Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby Henbjon » Thu 11. Aug 2011 01:22

Sælir spjallverjar. Ég keypti tölvu á dögunum sem ég borgaði fyrir og allt í góðu með það. Viku seinna fæ ég símtal þess efnis um að ég hafi fengið tölvu með betri örgjörva en sú sem ég pantaði. Nú gefa þeir mér option um að skila þessari og fá þá tölvu sem ég átti upprunalega að fá eða borga það sem þessi örgjörvauppfærsla hefði kostað(30 þús).

Mistökin eru klárlega ekki mín megin. Hvernig er þetta með svona mál? Hef ég rétt á að halda tölvunni án þess að borga mismuninn?

Þetta er óþægilegt þar sem ég hef sett upp tölvuna og gert allt sem þarf að gera og því pirrandi að þurfa gera allt upp á nýtt við aðra tölvu.
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby bimmer » Thu 11. Aug 2011 01:36

Segðu þeim að þér finnist ekkert mál að þeir skipti út tölvunni en
þá aðeins ef þeir sjái um að flytja uppsetninguna yfir þannig að
allt sem þú sért búinn að setja upp virki 100%.

Held að þeir nenni ekki að eltast við þetta.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby Orri Þorkell » Thu 11. Aug 2011 02:12

þú átt ekki að borga neitt, talaðu við neitendasamtökin ef þeir halda áfram að böggast í þér, http://www.dv.is/consumer/2011/2/2/theirra-mistok/
BMW 735i E32
Subaru 1800 Turbo Yoda
User avatar
Orri Þorkell
Getawaybílstjóri
 
Posts: 710
Joined: Wed 27. Sep 2006 22:15

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby Orri Þorkell » Thu 11. Aug 2011 02:15

var þetta nokkuð tölvutek?
BMW 735i E32
Subaru 1800 Turbo Yoda
User avatar
Orri Þorkell
Getawaybílstjóri
 
Posts: 710
Joined: Wed 27. Sep 2006 22:15

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby SteiniDJ » Thu 11. Aug 2011 02:16

Algjörlega þeirra mistök og ættu þeir að gefa þér þennan 30.000 mismun í staðinn fyrir að ónáða þig frekar með þetta. Þú ert eflaust búinn að gera eitt og annað við tölvuna þína; setja inn forrit, leiki, myndir og altl á þeim nótum. Það er ekkert skemmtiverk að ganga frá öllu því aftur.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby fart » Thu 11. Aug 2011 07:49

Ég er ósammála því að þetta sé alfarið þeirra sök. það er eitt að ranglega verðmerkja vöru, eins to t.d. tölvumús, þar sem að verðmunurinn er ekki greinilegur, en annað væri t.d. að ranglega verðmerkja bíl þar sem að milljónir myndi vanta uppá verðið.

En þegar maður kaupir eina vöru, en fær aðra vöru senda, á fyrirtækið rétt á því að skipta vörunni út fyrir rétta vöru, en að sjálfsögðu kaupandanum að kostnaðar og óþægindalausu í þessu tilviki þar sem aðeins er um að ræða örgjörva, og því ekki víst að kaupandinn hefði fattað það. Annað ef að þú hefðir t.d. keypt þér MacBook, en fengið dýrustu týpu af MacBook Pro senda (sem væri augljóst í augum flestra).

Hinsvegar held ég að Þórður sé alveg með lausnina, þú segir ekkert mál, svo lengi sem ég fæ setupið mitt 100% yfir á nýju vélina, þeir sækja og senda. Grunar að þeir láti málið niður falla.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby SteiniDJ » Thu 11. Aug 2011 09:13

Mistökin eru þeirra; er þetta ekki þ.a.l. þeirra sök?

Sama hvernig horft er á þetta þá mun þetta valda viðskiptavininum óþægindum sem hefðu aldrei þurft að eiga sér stað. Persónulega finnst mér að fyrirtækið ætti að bíta í það súra epli að þurfa sjá eftir þessum 30.000 kall og reyna að standa sig betur næst.

Þetta er eins og ef við í IKEA myndum senda viðskiptavini dýrari útgáfu af bókaskáp fyrir slysni, en rukka fyrir ódýrari. Það síðasta sem gert yrði væri að hafa samband við viðkomandi og biðja hann um að skila vörunni (og sennilegast rífa hana í sundur) eða greiða mismuninn. Það er góð leið til þess að missa viðskiptavin og svo myndum við einnig sitja uppi með notaða vöru, ekki ólíkt því sem myndi gerast í þessu dæmi. Ekki að ég geti eitthvað commentað á meðferð hjá OP á tölvunni, hvort það sé hreinlæti eða hvernig vélin er höndluð, en þá er hún ekki lengur ný og væri rangt að þeim að selja hana sem slíka.

/mindless rant. Kominn í mikla svefnskuld, ætla að fara borga hana núna.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby fart » Thu 11. Aug 2011 09:42

Þetta eru þeirra mistök og ekki kaupandans, það er óumdeilt, enda fer kaupandi lappans varla sjálfur inn á lager.

Það breytir því ekki að þeir hafa lagalegan rétt til að fá vöruna aftur (myndi ég halda), en svo er það auðvitað spurning hvort að það borgi sig fyrir þá fjárhagslega fyrir þá, því að auðvitað verða þeir að gera þetta sómasamlega og óþægindalítið fyrir kaupandann eins og kostur er á, enda tölvur dálítið spes vara.

Ég myndi halda að þetta væri debateable mál ef að nótan fyrir tölvunni myndi sýna dýrari örgjörvann en verð miðað við þann ódýrari, þá er alveg líklegt að kaupandinn geti borið fyrir sig að hann hafi verið alveg grunlaus um mistökin og að verðmunurinn sé ekki teljandi.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby Henbjon » Thu 11. Aug 2011 11:19

Ég fór í búðina til að ná í tölvuna, fékk hana ekki senda heim. En ég hafði ekki hugmynd um þennan örgjörva, enda er ég ekki mikið að gramsa í spec-um á tölvu sem ég hélt ég vissi flest um.
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby Zed III » Thu 11. Aug 2011 12:57

segir þú þeim ekki að þú sért búinn að rispa hana fullt, skreyta með límmiðum eða gefa hana í afmælisgjöf ?
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby ValliFudd » Thu 11. Aug 2011 13:16

Zed III wrote:segir þú þeim ekki að þú sért búinn að rispa hana fullt, skreyta með límmiðum eða gefa hana í afmælisgjöf ?


Sendu þeim þessa mynd og spurðu hvort þeir splæsi í nýja límmiða fyrir nýju tölvuna :lol:


Image
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby fart » Thu 11. Aug 2011 15:09

Eða að lappinn sé stútfullur af porni og lyklaborðið nett sticky. :thup:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby HAMAR » Thu 11. Aug 2011 16:48

Image
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby ///MR HUNG » Thu 11. Aug 2011 17:18

Ég mundi nú bara segja þeim að hringja ekki aftur.
Get enganveginn séð hvernig þeir geti gert rassgat í þessu þar sem þetta er þeirra klúður og svo er nú merkilegt að þeir skulu bara yfir höfuð nenna að standa í svona bulli!
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Re: Keypti tölvu, fékk ranga(betri), nú fæ ég rukkun.

Postby Axel Jóhann » Thu 11. Aug 2011 17:23

Alfarið þeirra feill.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 115 guests