er það eðlilegt á 530d að hann sé 20min að hitna í langkeyrslu á lágun snúning? þegar hann er orðinn heitur og maður fer niður langa brekku þá dettur hitinn niður um 1/4 og er örugglega 5min að fara uppí miðjuna aftur. það er nýr vatnslás í honum og nýr kælivökti og er búið að lofttæma
FRAMHALD:var að skipta um EGR thermostatið og bíllinn er u.þ.b. 3x fljótari að hitna. nú er komið nýtt vandamál, bíllinn er farinn að reykja duglega, sýndist þetta vera hvítur reikur, fór að gera þetta um leið og hann hitnaði eftir að ég skipti um þetta.
Fannst þetta vera það mikill reikur að kannski að túrbínan væri á leiðinni að fara, en svo virðist ekki vera, hún virðist alveg gera sitt og nákvæmlega eins hljóð í henni og er alltaf og kemur inn á nákvæmlega sama stað á snúningnum.
allavega eftir að ég var búin að skipta um þetta thermostat (eða vatnslás) þá lét ég hann ganga aðeins og lofttæmdi svo, keyrði hann svo aðeins og lofttæmdi aftur en það kom ekkert loft þá, það virðist ekkert vera búið að lækka í forðabúrinu og vökvinn er ennþá alveg jafn grænn og hann var þegar ég setti hann í.
finnst eins og þetta gæti verið eitthvað með þetta egr system, það er ekki búið að virka í mjög langan tíma sennilega búið að hitna mjög mikið og mjög oft áður en þess að hafa rennsli i gegnum sig. Ef það smitar eitthvað þar hlítur það að smita út og enda sem reikur og útum pústið aftur.

skipti um stk nr 14 á myndinni, spurning hvort unitið sem kælivatnið rennur í gegnum leki.
minnir að ef það sé blár reikur þá sé það olía en ef það sé hvítur sé það eitthvað annað t.d. vatn