta af sinni eigin kt...
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby SteiniDJ » Sat 20. Aug 2011 15:04

Auðvitað eiga þeir að borga fyrir þetta. Hvað ætli þeir spari mikinn pening við það að hafa alvöru varnir?
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby ValliFudd » Sat 20. Aug 2011 15:13

Ég er sammála því að bankarnir ættu að leggja út fyrir þessu, það er ekki það sem ég er að tala um. Ég er bara að tala um öryggismál. Þau eiga ekki að vera val notanda, því notandinn veit í flestum tilfellum ekki skít, eins og allir kerfisstjórar og tölvunerðir vita :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby Bjarkih » Sat 20. Aug 2011 15:26

og ef bankarnir myndu leggja út fyrir þessu þá myndu þeira vellta kostnaðinum á notendur með öðru móti. 500 kall (það sem ég borga fyrir lesara hjá arion) er ekki neitt, hættið þessu væli. Mun þetta svo ekki gera önnur viðskipti á netinu auðveldari þar sem maður stingur t.d. bara kreditkortinu í græjuna til að versla á amazon og slíkum síðum? Feginn verð ég að sleppa við að pikka helvítis númerið inn.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby gardara » Sat 20. Aug 2011 15:30

Mér skylst reyndar að þessi rafrænu skilríki verði svo hægt að tengja við aðra vefi en einungis banka... Sem er mjög sniðugt á stöðum þar sem menn stunda viðskipti, þar geta menn sýnt fram á að þeir séu í raun og veru þeir.

Hver veit nema Ingimar geri þá kröfu að allir tengi rafræn skilríki við prófílinn sinn hér á kraftinum :lol:
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby ppp » Sat 20. Aug 2011 15:49

Bjarkih wrote:500 kall (það sem ég borga fyrir lesara hjá arion) er ekki neitt, hættið þessu væli.


fram kemur á vef Auðkenna að einkaskilríki, svonefnd smartkort, kosti 9.900 kr. á ári með vsk.
335i e92 (JB4, downpipes og margt fleira gúdderí.)
330d e46 (Mr. X!)
User avatar
ppp
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1145
Joined: Fri 09. Oct 2009 13:41

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby Lindemann » Sat 20. Aug 2011 18:10

ég held að þetta sé ef þú vilt rafrænt skilríki sem er ekki innbyggt í greiðslukorti
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby ppp » Sat 20. Aug 2011 18:26

Lindemann wrote:ég held að þetta sé ef þú vilt rafrænt skilríki sem er ekki innbyggt í greiðslukorti


Þá er þetta ekki jafn slæmt. En samt algjör óþarfi. Það er ekkert að þessum lyklum. Tala nú ekki um ef þú takmarkar aðganginn við ákveðið IP range. Nánast 100% bulletproof.
335i e92 (JB4, downpipes og margt fleira gúdderí.)
330d e46 (Mr. X!)
User avatar
ppp
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1145
Joined: Fri 09. Oct 2009 13:41

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby Danni » Sat 20. Aug 2011 18:27

Það sem ég er nú mest hræddur við er hversu stabílt þetta er.

Rétt áður en ég færði mig úr Arion vegna þess að þeir voru ekki lengur með útibú í Keflavík þá fékk ég svona kortalesara frá þeim. Ég setti upp, fór 100% eftir leiðbeiningum og gat síðan byrjað að nota þetta.

En síðan kom það vandamál að Windows var ekki alveg sammála mér því að þetta var öruggt og eftir að hafa notað undirskriftina mína einu sinni þá gat ég ekki notað hana aftur án þess að restarta tölvunni!

Þannig ég komst inn í heimabankann, en ef ég vildi t.d. millifæra inn á einhvern sem ég hafði aldrei millifært á áður þá gat ég það ekki, vegna þess að ég þurfti að restarta tölvunni til að nota kortið aftur, en þá þurfti ég nota kortið til að skrá mig inn.

Það er að mínu mati skref afturábak að láta fólk fá búnað sem það tengir við tölvuna sína, þar sem að mjög margir notendur í dag eru alls ekki klárir á tölvur!

Ég er MIKIÐ á móti þessu. Þegar ég fór yfir í Byr og fékk nýja kortið spurði þjónustufulltrúinn mig hvort að ég væri búinn að fara inn á heimabankann og fá PUK númerið fyrir kortið svo ég gæti virkjað rafrænu skilríkin. Ég sagði henni að ég væri ekki búinn að því og ég ætlaði ekki að gera það, því ég ætla mér ekki að notast við þetta. Frekar vil ég nota auðkennislyklana en þetta drasl!
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby kalli* » Sat 20. Aug 2011 18:57

Skemmtileg kenning bakvið þetta að hvað það er hægt að nota þetta í svo mikið fleiri hluti en bara heimabankann,
voðalega erfitt að fá þetta drasl til þess að virka samt.

Spurning samt hvort að þar sem að þetta er svona mikið stærra og ekki á lyklakippum þá týnist þetta ekki eins
mikið. Stelpan í útibúinu mínu sagði mér að allir auðkennislyklar hjá þeim (sem að framleiða þetta) væri
hreinlega búið. :lol:
Image
'01 e46 320Ci
Seldir - '96 e39 540i | e36 M50B25 Compact | 99' BMW 316i Compact | '91 e34 520i
User avatar
kalli*
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2687
Joined: Sun 29. Mar 2009 14:06

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby Zed III » Sat 20. Aug 2011 19:35

svo lengi sem svona er valfrjálst er mér slétt sama hvað þetta kostar, enda myndi ég ekki kaupa þessa "þjónustu".

Ef viðskiptavinir vilja meira öryggi þá flott að þeir geti keypt það en að fara í svona aðgerðir og senda svo bara reikning á viðskiptavini óspurða er bara óeðlilegt. Þetta er bara fyrir öryggi bankana (og sennilega líka skv tilskipunum ESB).

Eru t.d. innbyggð slot í ipödum og nýju síminum ? Svarið við því er nei. Á maður þá að ganga um með svona lesara ? Svarið við því er líka nei. Það er þá verið að klippa síma úr bankasamskiptum. Hversu mikil þjónusta er það ?
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby Eggert » Sat 20. Aug 2011 19:37

Það fylgja þessu allt of margir ókostir... ekki séns að ég sé í þokkabót að fara að borga fyrir þetta.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby iar » Sat 20. Aug 2011 20:58

Mazi! wrote:Ég þoli sjálfur ekki þessa auðkennislykla,, stórir á lyklakippuna, algjört drasl og ljótir.


Skrifar bara nokkur númer á miða og geymir í veskinu.. tekur ekkert pláss! ;-) Lykillinn má svo liggja í einhverri skúffu heima þar til þú "hleður" bréfmiðann aftur.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Re: Rant um nýu auðkennislyklana

Postby SteiniDJ » Sat 20. Aug 2011 21:08

iar wrote:
Mazi! wrote:Ég þoli sjálfur ekki þessa auðkennislykla,, stórir á lyklakippuna, algjört drasl og ljótir.


Skrifar bara nokkur númer á miða og geymir í veskinu.. tekur ekkert pláss! ;-) Lykillinn má svo liggja í einhverri skúffu heima þar til þú "hleður" bréfmiðann aftur.


Höhh, virkar það? Kemur mér á óvart.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 32 guests