Ég er búinn að velta því fyrir mér í dágóða stund hvort að ég eigi að hafa tilvísun í þann texta sem þú varst búinn að skrifa Sveinbjörn, svar mitt er hálf tilgangslaust á tilvísunar, en ég ætla að láta duga byrjunina. Tók út helling, fannst það varla hafandi eftir, en gæti sent mönnum það í EP ef þeir vilja lesa svörin mín í samhengi.
Quote:
Ég er orðlaus með ... ÖLLU..... .. er næstum lamaður yfir þessari ósvífni.. held að þetta sé einn almesti yfirgangur sem ég hef orðið vitni af .. á nokkru bílaspjalli EVER.............. er þetta hnotskurn af yfirsýn fólks í æðri stöðum bankageirans hérlendis sem erlendis .. eða er þetta RÉTTLÆT SÝNÍSLENDINGS . sem vinnur í bankageiranum
mér blöskrar ....að einn tekjuhæsti einstaklingur spjallborðsins FRÁ UPPHAFI skuli ,,,,,,,,dirfast ,, svo óháð sé til orða tekið
að geta í aðdraganda allra hörmunga ,, sem duna yfir bæði land og þjóð.. veröld og ég veit ekki hvað .. og flest allra ,
,, nei nei,, best að hégómast og biðja um styrk af einhverjum Íslenskum spjallborðdmeðlimum edit:...
blanki finace ,, aðilinn ,,,,,,,,,,,,, edit:....
Nær væri að slá þessu upp á forsíðu DV eða MBL,,,,,,,,,,
edit: restinni sleppti ég,
.............
Það er greinilegt að sá vetvangur sem ég starfa í og hef starfað í hefur meira vægi en mín persóna á þessu spjalli hjá sumum, ég átti nú svosem alveg von á því að menn væru mjög ósammála þessari hugmynd (n.b. bara hugmyd enn sem komið er), en að þessu yrði stillt upp svona finnst mér vægast sagt, æ ég veit það ekki, ég er orðlaus...
Ég lít svo á hér eftir að ég muni aldrei njóta sannmælis hjá þér Sveinbjörn, ég er/verð alltaf einhver bankaglæpon í þínum huga, jafnvel þó svo að ég hafi aldrei verið einhver glæpamaður. Falleg vinakveðja sem maður fær frá þér svona í morgunsárið. Gott og vel þú breyttir svarinu, en samt búinn að segja það sem þú sagðir.
Það er fínt að vera ósammála þessu en að stilla þessu svona upp er alveg rúmlega ósanngjarnt. Ég er ekkert að kenna kraftsmeðlimum um þetta tjón, þér eða öðrum, né að krefjast þess að þeir chippi in, í raun ætlaði ég aldrei að beina þessu að kraftsmönnum heldur frekar alþjóðasamfélaginu, þar sem að fjöldinn er mikill og bíllinn vel þekktur.
Ég er líka alveg
100% viss (höfum það 99,99% viss) að það sé
ekki verið að chippa inn til að hjálpa
mér, heldur Gunna, þar sem að ég er enn á því að þetta sé hans tjón fjárhagslega. Ég er líka næstumþví 100% viss um að Gunni komi ekki til með að hafa fjármuni til þess að borga það sem uppá vantar á næstu misserum, þar sem að tjónið getur verð verulegt.
Þessi samlíking þegar þú keyrðir útaf Sveinbjörn er bara léleg, hvernig á ég að geta borðið ábyrgð á því að þú sért hugsanlega að keyra umfram getu? Ertu að vísa í það að Gunni var að tjúna umfram getu, það má teljast möguleiki, en samt gengur samlíkingin ekki upp. Ef ég hefði verið að keyra bílinn þinn og rústað honum þá gengi samlíkingin kanski upp. Þannig að það sé á hreinu þá hafa fleiri þurft að selja frá sér djásnin sín vegna breyttra fjárhaslegra aðstæðna, t.a.m. undirritaður.
