Bjarkih wrote:Samkvæmt grundvallarlögmálum eðlisfræðinar stennst þetta ekki. Þú getur ekki búið til meiri orku í kerfinu en var til í því fyrir. Varmanýtni bensínvéla er slæm eins og allir vita, ergo: orkan sem er í eldsneytinu nýtist ekki öll, hluti af henni tapast. Sama á við um vetni, hluti af orkuni sem býr í því tapast. Þannig að ef maður notar bensínvél til að búa til vetni sem er síðan notað í sömu vél þá ertu með tvöfallt tap.
Já, ég hugsaði það sama. Nú er þetta vafalaust rétt að þetta gangi ekki upp.
Leiðin til að þetta gangi upp eðlisfræðilega hins vegar er að ef breytingin á hvarfinu er þannig að nýtnin aukist. Þ.e. að meira af orkuinnihaldi bensínsins nýtist en áður (vegna breytingar á hvarfinu sjálfu) og að sú aukning yfirvinni tapið við að breyta raforkunni yfir í vetni, þó nýtnin í bensínvélinni sjálfri breytist ekki, þ.e. sama nýtni í að breyta varma í hreyfiorku.
Tel þó ólíklegt að það sé staðan, því þá væru vafalaust bílaframleiðendur að hugsa þetta með þessum hætti.