bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 27. Jun 2025 18:07

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 6333 posts ]  Go to page Previous  1 ... 236, 237, 238, 239, 240, 241, 242 ... 423  Next
Author Message
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 01:08 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 03. May 2003 18:34
Posts: 1610
someone had to say it.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 01:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Mar 2009 22:09
Posts: 2654
Location: Keflavik
:popcorn:

_________________
e34 "M5" Nauticgrun
BMW X5 4,4i sport
e34 525T TDS Brokatrot
e32 740i Calypsorot


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 01:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Ég segi að nokkrar af síðustu blaðsíðunum í þessum þræði verði færðar í annan þráð í Off-Topic og þeim þræði síðan LÆST. Ég nenni ekki að horfa upp á enn eitt svona vælið og tuðið hérna og finnst að Sveinn og Gunni eiga bara að leysa þetta mál sín á milli og pósta síðan niðurstöðunni þegar hún er komin.... í Feedback þráðinn.

Eftir að hafa fylgst með þessum þræði frá því vélarhrunið átti sér stað var það alveg bókað mál að einhver svona sprengja eins og frá Sveinbirni myndi springa.

Höldum þessum þræði um þennan bíl og ræðið úrlausnina á uppákomunni annarstaðar :arrow:

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 01:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Mar 2009 22:09
Posts: 2654
Location: Keflavik
mér finnst það er ekkert á þessum þrædi...
keep it real

_________________
e34 "M5" Nauticgrun
BMW X5 4,4i sport
e34 525T TDS Brokatrot
e32 740i Calypsorot


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 01:19 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45
Posts: 5844
Kristjan PGT wrote:
someone had to say it.

Nákvæmlega


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 01:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Posts: 2822
Location: 112 RVK, E30 city
Ég veit ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta.

_________________
BMW E30 325i Coupe
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 01:37 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Posts: 1422
Location: Kársnesið
Er eitthvað verið að "biðja" fólk um að borga?
Þú chippar bara inn smá aur ef þú vilt, voðalega eru menn að gera stórt kvikindi úr lítilli flugu.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 08:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Ég er búinn að velta því fyrir mér í dágóða stund hvort að ég eigi að hafa tilvísun í þann texta sem þú varst búinn að skrifa Sveinbjörn, svar mitt er hálf tilgangslaust á tilvísunar, en ég ætla að láta duga byrjunina. Tók út helling, fannst það varla hafandi eftir, en gæti sent mönnum það í EP ef þeir vilja lesa svörin mín í samhengi.
Quote:
Ég er orðlaus með ... ÖLLU..... .. er næstum lamaður yfir þessari ósvífni.. held að þetta sé einn almesti yfirgangur sem ég hef orðið vitni af .. á nokkru bílaspjalli EVER.............. er þetta hnotskurn af yfirsýn fólks í æðri stöðum bankageirans hérlendis sem erlendis .. eða er þetta RÉTTLÆT SÝNÍSLENDINGS . sem vinnur í bankageiranum

mér blöskrar ....að einn tekjuhæsti einstaklingur spjallborðsins FRÁ UPPHAFI skuli ,,,,,,,,dirfast ,, svo óháð sé til orða tekið

að geta í aðdraganda allra hörmunga ,, sem duna yfir bæði land og þjóð.. veröld og ég veit ekki hvað .. og flest allra ,
,, nei nei,, best að hégómast og biðja um styrk af einhverjum Íslenskum spjallborðdmeðlimum edit:...

blanki finace ,, aðilinn ,,,,,,,,,,,,, edit:....

Nær væri að slá þessu upp á forsíðu DV eða MBL,,,,,,,,,,

edit: restinni sleppti ég,
.............


Það er greinilegt að sá vetvangur sem ég starfa í og hef starfað í hefur meira vægi en mín persóna á þessu spjalli hjá sumum, ég átti nú svosem alveg von á því að menn væru mjög ósammála þessari hugmynd (n.b. bara hugmyd enn sem komið er), en að þessu yrði stillt upp svona finnst mér vægast sagt, æ ég veit það ekki, ég er orðlaus...

