///MR HUNG wrote:
Er ekki nóg að renna yfir þennann þráð til að sjá hvaða framkomu bílasalar þurfa að vinna við og ég get nú bara alveg skilið þá stundum
Hvað haldið þið að þeir þurfi að eiga við marga dekkjasparkara á hverjum degi?
Kannski sitja þeir bara uppi með dekkjasparkara því þeir eru margir hverjir sjálfir asnar?
Kannski er mikið um dekkjasparkara í þessu því að menn vilja margir hverjir vera skynsamir og fara hægt í stórar fjárfestingar?
Hmm?
IvanAnders wrote:
SteiniDJ wrote:
Vefsamskipti eru einfaldlega hluti af hversdagsleikanum. Ef þið ætlið ekki að venja ykkur á þau (sérstaklega rekstraraðilar), þá getið þið farið og fundið ykkur helli til þess að búa í.
OK, ég þurfti að sætta mig við það að fólk ætlar greinilega ekki að taka upp símann, eða mæta og skoða hluti sem kosta undir 100k.
En seriously! Ef ég ætla að versla eitthvað á milljón+ þá dettur mér ekki í hug að nota tölvu til þess! Í alvöru talað, það er útí hött að búa á þessu litla landi og geta ekki hringt eða mætt þegar stærri viðskipti eiga sér stað!
Hlakkar alltaf í mér þegar það kemur upp sú staða, að eitthvað vinsælt er auglýst á góðu verði, einhver alvöru, mætir og staðgreiðir, og svo sér maður menn væla yfir því að ekki hafi verið svarað tölvupóstum frá sér

Mér er sama. Kannski hef ég engan tíma til að vera kíkja á bílasölu eða hringt í viðkomandi (hugsanlega er ég í vinnu þar sem vont er að liggja í síma í margar mínútur?) og því væri fínt að koma nokkrum hlutum á borðið og hreyfingu á ferlið. Þá kannski fæ ég að vita hvort þetta sé eitthvað sem ég á að taka mér tíma til þess að kanna nánar?
Þetta er mjög einfalt. Ef þú ert læs, þá er e-mail án efa þægilegasti samskiptamátinn ef þú ert þolinmóður og síðan er ekkert vera að vera með hlutina á blaði.
Annars, hafið þetta eins og ykkur finnst best að gera þetta. En ef þið eruð í þjónustustarfi, þá skuluð þið vera tilbúnir til þess að haga vinnuaðferðum ykkar eftir þörfum kúnnans, því annars getið þið algjörlega gleymt þessu.
