Sælir spjallverjar. Ég keypti tölvu á dögunum sem ég borgaði fyrir og allt í góðu með það. Viku seinna fæ ég símtal þess efnis um að ég hafi fengið tölvu með betri örgjörva en sú sem ég pantaði. Nú gefa þeir mér option um að skila þessari og fá þá tölvu sem ég átti upprunalega að fá eða borga það sem þessi örgjörvauppfærsla hefði kostað(30 þús).
Mistökin eru klárlega ekki mín megin. Hvernig er þetta með svona mál? Hef ég rétt á að halda tölvunni án þess að borga mismuninn?
Þetta er óþægilegt þar sem ég hef sett upp tölvuna og gert allt sem þarf að gera og því pirrandi að þurfa gera allt upp á nýtt við aðra tölvu.