Ég lít svo á hér eftir að ég muni aldrei njóta sannmælis hjá þér Sveinbjörn, ég er/verð alltaf einhver bankaglæpon í þínum huga, jafnvel þó svo að ég hafi aldrei verið einhver glæpamaður. Falleg vinakveðja sem maður fær frá þér svona í morgunsárið. Gott og vel þú breyttir svarinu, en samt búinn að segja það sem þú sagðir.

Það er fínt að vera ósammála þessu en að stilla þessu svona upp er alveg rúmlega ósanngjarnt. Ég er ekkert að kenna kraftsmeðlimum um þetta tjón, þér eða öðrum, né að krefjast þess að þeir chippi in, í raun ætlaði ég aldrei að beina þessu að kraftsmönnum heldur frekar alþjóðasamfélaginu, þar sem að fjöldinn er mikill og bíllinn vel þekktur.
Ég er líka alveg 100% viss (höfum það 99,99% viss) að það sé ekki verið að chippa inn til að hjálpa mér, heldur Gunna, þar sem að ég er enn á því að þetta sé hans tjón fjárhagslega. Ég er líka næstumþví 100% viss um að Gunni komi ekki til með að hafa fjármuni til þess að borga það sem uppá vantar á næstu misserum, þar sem að tjónið getur verð verulegt.

Þessi samlíking þegar þú keyrðir útaf Sveinbjörn er bara léleg, hvernig á ég að geta borðið ábyrgð á því að þú sért hugsanlega að keyra umfram getu? Ertu að vísa í það að Gunni var að tjúna umfram getu, það má teljast möguleiki, en samt gengur samlíkingin ekki upp. Ef ég hefði verið að keyra bílinn þinn og rústað honum þá gengi samlíkingin kanski upp. Þannig að það sé á hreinu þá hafa fleiri þurft að selja frá sér djásnin sín vegna breyttra fjárhaslegra aðstæðna, t.a.m. undirritaður.

Ef þú hefðir beiðið mig um að hjálpa þér með þetta tjón þitt á sínum tíma, á einhvern hátt, t.d. skilja bílinn eftir úti hjá mér og finna verkstæði, koma bílnum á verkstæði og slíkt (hugsanlega lána þér fyrir einhverju af skaðanum) hefði það 100% komið til greina, nákvæmlega eins og ég hef verið að gera síðustu árin fyrir marga meðlimi. Ég man ekki betur en ég hafi einmitt boðið aðstoð þegar þetta gerðist hjá þér, er öðruvísi að bjóða aðstoð eða biðja um hana? Þáðir þú hana ekki að því að ég var bankamaður? En samlíkingin er bara vond, ítreka það.

..Ef ég hefði t.d. verið að fikta sjálfur, eins og ég hef gert, og þetta hefði farið í flækju, eins og það gerði í fyrra, myndi ég bara taka því eins og maður og borga og gera við sjálfur eins og ég gerði. Ég myndi mögulega reyna að sækja mér spons frá fyrirtækjum og/eða afslætti, það má teljast mjög líklegt, þar sem að bíllinn er vel þekktur og það má mjólka.

Það sem ég er að biðja menn um að gera fyrir Gunna er í raun lítið öðruvísi en það þegar menn biðja kunnáttumenn um hjálp, aðstoð eða álíka sem vinagreiða, fá að nota aðstöðuna, eða komast í einhver tæki, setja dót í tösku eða hvað fleira má nefna. Peningar eru ekkert öðruvísi en tími/lán á verðmætum. Menn ráða því hvort að menn aðstoða eða ekki. Er það þannig að að því að ég er Bankamaður þá má ég ekki biðja um aðstoð frá neinum, jafnvel þó svo að sú aðstoð sé ekki til handa mér, heldur þriðja aðila? Á ég bara að borga og brosa, eða hugsanlega horfa á það að fá ekki bílinn minn aftur fyrr en eftir mjög langan tíma, og skilja Gunna eftir í fjárhagslegri rúst? Í þessu tilviki er ekki hægt að biðja um neina aðstöð, nema hugsanlega fjárhagslega, og þá til handa Gunna.

