Bjarkih wrote:Þetta er s.s. fín hugmynd ef rafmagn er bara framleitt þegar bíllinn rennur t.d. niður brekku eða álíka. En það eru líka til fleiri aðferðir til að geyma orku, sú einfaldasta er svinghjól. Það var einhver svíi að segjast vera búinn að þróa rafmagnsbíl sem kæmist ansi langt þar sem hann geymdi svo mikla orku í svinghjólinu, snúningurinn á því var einhver fáránlega há tala.

Sælir félagar
Og virkilega gaman að sjá hversu áhuginn fyrir svona snáka olíu er á íslandi..
Bara svo þið vitið þá er 30 daga skila frestur ef ekki ánægður með árangur.
Spurningin er hvar á ég að byrja? Af hverju virkar þetta? Og af hverju ekki??
Þegar þú kveikir ljósin á bílnum þínum sem eyða um 13 amper stundir, Hversu miklu meira eldsneyti eyðir bíllinn þinn?
Við eða ég hjá TEZ erum að tala um 16-18 Amper stundir fyrir V8 vélar
Hversu miklu eyddi bíllin þinn þegar hann var nýr? Og hvað eyðir hann nú eftir að hafa verið keyrður 100þús km? 20% meira?? Afhverju?? Mótorolían svört afhverju?
Það er nefnilega málið, hlutir slitna og eru ekki eins nýtanlegir eins og þeir voru þegar þeir voru nýir..
Ég get alveg farið lengra á tæknilega hliðina, til að fá sem mesta afl úr vél þá þurfum við 13,7 á móti 1 en flestir eru keyrðir á um 14,2 á móti einum til að halda kælingu í sprengirými.
Ef þú ætlar að lína út vél eins og það er kallað, þá bræðir þú fljótlega úr ef þú ferð niður fyrir 13,7 en með vetni eins þeir gerðu á stríðs árunum á flugvélum og skriðdrekum gátu þeir farið mun neðar með vetni, og þar létu þeir vetnið halda kælingu í brunahólfinu. Ég er ekki einu sinni byrjaður að reyna það.
En eins og ég seigi, ef búnaðurinn er ekki að gera það sem við ætlumst til, þá er bara að skila búnaðnum og fá endurgreitt. Ég er ekki hér til að svindla á neinum sorry..
Heima síðan er.. tezpower.com
Takk Friðgeir og Siggi, heimurinn þarf fleirra fólk eins og ykkur.
Kveðja
Sveinn

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

gstuning wrote:Ég ákvað að pósta á þenna þráð þarna.
Þessi Sveinn þór hefur augljóslega mjög takmarkaðann skilning á virkni véla.
gulli wrote:gstuning wrote:Ég ákvað að pósta á þenna þráð þarna.
Þessi Sveinn þór hefur augljóslega mjög takmarkaðann skilning á virkni véla.
Afhverju áttu svona erfitt með að trúa að þetta virki ?
JonHrafn wrote:Væri alveg til í að prófa sprauta smá vetni inn á 20ára gömlu 3.0 tdi toyotu vélina okkar sem er að eyða 14-17 lítrum. Engir skynjarar og ekkert vesen.
Users browsing this forum: No registered users and 85 guests