Ef þú hefðir beiðið mig um að hjálpa þér með þetta tjón þitt á sínum tíma, á einhvern hátt, t.d. skilja bílinn eftir úti hjá mér og finna verkstæði, koma bílnum á verkstæði og slíkt (hugsanlega lána þér fyrir einhverju af skaðanum) hefði það 100% komið til greina, nákvæmlega eins og ég hef verið að gera síðustu árin fyrir marga meðlimi. Ég man ekki betur en ég hafi einmitt boðið aðstoð þegar þetta gerðist hjá þér, er öðruvísi að bjóða aðstoð eða biðja um hana? Þáðir þú hana ekki að því að ég var bankamaður? En samlíkingin er bara vond, ítreka það.
..Ef ég hefði t.d. verið að fikta sjálfur, eins og ég hef gert, og þetta hefði farið í flækju, eins og það gerði í fyrra, myndi ég bara taka því eins og maður og borga og gera við sjálfur eins og ég gerði. Ég myndi mögulega reyna að sækja mér spons frá fyrirtækjum og/eða afslætti, það má teljast mjög líklegt, þar sem að bíllinn er vel þekktur og það má mjólka.
Það sem ég er að biðja menn um að gera fyrir Gunna er í raun lítið öðruvísi en það þegar menn biðja kunnáttumenn um hjálp, aðstoð eða álíka sem vinagreiða, fá að nota aðstöðuna, eða komast í einhver tæki, setja dót í tösku eða hvað fleira má nefna. Peningar eru ekkert öðruvísi en tími/lán á verðmætum. Menn ráða því hvort að menn aðstoða eða ekki. Er það þannig að að því að ég er Bankamaður þá má ég ekki biðja um aðstoð frá neinum, jafnvel þó svo að sú aðstoð sé ekki til handa mér, heldur þriðja aðila? Á ég bara að borga og brosa, eða hugsanlega horfa á það að fá ekki bílinn minn aftur fyrr en eftir mjög langan tíma, og skilja Gunna eftir í fjárhagslegri rúst? Í þessu tilviki er ekki hægt að biðja um neina aðstöð, nema hugsanlega fjárhagslega, og þá til handa Gunna.
Ég hef marg tekið það fram að það eru til mun verðugri mál til að styrkja en þetta, hörgumnar víðsvegar í heiminum, fátækt á Íslandi og þannig, rétt vona að menn séu að styrkja slíkt. Þetta eru ekki hörmungar eða annað álíka, heldur áhugamál, nákvæmlega eins og þau fjölmörgu áhugamál sem menn styrkja, t.d. eins og að borga meðlimagjöld í félagsskap o.s.frv. og flestir okkar styrkja margoft á ári jafnvel.
Tek það líka fram að ég hef ekki enn tekið við neinum áheitum frá Íslendingum.
Varðandi mig persónulega þá er það stór misskilningur að ég sé eitthvað ríkur, það er svo fjarri raunveruleikanum að það nær ekki nokkurri átt.
Fín laun hef ég en kostnaður við að búa hér þar sem ég bý er ógurlegur, það sem eftir stendur mánaðarlega er kanski í hærra lagi á Íslenskan mælikvarða, en dugar samt ekki í það að maður geti hent þúsundum Evra í hitt og þetta. Það var þannig fyrir nokkrum árum, nákvæmlega eins og það var þannig hjá flestum Íslendingum fyrir nokkrum árum, en ekki í dag. Þegar ég er búinn að borga mína skatta af laununum mínum (vonlaust fyrir mig að vinna svart og stela undan skatti eins og margir hafa stundað í fjölda ára) er afgangurinn frekar takmarkaður, þegar maður er með stóra fjölskyldu og slíkt, án þess að ég sé sérstaklega að hvarta yfir því. Það er með ólíkindum hvað menn geta velt sér upp úr því að ég eigi að vera eitthvað mega ríkur, skilja menn ekki að ég var það kanski á pappírunum á einhverjum tímapunkti, en þeir pappírar eru einskis virði í dag.
með kveðju,
SýniÍslendingurinn og bankaglæpamaðurinn.
editaði út meira úr quotation.