Ég hef marg tekið það fram að það eru til mun verðugri mál til að styrkja en þetta, hörgumnar víðsvegar í heiminum, fátækt á Íslandi og þannig, rétt vona að menn séu að styrkja slíkt. Þetta eru ekki hörmungar eða annað álíka, heldur áhugamál, nákvæmlega eins og þau fjölmörgu áhugamál sem menn styrkja, t.d. eins og að borga meðlimagjöld í félagsskap o.s.frv. og flestir okkar styrkja margoft á ári jafnvel.

Tek það líka fram að ég hef ekki enn tekið við neinum áheitum frá Íslendingum.

Varðandi mig persónulega þá er það stór misskilningur að ég sé eitthvað ríkur, það er svo fjarri raunveruleikanum að það nær ekki nokkurri átt.
Fín laun hef ég en kostnaður við að búa hér þar sem ég bý er ógurlegur, það sem eftir stendur mánaðarlega er kanski í hærra lagi á Íslenskan mælikvarða, en dugar samt ekki í það að maður geti hent þúsundum Evra í hitt og þetta. Það var þannig fyrir nokkrum árum, nákvæmlega eins og það var þannig hjá flestum Íslendingum fyrir nokkrum árum, en ekki í dag. Þegar ég er búinn að borga mína skatta af laununum mínum (vonlaust fyrir mig að vinna svart og stela undan skatti eins og margir hafa stundað í fjölda ára) er afgangurinn frekar takmarkaður, þegar maður er með stóra fjölskyldu og slíkt, án þess að ég sé sérstaklega að hvarta yfir því. Það er með ólíkindum hvað menn geta velt sér upp úr því að ég eigi að vera eitthvað mega ríkur, skilja menn ekki að ég var það kanski á pappírunum á einhverjum tímapunkti, en þeir pappírar eru einskis virði í dag.

með kveðju,

SýniÍslendingurinn og bankaglæpamaðurinn.

editaði út meira úr quotation.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Last edited by fart on Tue 22. Mar 2011 12:53, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 08:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59
Posts: 1870
Image

_________________
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 10:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Finnst mér hreint út sagt að sumir hér inni mættu skammast sín. Mönnum er frjálst að hafa sína skoðun á hlutunum en skulu samtímis hafa vit á að hugsa sig um hver boðskapur skrifa þeirra er. Oftar en ekki þarf bara að fínpússa textann en í þessu tilfelli þarf slípirokk. Virðist stundum gleymast að "submit" takkinn eru raddbönd internetsins, þegar þú hefur ýtt á takkann þá eru skrifin orðin veruleg og jafnframt ódauðleg.

Hvort að maðurinn sé steinríkur eða við sultarmörkin kemur málinu ekkert við, honum er enn frjálst að fara þær leiðir sem hann kýs svo lengi sem þær eru innan laga. Ég get ekki séð hvernig "einn af tekjuhæstu einstaklingum spjallsins" muni koma út í bullandi gróða, kostnaðurinn er fáránlegur og þeir peningar koma aldrei tilbaka nema þá í formi ánægju. Og þá einungis ef vel gengur og allt virkar, getum eflaust verið sammála um að í augnablikinu virkar ekkert og ánægjan því afar takmörkuð.

Ef ég hef skilið þetta rétt þá er verið að halda persónulegu fjárhagslegu tjóni í lágmarki með því að safna styrktaraðilum og dreifa afgangi á þá sem vilja rétta hjálparhönd. Ég þekki hvorugan aðila persónulega nema þá Gunna vegna þess að við erum úr sama bæjarfélagi og hann hjálpaði mér með smá tjún á óæðri japanskri bifreið fyrir ca. einum áratug. Það er heldur enginn að bera þetta saman við þær hamfarir sem hafa dunið á mannkyninu undanfarna mánuði og ár, nema kannski þeir aðilar sem eru með stein í skónum. Þið vitið hverjir þið eruð og megið gjarnan taka þetta til ykkar, það er alveg ókeypis.

