Það sem fer mest í taugarnar á mér, er þegar maður hringir á bílasölu og bíður einhverja x tölu í bíl
með þeim fyrirvara að mér líki hann, og bílasalinn segist ætla að bjalla í eigandann og hringja svo aftur.
En svo bíður maður kannski til lok dags og ekkert símtal komið frá bílasölunni þannig að maður
hringir aftur til að athuga hvort þeir hafi náð í eigandann og þá segja þeir já, en bíllinn er seldur, eða
já en hann vildi ekki fara svo lágt.
Þegar maður fær þetta svar eftir að vera búinn að bíða kannski í heilan dag án þess að fá símtal
frá þeim, þá verður maður svo pirraður yfir því að þeir hafi ekki getað drullast til að hringja bara strax í
mann og segja manni frá því til að maður geti þá fengið gagntilboð frá seljanda, eða farið strax að spá
í öðrum bíl, að ég hætti strax að spá meira í þeim bíl og sneiði einnig framhjá þeirri sölu framvegis....
Mér finnst lágmarks kurteisi að láta hugsanlegan kaupanda strax vita þegar eitthvað svar kemur frá seljanda,
hvort sem það er að bíllinn sé seldur, eða að hann vilji fá hærra tilboð eða bara hvað sem er
Ég er búinn að lenda mikið í þessu á seinustu vikum þar sem ég var að selja tvo bíla, og kaupa aðra tvo.