ppp wrote:Æi veistu 320d er örugglega kappaksturstæki miðað við marga bíla sem að 17 ára unglingar byrja að keyra á í dag, og hvað þá fyrir 10 árum síðan.
Svo má spyrja sig hversu mikið minni hraða hefði þurft til þessa að farþeginn hefði lifað af. Það er kannski spurning um örfáa km/klst. Hefði þetta skeð á 50 hestafla Polo? Hver veit.
Er Polo jafn öruggur og E46? Ég þekki það ekki, en sú spurning vaknar hvort að smábílar séu eitthvað betri ef tjón á sér stað.
En 2.0d er nú ekkert kappaksturstæki, þrátt fyrir að það sé BMW. Hvað ef þetta hefði verið 2.0 Lancer?

Endalaust hægt að pæla í þessu, en mín skoðun er svo að þvinganir myndu ekki skila miklu. Skynsemi eykst ekkert við minna afl.