Ég persónulega styrki góð málefni, styrki alltaf sömu málefnin og hef gert um árabil. Ekki vegna þess að ég er með rassgatið fullt af peningum heldur vegna þess að ég er aflögufær. Núna hef ég lesið nánast allt sem skrifað hefur verið um alla bíla allra meðlima og hef alltaf átt nokkra uppáhaldsbíla hérna inni. Þetta er einn af uppáhaldsbílunum ásamt ONNO, Rauðhettu og Hringvöðvanum. Mér líst vel á þetta hjá þér Sveinn og er afskaplega hrifinn af því hvernig þú hefur kennt sjálfum þér og lært af mistökum along the way. Það er fullt af potential í þessum bíl og akkúrat þess vegna þarf þessi bíll að koma aftur á götuna.
Þess vegna ætla ég að gefa €100 um leið og þú setur upp info um Paypal :)

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 16:26 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Úfffff.

Ég held að Sveinbjörn hafi ekki alveg verið að hafa í huga það sem ég skrifaði um að fólk ætti að fara varlega á þessum þræði.

Mér finnst þetta innlegg hans miður gott.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 17:22 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Posts: 2389
Location: keflavik
Já það er nú bara spurning hvort það þurfi ekki að skella honum í skammakrókinn :thdown:

_________________
BMW 525D E61 07 Facelift


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 18:09 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Posts: 1318
Location: Selfoss
Aron M5 wrote:
Já það er nú bara spurning hvort það þurfi ekki að skella honum í skammakrókinn :thdown:


Rólegur, það er allt í lagi að hafa sínar skoðanir og tjá sig, neita því ekki að hann fór kannski aðeins yfir strikið en hann sá af sér og breytti innlegginu sem sýnir manndóm allavega.

Allavega er ég hlutlaus í þessu öllu saman en vona að þetta leysist sem best fyrir báða aðila - allt svo Fart og GSTuning.

_________________
Enginn bíll eins og er.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 18:53 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Vlad wrote:
Aron M5 wrote:
Já það er nú bara spurning hvort það þurfi ekki að skella honum í skammakrókinn :thdown:


Rólegur, það er allt í lagi að hafa sínar skoðanir og tjá sig, neita því ekki að hann fór kannski aðeins yfir strikið en hann sá af sér og breytti innlegginu sem sýnir manndóm allavega.

Allavega er ég hlutlaus í þessu öllu saman en vona að þetta leysist sem best fyrir báða aðila - allt svo Fart og GSTuning.

Það þykir mér nú ekki, hann bara strokaði út eftir sig bullið svo fleiri gætu ekki hneikslast á honum, að byðjast afsökunar hefði aftur á móti sýnt manndóm.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Mar 2011 19:47 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Posts: 1318
Location: Selfoss
Einsii wrote:
Vlad wrote:
Aron M5 wrote:
Já það er nú bara spurning hvort það þurfi ekki að skella honum í skammakrókinn :thdown:


Rólegur, það er allt í lagi að hafa sínar skoðanir og tjá sig, neita því ekki að hann fór kannski aðeins yfir strikið en hann sá af sér og breytti innlegginu sem sýnir manndóm allavega.

Allavega er ég hlutlaus í þessu öllu saman en vona að þetta leysist sem best fyrir báða aðila - allt svo Fart og GSTuning.


Það þykir mér nú ekki, hann bara strokaði út eftir sig bullið svo fleiri gætu ekki hneikslast á honum, að byðjast afsökunar hefði aftur á móti sýnt manndóm.


Well, hann sá allavega af sér. Trúi ekki öðru að meðað við það að þeir séu félagar að hann biðji hann afsökunar.

_________________
Enginn bíll eins og er.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 6333 posts ]  Go to page Previous  1 ... 236, 237, 238, 239, 240, 241, 242 ... 423  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group