Eins og ég hef áður sagt þá finnst mér bara fyndið að menn sem "þykjast" hugsa sérlega vel um bílana sína kaupi Mobil 1 á 1500 kall, bóni reglulega en tími samt ekki að kaupa annað en ódýrasta bensínið á bílinn....
Ég sem bílaáhugamaður var afskaplega stoltur og ánægður að Shell skyldi fyrst bjóða uppá bensín fyrir þennan kaupendahóp.
ÉG er hinsvegar ekki viss um að viðtökurnar hafi verið nægjanlega góðar til að þetta verði í boði áfram, þetta sló hinsvegar í gegn í Bretlandi enda er það land sennilega með virkustu bíladellumenn í heimi.
Ég tek nánast alltaf V-Power og í þau fáu skipti sem ég tek ekki V-Power þá tek ég 98 okt hjá Orkunni við Eiðistorg. Einstaka sinnum hef ég tekið 95 þegar verðstríð er í gangi á bimmann en þá kemst hann alltaf sirka 50 km styttra á tankinum þannig að sparnaðurinn er ekki mikill.
Nú er bara að stilla porkerinn fyrir 99+ okt og skella honum í dynomælingu
